Ránargata 36, 1940-1950. Ljósm.: Stefán H. Jónsson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. STE 001 030 2-1. Sótt 21. júní 2020 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/.
Ránargata 36, 1940-1950. Ljósm.: Stefán H. Jónsson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. STE 001 030 2-1. Sótt 21. júní 2020 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/.

Ránargata 36, Reykjavík

Heiti: Stóri Hali
Byggingarár: 1901
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Sveinn Eiríksson
Aðrir eigendur:
1934: Jón Stefánsson og Oddrún Jónsdóttir
Upphafleg staðsetning: Bræðraborgarstígur 3b, Reykjavík
Flutt: 1934 að Ránargötu 36, Reykjavík

Saga:

Í upphafi árs 1934 birti bæjarverkfræðingurinn í Reykjavík auglýsingu þar sem óskað var eftir tilboðum frá trésmiðum til að flytja húsið „…. Bræðraborgarstíg 3 B, [sem] stendur í fyrirhuguðu götustæði Ránargötu, inn á lóð skipulagssjóðs nr. 36 við Ránargötu, og skila því þar í ekki lakara ástandi, en það er nú, ….“1M.a. Vísir (1934, 4. janúar), 24. árg., 3. tbl., bls. 1.

Hús þetta byggði Sveinn Eiríksson snikkari á grunni eldra húss sem hann átti og reif niður. Það var fyrst virt 8. febrúar 1901 og þá sagt tvíloftað, byggt af bindingi, klætt utan með borðum, pappa og járni þar yfir á austurgafli og suðurhlið. Húsið var með járnþaki á súð með pappa á milli. Niðri í húsinu voru tvö þiljuð og máluð herbergi og eldhús með einum ofni og eldavél. Uppi voru 3 herbergi og eldhús. Allt var þar þiljað og málað. Í risinu voru tvö máluð og þiljuð herbergi. Kjallari var undir öllu húsinu sem hólfaður var í tvennt. Þar var ein eldavél. Við suðurhlið hússins var inn- og uppgönguskúr, einnig byggður af bindingi, klæddur borðum og með járnþaki á súð.2Borgarskjalasafn. Aðf. 735. Brunavirðing 1900-1905. Sótt 21. júní 2020 af http://www.borgarskjalasafn.is/portaldata/21/brunabotavirdingar/735/opna0019.html.

Í janúar 1918 kom upp smávægilegur eldur í húsinu þegar verið var að þíða vatnspípu. Brunalið kom á vettvang, en ekki virðast hafa orðið miklar skemmdir á húsinu.3Tveir smábrunar (1918, 23. janúar). Morgunblaðið, 5. árg., 80. tbl., bls. 2.

Ránargata 36 í júlí 2023, www.google.com/maps.

Þegar séð varð að húsið þurfti að víkja þegar Ránargatan var lögð 1934 afsöluðu eigendur hússins, hjónin Jón Stefánsson og Oddrún Jónsdóttir, lóðina Bræðraborgarstígur 3b til Skipulagssjóðs Reykjavíkur með eftirfarandi skilyrðum:

1) Að Skipulagssjóður Reykjavíkur láti hjónin fá til eignar lóðina nr. 36 við Ránargötu.

2)  Að húsið, sem stendur lóðinni nr. 3b við Bræðraborgarstíg, verði flutt þeim að kostnaðarlausu og í fullri ábyrgð borgarstjórans í Reykjavík f.h. Skipulagssjóðs Reykjavíkur á lóðina nr. 36 við Ránargötu, og að bærinn láti gera á lóðinni nýjan kjallara. Hinn nýi kjallari skal gerður úr steinsteypu og verði hann að grunnformi eins og húsið. Nota skal að svo miklu leyti sem hægt er af efniviði úr hinum gamla kjallara.

3) Að íbúum hússins verði að kostnaðarlausu séð fyrir húsrými meðan á flutningnum stendur.4Gögn úr húsaskrá Borgarsögusafns Reykjavíkur.

Allt virðist þetta hafa gengið eftir og enn stendur húsið, sem nefnt hefur verið Stóri-Hali, við Ránargötu 36. Húsið fékk nafn sitt af bænum Hala sem virðist hafa átt lóð sem tók yfir mikinn hluta svæðisins þar sem Bræðraborgarstígur og Ránargata mætast.5Páll Líndal (1987). Reykjavík. Sögustaður við Sund, 2. bindi, bls. 23. Reykjavík: Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf.

Stóri Hali við Bræðraborgarstíg er húsið lengst til hægri á myndinni. Litli Hali, Bræðraborgarstígur 5 í Reykjavík er lágreista húsið á miðri myndinni. Ljósm. Sigurður Guðmundsson. Sarpur.is. Númer SiG3-6674. Sótt 1. mars. 2023 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=705012

Hér má lesa um Litla Hala. Í þeirri umfjöllun er þessi mynd af Stóra Hala, sem sýnir hús í bakgrunni sem enn stendur og er númer 4 við Bræðraborgarstíg.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 20. mars, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 20. mars, 2024