Ránargata 2, Grindavík
Hluti uppdráttar af Þórkötlustaðahverfi eftir Loft Jónsson.
Ránargata 2 í Grindavík í ágúst 2022. Ljósm.: Ja.is.
Saga:
Árið 1928 byggðu hjónin Jón Guðmann Jónsson (1880-1967) og Guðríður Þórðardóttir (1876-1960) nýtt hús á Eyvindarstöðum í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík, en þar bjuggu þau ásamt Haraldi Haraldssyni syni Guðríðar. Húsið stóð um 100 m vestan við Búðir, sem enn standa. Þar má enn (2025) sjá steyptan grunn „… tæplega 7 x 7 m að stærð. Vesturhlið hans er nánast horfin en mótar þó fyrir henni. Leifar af steyptum skorsteini liggja yfir norðurhlið. Tvö op sjást á suðurhlið eftir glugga eða dyr. Austan við húsgrunninn eru lágar hleðslur, áfastar, sem afmarka svæði, eins konar uppgróinn stall, sem er rúmlega 7 x 7 m stór. Á honum um miðbikið er steinn sem gæti verið fiskasteinn (óstaðfest) og gróinn hnúður, um 2 m í þvermál, norðan við hann. Hæst rís steypan líklega 40-50 cm og er gróf möl og steinar í steypunni.“1Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018). Fornleifar í Þórkötlustaðahverfi: Verndarsvæði í byggð, bls. 34-35. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses. Skýrsla nr. FS701-17172.
Vindmylla sem framleiddi rafmagn til ljósa var á Eyvindarstöðum og fleiri bæjum í Þórkötlustaðahverfi.2Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018), bls. 72.
Um og upp úr miðri síðustu öld tók íbúum í Þórkötlustaðahverfi að fækka vegna aukinna umsvifa í Járngerðarstaðahverfi sem varð þungamiðja athafnalífsins í Grindavík m.a. með uppbyggingu hafnarmannvirkja og útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki sem reist voru þar. Árið 1966 höfðu a.m.k. 6 íbúðarhús verið flutt úr Þórkötlustaðahverfinu yfir í Járngerðarstaðahverfi og nokkur til viðbótar verið rifin.3Efla verkfræðistofa (2019, 16. september). Verndarsvæði í byggð, Þórkötlustaðahverfi í Grindavík, bls. 16.
Um 1948 var húsið flutt að Ránargötu 2 í Járngerðarstaðahverfi í Grindavík. Þá voru hjónin Einar Símonarson (1920-1998) skipstjóri og útgerðarmaður og Sólrún Guðmundsdóttir (1913-2001) eigendur þess, en þau höfðu áður búið í Vestmannaeyjum. Árið 1956 var útliti hússins breytt í núverandi mynd. Það er líklega ástæðan fyrir því að byggingarár hússins er skráð 1956 í Fasteignaskrá. Eftir lát þeirra hjóna áttu börn þeirra húsið, eða hluta þess, til ársins 2005.4Loftur Jónsson (ódags.). Þórkötlustaðahverfi Grindavík. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Einar Símonarson (Eyri). Sótt 18. ágúst 2025 af https://heimaslod.is/index.php/Einar_S%C3%ADmonarson_(Eyri).
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 18. ágúst, 2025
Heimildaskrá
- 1Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018). Fornleifar í Þórkötlustaðahverfi: Verndarsvæði í byggð, bls. 34-35. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses. Skýrsla nr. FS701-17172.
- 2Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018), bls. 72.
- 3Efla verkfræðistofa (2019, 16. september). Verndarsvæði í byggð, Þórkötlustaðahverfi í Grindavík, bls. 16.
- 4Loftur Jónsson (ódags.). Þórkötlustaðahverfi Grindavík. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Einar Símonarson (Eyri). Sótt 18. ágúst 2025 af https://heimaslod.is/index.php/Einar_S%C3%ADmonarson_(Eyri).
Deila færslu
Síðast uppfært 18. ágúst, 2025

