Ránargata 13, Akureyri
Saga:
Árið 1897 byggði Júlíus Sigurðsson (1859-1936) bankastjóri stórt, einlyft timburhús með portbyggðu risi og miðjukvisti við Hafnarstræti 107 á Akureyri. Þar bjó hann ásamt konu sinni Ragnheiði Benediktsdóttur (1860-1951), en þar var einnig útibú Landsbankans frá 1904 til 1931, sem Júlíus stýrði. Júlíus hafði verið sýsluskrifari hjá Benedikt Sveinssyni á Héðinshöfða. Ekki er ósennilegt að þar hafi hann kynnst Ragnheiði, sem var dóttir sýslumannsins og því systir Einars Benediktssonar skálds og athafnamanns.
Ragnheiður stundaði búskap á lóð þeirra bak við húsið, átti túnblett þar sem nú er Bjarmastígur og Oddeyrargata, var með fjós og mikinn trjágarð. Þegar Júlíus lést árið 1936 reisti Ragnheiður sér nýtt hús örlítið ofar í Brekkunni, þá orðin 76 ára gömul.
Líklega hefur Útvegsbanki Íslands keypt hús þeirra hjóna um þetta leyti og farið að huga að byggingu stórhýsis á lóðinni. Því var ljóst að trjágarðurinn þurfti að víkja og gaf þá bankinn Akureyrarbæ tré úr garðinum með því skilyrði að þau yrðu gróðursett á Ráðhústorgi.1Jón Hjaltason (2004). Saga Akureyrar. Vályndir tímar 1919-1940, bls. 142-143. Akureyri: Akureyrarbær; Arnór Bliki Hallmundsson (2012, 16. febrúar). Hús dagsins: Ránargata 13 (áður Hafnarstræti 107). Sótt 21. maí 2023 af https://arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/1223580/; Arnór Bliki Hallmundsson (2020, 27. desember ). Hús dagsins: Hafnarstræti 107. Sótt 21. maí 2023 af https://arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/2259201/; Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. H1-230. Sótt 21. maí 2023 af https://sarpur.is/.
Í febrúar 1953 auglýsti Útvegsbankinn húsið „… til sölu til niðurrifs og brottflutnings af lóðinni.“2Til niðurrifs (1953, 25. febrúar). Dagur, 36. árg., 8. tbl., bls. 3. Húsið keyptu þeir Árni Jakob Stefánsson trésmiður (1912-1997) og Jón H. Þorvaldsson byggingameistari (1918-1994) og fluttu að að Ránargötu 13. Þeir ráku Trésmíðaverkstæðið Skjöld ásamt fleirum. Í ágúst sama ár skrifa þeir félagar undir lóðarleigusamning við Akureyrarbæ um lóð fyrir húsið sem var númer 13 við Ránargötu. Þar var húsið reist í lítið breyttri mynd og skipt í tvær íbúðir. Árni bjó í vesturendanum, en Jón seldi fljótlega sinn hluta hússins.3Jón Hjaltason (2004), bls. 142-143; Arnór Bliki Hallmundsson (2012, 16. febrúar); Arnór Bliki Hallmundsson (2020, 27. desember ); Fasteignaskrá. Ránargata 13, Akureyri. Skjöl í þinglýsingarhluta. Sótt 21. maí 2023 af https://vefuppfletti.fasteignaskra.is/.
Húsið stendur enn við Ránargötu 13 (2023), ber aldur sinn vel og ber mikinn svip af upprunalega húsinu.
Nánar má lesa um Ránargötu 13 í pistli Arnórs Blika Hallmundssonar um húsið, sem finna má hér.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 23. maí, 2024
Heimildaskrá
- 1Jón Hjaltason (2004). Saga Akureyrar. Vályndir tímar 1919-1940, bls. 142-143. Akureyri: Akureyrarbær; Arnór Bliki Hallmundsson (2012, 16. febrúar). Hús dagsins: Ránargata 13 (áður Hafnarstræti 107). Sótt 21. maí 2023 af https://arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/1223580/; Arnór Bliki Hallmundsson (2020, 27. desember ). Hús dagsins: Hafnarstræti 107. Sótt 21. maí 2023 af https://arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/2259201/; Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. H1-230. Sótt 21. maí 2023 af https://sarpur.is/.
- 2Til niðurrifs (1953, 25. febrúar). Dagur, 36. árg., 8. tbl., bls. 3.
- 3Jón Hjaltason (2004), bls. 142-143; Arnór Bliki Hallmundsson (2012, 16. febrúar); Arnór Bliki Hallmundsson (2020, 27. desember ); Fasteignaskrá. Ránargata 13, Akureyri. Skjöl í þinglýsingarhluta. Sótt 21. maí 2023 af https://vefuppfletti.fasteignaskra.is/.
Deila færslu
Síðast uppfært 23. maí, 2024
