Kleppsspítali árið 1957. Próferssorshúsið er lengst til hægri á myndinni. Ljósm.: Ragnar Vignir. Sótt 10. febrúar 2025 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/8ca5dc08-28f9-4192-9502-9cdd587aaa89/nanar.
Kleppsspítali árið 1957. Próferssorshúsið er lengst til hægri á myndinni. Ljósm.: Ragnar Vignir. Sótt 10. febrúar 2025 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/8ca5dc08-28f9-4192-9502-9cdd587aaa89/nanar.

Prófessorshúsið, Árbæjarsafni, Reykjavík

Heiti: Prófessorshús - Kleppur
Byggingarár: 1907
Upphafleg notkun: Íbúðarhús og starfsmannaaðstaða
Fyrsti eigandi: Ríkissjóður
Aðrir eigendur:
1977: Reykjavíkurborg
Hvernig flutt: Í heilu lagi
Kleppur_um1970

Prófessorshúsið nýkomið á Árbæjarsafn árið 1979. Árbæjarsafn. Kleppur. Sótt 10. febrúar 2025 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/8ca5dc08-28f9-4192-9502-9cdd587aaa89.

Kleppur 2

Prófessorshúsið á Árbæjarsafni. Nýleg mynd. Árbæjarsafn. Kleppur. Sótt 10. febrúar 2025 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/8ca5dc08-28f9-4192-9502-9cdd587aaa89.

Saga:

Um Prófessorshúsið, sem nú er í Árbæjarsafni í Reykjavík, segir á vef safnsins:

Prófessorshúsið á Kleppi var reist árið 1907 til íbúðar fyrir yfirlækni og annað starfsfólk fyrsta geðsjúkrahússins á Íslandi að Kleppi. Var húsið tengt spítalanum með tengibyggingu. Rögnvaldur Ólafsson, fyrsti íslenski arkitektinn, teiknaði bæði íbúðarhúsið og spítalann og voru þau reist samtímis. Í mörgum húsum Rögnvaldar má sjá sterk klassísk áhrif og á það við um Prófessorshúsið.
Fyrsti yfirlæknir Kleppsspítala og jafnframt fyrsti geðlæknir á Íslandi, Þórður Sveinsson, bjó á fyrstu hæð hússins ásamt fjölskyldu sinni á árunum 1907-1940. Skiptar skoðanir voru um geðlækningar í tíð Þórðar, bæði innan læknastéttarinnar og meðal almennings. Hann fór ekki varhluta af því en almennt þótti hann farsæll í starfi.
Kona Þórðar var dönsk, Ellen Johanne Kaaber að nafni. Faðir hennar var húsgagnaframleiðandi og komu öll húsgögn heimilisins þaðan. Læknishjónin eignuðust sjö börn sem öll ólust upp í Prófessorshúsinu. Þeirra á meðal má nefna Úlfar augnlækni, Agnar rithöfund og Gunnlaug lögfræðing.
Á annarri hæð Prófessorshússins bjó starfsfólk spítalans, m.a. yfirhjúkrunarkona, ráðskona og ráðsmaður. Á háaloftinu var m.a. herbergi sem vökukona spítalans hafði.
Kleppur hafði verið bújörð um aldir og var svo enn í tíð Þórðar Sveinssonar. Þótti allnokkur spölur þaðan til Reykjavíkur.
Húsið var flutt á Árbæjarsafn 1978 og er það meðal stærstu og veglegustu húsa safnsins.1Árbæjarsafn. Kleppur. Sótt 10. febrúar 2025 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/8ca5dc08-28f9-4192-9502-9cdd587aaa89/nanar.

Húsið stóð fyrir austan sjálfa spítalabyggingingu, en byggingu hennar lauk árið 1907, sama ár og Prófessorshúsið var reist.

Eftir að hætt var að búa í húsinu árið 1974 var það notað sem skrifstofur og raftækjaverkstæði.2Nýjungar í Árbæjarsafni (1978, 19. ágúst). Morgunblaðið, 65. árg., 178. tbl., bls. 5.

Húsið hýsir nú skrifstofur Borgarsögusafns / Árbæjarsafns.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. febrúar, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. febrúar, 2026