Presthúsabraut 33, 2012-2014. Ljósm.: Vitinn			
(Félag áhugaljósmyndara á Akranesi). Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 46842. Sótt 31. júlí 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is/.
Presthúsabraut 33, 2012-2014. Ljósm.: Vitinn (Félag áhugaljósmyndara á Akranesi). Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 46842. Sótt 31. júlí 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is/.

Presthúsabraut 33, Akranesi

Heiti: Kirkjuvellir
Byggingarár: 1905
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Kristján Daníelsson og Jónína Jónsdóttir
Upphafleg staðsetning: Merkigerði 13, Akranesi
Flutt: Um 1950 að Presthúsabraut 33, Akranesi

Saga:

Árið 1891 keyptu hjónin Kristján Daníelsson (1859-1951) og Jónína Jónsdóttir (1862-1927) jörðina Kirkjuvelli á Akranesi. Framan af stundaði Kristján sjóróðra, eins og hann hafði gert frá fermingu, en árið 1911 gerðist hann íshússtjóri hins fyrsta íshúss á Akranesi. Þau Jónína gengu í hjónaband árið 1889 og þegar Jónína lést árið 1927 höfðu þau hjón fylgt fimm börnum sínum til grafar. Tveimur árum síðar kvæntist Kristján Valgerði Þorbjörnsdóttur (1890-1967), en faðir hennar var hálfbróðir Jónínu fyrri konu Kristjáns.

Árið 1905 eða 1906 fékk Kristján Kristinn Árnason smið frá Bakka í Reykjavík, tilvonandi tengdason sinn, til að byggja fyrir sig lítið timburhús á Kirkjuvöllum. Kristinn var trúlofaður Arndísi, dóttur Kristjáns, en hún drukknaði á Suðurflös árið 1905 ásamt 10 öðrum, sem flestir voru milli tvítugs og þrítugs.

Kristján var farinn að viða að sér efni í húsið nokkrum árum áður en hafist var handa við smíðina. Eitt árið keypti hann bárujárn fyrir vertíðarlaunin sín, það næsta hurðir og síðan glugga. Húsið taldist til Merkigerðis númer 13 og stóð á lóð þar sem sjúkrahús Akraness var reist, en elsti hluti þess var tekinn í notkun árið 1952. Þá var húsið flutt að Presthúsabraut 33, þar sem það stendur enn.1Ólafur B. Björnsson (1948, 1. september). Hversu Akranes byggðist. 3. kafli. – 1840-1870. Byggðin eykst og færist ofar. Akranes, 7. árg., 9.-12. tbl., bls. 124-130

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 17. janúar, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 17. janúar, 2024