Presthúsabraut 29, Akranesi
Presthúsabraut 29 á árunum 2010 til 2019. Ljósm.: Áhugaljósmyndari í félaginu Vitanum. Ljósamyndasafn Akraness. Mynd nr. 46838. Sótt 17. janúar 2024 af http://www.ljosmyndasafn.akranes.is/.
Presthúsabraut 29, Akranesi, í júní 2025. Bakhlið. Ljósm.: Höfundur.
Saga:
Jörðin Ívarshús á Skaga á sér langa sögu, en hægt er að rekja sögu hennar til 17. aldar þegar Brynjólfur Skálholtsbiskup Sveinsson (1605-1675) lét reisa þar tómthús og verbúðir, eins og segir í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín.1Árni Magnússon og Páll Vídalín (1925-1927). Jarðabók. Fjórða bindi. Kaupmannahöfn: Hið íslenska fræðafjelag í Kaupmannahöfn. Sótt 22. júní 2023 af https://baekur.is/.
Við hefjum þó söguna árið 1903 þegar hjónin Sigmundur Guðbjarnason (1856-1922) og Vigdís Jónsdóttir (1860-1916) byggðu sér timburhús með trogþaki (mansardþaki) á jörðinni, en þangað höfðu þau flutt þremur árum áður. Húsið var númer 68 við Suðurgötu á Akranesi. Þau bjuggu í húsinu til dauðadags, en þegar Sigmundur féll frá árið 1922 tók sonur hans, Guðbjarni (1897-1990), við búinu. Sama ár kvæntist hann Guðnýju Magnúsdóttur (1902-1984). Árið 1931 seldi hann hjónunum Júlíusi Benediktssyni (1894-1962) og Sigríði Sigríksdóttir (1904-1945) Ívarshús. Júlíus byggði m.a. geymsluskúr við norðurenda hússins árið 1943. Árið 1948 seldu þau Júlíus og Sigríður hjónunum Friðriki Jónssyni og Guðbjörgu Guðmundsdóttur húsið. Þau fengu leyfi til að reisa nýtt hús á lóðinni árið 1955 og var þá gamla húsið flutt inn á Presthúsabraut 29.2Ólafur B. Björnsson (1945, 1. júní). Hversu Akranes byggðist. 1. kafli. Fyrsta bygging og jarðir á Skaga fram á 18. öld. Akranes, 6. tbl., bls. 65; Gísli S. Sigurðsson (2008). Svipast um á Suðurgötu. Annar hluti. Árbók Akurnesinga, 4, bls. 105-120.
Tekið skal fram að nafnið Ívarshús flutti ekki með húsinu á Presthúsabrautina því nafnið færðist yfir á stórt og reisulegt steinsteypt hús sem Guðbjarni Sigmundsson hafði lokið við að reisa við Mánabraut og flutti í þegar hann seldi gamla Ívarshús árið 1931.3Minning: Guðbjarni Sigmundsson frá Ívarshúsum (1990, 2. febrúar). Morgunblaðið, 77. árg., 27. tbl., bls. 14.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. júlí, 2025
Heimildaskrá
- 1Árni Magnússon og Páll Vídalín (1925-1927). Jarðabók. Fjórða bindi. Kaupmannahöfn: Hið íslenska fræðafjelag í Kaupmannahöfn. Sótt 22. júní 2023 af https://baekur.is/.
- 2Ólafur B. Björnsson (1945, 1. júní). Hversu Akranes byggðist. 1. kafli. Fyrsta bygging og jarðir á Skaga fram á 18. öld. Akranes, 6. tbl., bls. 65; Gísli S. Sigurðsson (2008). Svipast um á Suðurgötu. Annar hluti. Árbók Akurnesinga, 4, bls. 105-120.
- 3Minning: Guðbjarni Sigmundsson frá Ívarshúsum (1990, 2. febrúar). Morgunblaðið, 77. árg., 27. tbl., bls. 14.
Deila færslu
Síðast uppfært 12. júlí, 2025

