Smiðjuvellir um 1940. Ljósm.: Árni Böðvarsson. Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 4044. Sótt 31. ágúst 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is/myndir.
Smiðjuvellir um 1940. Ljósm.: Árni Böðvarsson. Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 4044. Sótt 31. ágúst 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is/myndir.

Presthúsabraut 27, Akranesi

Heiti: Smiðjuvöllur - Smiðjuvellir
Byggingarár: 1902-1909
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Guðjón Hinriksson og Lilja Guðmundsdóttir
Aðrir eigendur:
?: Helga Jónsdóttir og Pétur Sigurbjörnsson
1935: Finnbogi Sigurðsson og Þuríður Guðjónsdóttir
?: Daníel Friðriksson
?: Hjörtur L. Sigurðsson og Ásta Sigurbjörg Sigfúsdóttir
1946: Ásta Sigfúsdóttir
1946: Sjúkrahús Akraness
1946: Þorsteinn Magnússon
Upphafleg staðsetning: Heiðarbraut 32, Akranesi
Flutt: 1955 eða 1956 að Presthúsabraut 27, Akranesi
Hvernig flutt: Í heilu lagi

Saga:

Talið er að húsið Smiðjuvellir, sem nú er númer 27 við Presthúsabraut á Akranesi, hafi verið byggt laust eftir árið 1901. Þangað var húsið flutt frá Heiðarbraut 32 á Akranesi árið 1955 eða 1956.1Teiknistofa arkitekta Gylfi Guðjónsson og félagar ehf. (2022, 7. mars). Aðalskipulag Akraness 2021-2033. Forsendur, bls. 31. Sótt 31. ágúst 2023 af https://www.akranes.is/static/files/2022/Adalskipulag/asakra-21-forsendur-220307-a4.pdf; Húsanöfn á Akranesi (2015, 19. ágúst). Sótt 31. ágúst 2023 af https://www.akranes.is/static/files/2015/Myndir-med-frettum/husanofn-a-akranesi.pdf.Upphaflega var býlið nefnt Smiðjuvöllur, en þar var fyrst byggt 1868.

Árið 1901 keyptu hjónin Guðjón Hinriksson (1851-1938) og Lilja Guðmundsdóttir (1848-1931) Smiðjuvelli og hafa þau væntanlega byggt húsið skömmu síðar. Þar ólu þau upp dótturdóttur sína, Helgu Jónsdóttur (1905-1996) og tók hún við búi af gömlu hjónunum ásamt eiginmanni sínum, Pétri Sigurbjörnssyni (1900-1966).

Presthúsabraut 27, Akranesi, í júní 2025. Ljósm.: Höfundur.

Árið 1935 keyptu þau Finnbogi Sigurðsson (1873-1936) og Þuríður Guðjónsdóttir (1888-1988) Smiðjuvelli.2Ólafur B. Björnsson (1948, 1. september). Hversu Akranes byggðist. 3. kafli. – 1840-1870. Byggðin eykst og færist ofar, bls. 130. Akranes, 9.-12. tbl., bls. 124-130; Ólafur B. Björnsson (1949, 1. mars). Hversu Akranes byggðist. 3. kafli. – 1840-1870. Byggðin eykst og færist ofar. Akranes, 3.-4. tbl., bls. 40-41. „Þuríður er hin mesta myndar kon, þrifin, dugleg, dul en drenglynd. … [Finnbogi] var vel greindur, óvenjulega nákvæmur og samvizkusamur, húsbóndahollur, orðvar og ágætur í alla staði.“3Ólafur B. Björnsson (1949, 1. mars), bls. 41.

Næst kaupir Daníel Friðriksson (1909-1991) Smiðjuvelli, en hann bjó þar ekki lengi. Af honum kaupa hjónin Hjörtur L. Sigurðsson (1905-1988) og Ásta Sigurbjörg Sigfúsdóttir (1912-1980) býlið.

„Árið 1946 eru Smiðjuvellir keyptir af Ástu Sigfúsd. til þess að leggja til lóðar hins nýja sjúkrahús í samræmi við hið nýja skipulag. En húsið selur sjúkrahússtjórnin aftur Þorsteini Magnússyni, með loforði um að það megi standa, þar til sjúkrahúsið þurfi sjálft að nota lóðina.“4Ólafur B. Björnsson (1949, 1. mars), bls. 41.

Árið 1955 eða 1956 kom að því að Smiðjuvellir þurftu að víkja af lóð sjúkrahússins, því árið 1956 var byggður læknisbústaður rétt norðan við sjúkrahúsið, þar sem Smiðjuvellir stóðu áður.5Sjúkrahúsið (1956, 1. október). Akranes, 10.-12. tbl., bls. 137. Var húsið þá flutt að Presthúsabraut 27 á Akranesi, þar sem það stendur enn, með talsverðum viðbótum.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. júlí, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. júlí, 2025