Presthúsabraut 26, Akranesi
Saga:
Í fasteignaskrá er húsið Blómsturvellir á Akranesi sagt byggt árið 1908. Hins vegar kemur fram í grein Ólafs B. Björnssonar frá 1959 að Hermann Þorvaldsson (1872-1960) hafi byggt húsið árið 1901. Árið 1906 seldi hann Sigurbirni Jónssyni (1865-1952) húsið og bjó hann þar til dauðadags, 26. október 1952, ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Kristjánsdóttur (1860-1937), og fjórum börnum, þar af einum fóstursyni.
Sigurbjörn stækkaði húsið nokkuð og setti á það ris, en upphaflega var það með flötu þaki. Hafi þessi breyting verið gerð árið 1908 skýrir það hið skráða byggingarár í fasteignaskrá.
Hjónin Magnús E. Sigurðsson (1890-1974) og Þórunn Björnsdóttir (1885-1970) keyptu Blómsturvelli af dánarbúi Sigurbjarnar árið 1953. Þau endurbættu húsið mikið meðan þau áttu það, bæði að utan og innan.1Ólafur B. Björnsson (1959, 1. janúar). Hversu Akranes byggðist. 5. kafli. – 1901-1925. – Vorhugur og vélaöld gengur í garð. Akranes, 18. árg., 1. tbl., bls. 46-51.
Húsið var skráð við Kirkjubraut 49 á Akranesi. Um 1960 var það flutt að Presthúsabraut 26, þar sem það stendur enn og ber enn nafnið Blómsturvellir.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. júlí, 2025
Heimildaskrá
- 1Ólafur B. Björnsson (1959, 1. janúar). Hversu Akranes byggðist. 5. kafli. – 1901-1925. – Vorhugur og vélaöld gengur í garð. Akranes, 18. árg., 1. tbl., bls. 46-51.
Deila færslu
Síðast uppfært 12. júlí, 2025
