Presthúsabraut 23, Akranesi
Saga:
Á ljósmynd sem talið er að hafi verið tekin árið 1906 sést hús sem nefnt var Miðhús.1Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 29256. Sótt 5. júlí 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is/myndir. Húsið varð síðar númer 72 við Suðurgötu. Byggingarár þess var þó sagt vera 1910 í fasteignaskrá. Ekki er vitað hver byggði húsið, en á árunum 1924 til 1943 bjuggu þar hjónin Elías Níelsson (1896-1977) og Klara Sigurðardóttir (1899-1969) ásamt mörgum börnum sínum. Þá kaupa hjónin Jósef Einvarðsson (1921-2005) og Elínborg Sigurdórsdóttir (1924-2003) húsið. Eftir nokkra mánuði var húsið aftur selt og keypti það þá Kristín Sigurðardóttir og bjó í því með syni sínum til ársins 1956 þegar húsið var flutt að Presthúsabraut 23.
Þar var húsið sett á steyptan kjallara og var líklega um 33 m². Síðar var það stækkað verulega og múrhúðað að utan.
Árið 2018 barst Minjastofnun Íslands fyrirspurn um hvort rífa mætti elsta hluta hússins, því hann þótti afar illa farinn. Samkvæmt lögum um menningarminjar nr. 80/2012 var húsið friðað eins og öll hús sem voru 100 ára og eldri. Í lögunum er kveðið á um að óheimilt er að raska friðuðum húsum, breyta eða rífa nema með leyfi stofnunarinnar. Í svari Minjastofnunar við erindinu kemur fram að æskilegt væri að varðveita elsta hluta hússins og draga fram upprunaleg ytri einkenni hans við breytingar og stækkun hússins, en stofnunin lagðist ekki gegn breytingum og niðurrifi á seinni tíma viðbyggingum yrði óskað eftir slíku leyfi, sem aldrei barst.2Gísli S. Sigurðsson (2009). Svipast um á Suðurgötu. Þriðji hluti. Árbók Akurnesinga 2009, 9. árg., bls. 113; Gagnasafn Minjastofnunar Íslands, verknr. 3991. M.a. bréf Minjastofnunar Íslands til Lögmanna Laugardal dags. 3. september 2019.
Í júlí 2023 kom hins vegar í ljós að allt húsið hafði verið rifið (sést á mynd á ja.is og í fasteignaskrá er hússins ekki getið eftir 31.12.2021).
Þegar höfundur kom að lóðinni í júní 2025 hafði verið reist þar steinsteypt portbyggt hús, jarðhæð og rishæð með kvisti.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. júlí, 2025
Heimildaskrá
- 1Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 29256. Sótt 5. júlí 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is/myndir.
- 2Gísli S. Sigurðsson (2009). Svipast um á Suðurgötu. Þriðji hluti. Árbók Akurnesinga 2009, 9. árg., bls. 113; Gagnasafn Minjastofnunar Íslands, verknr. 3991. M.a. bréf Minjastofnunar Íslands til Lögmanna Laugardal dags. 3. september 2019.
Deila færslu
Síðast uppfært 12. júlí, 2025
