Kirkjubraut 7, 1930-1949. Ljósm.: Bjarni Árnason. Ljósmyndasafn Akraness, mynd nr. 29260. Sótt 8. júní 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is/.
Kirkjubraut 7, 1930-1949. Ljósm.: Bjarni Árnason. Ljósmyndasafn Akraness, mynd nr. 29260. Sótt 8. júní 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is/.

Presthúsabraut 22, Akranesi

Heiti: Gneistavellir
Byggingarár: 1905
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Bjarni Guðmundsson og Sigurlaug Helgadóttir
Aðrir eigendur:
1922: Hjörtur Bjarnason og Ásrún Lárusdóttir
1927: Sigurður Bjarnason og Sigurlína Jónsdóttir
Upphafleg staðsetning: Kirkjubraut 7, Akranesi
Fyrst flutt: 1955 að Presthúsabraut 22, Akranesi
Hvernig flutt: Í heilu lagi
Presthúsabraut 22 2
Presthúsabraut 22 3

Gneistastaðir komnir að Presthúsabraut. Hluti úr mynd. Ljósm.: Jóhannes Gunnarsson. Ljósmyndasafn Akraness, mynd nr. 33909. Sótt 8. júní 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is/.

Saga:

Presthúsabraut 22, Akranesi, í júní 2025. Ljósm.: Höfundur.

Hjónin Bjarni Guðmundsson járnsmiður (1849-1922) og Sigurlaug Helgadóttir  (1857-1927) byggðu lítið hús sem þau nefndu Gneistavelli árið 1884 því þar gneistaði eldurinn í smiðju sem var á jarðhæð hússins, en sjálf  bjuggu þau í portbyggðu risi þar yfir. Árið 1905 reif Bjarni gamla húsið og byggði þar nýtt timburhús, sem einnig bar nafnið Gneistavellir en fékk síðar númerið 7 við Kirkjubraut. Það hús var 10 x 9 álnir með flötu þaki. Bjarni stundaði einnig sjó, því ekki dugðu smíðarnar til að framfleyta 9 manna fjölskyldu.

Þegar Bjarni lést árið 1922 fóru Hjörtur (1894-1977) sonur hans og Ásrún Knudsen Lárusdóttir (1898-1967) að búa á Gneistavöllum og sama ár byggðu þau ris ofan á húsið. Árið 1927 keypti Sigurður (1901-1968) bróðir Hjartar húsið af honum og bjó þar lengi ásamt konu sinni Sigurlín Jónsdóttur (1908-1987). Sigurður var vélstjóri og stundaði sjómennsku alla sína ævi.1Ólafur B. Björnsson (1952, 1. júlí). Hversu Akranes byggðist. 4. kafli. – 1870-1900. – Byggingar batna. Akranes, 11. árg., 7.-9. tbl., bls. 94-97.

Árið 1955 var húsið flutt að Presthúsabraut 22, eins og fleiri hús, en þau Sigurður og Sigurlín byggðu stórt steinsteypt hús á lóðinni Kirkjubraut 7.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. júlí, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. júlí, 2025