Melshús við Suðurgötu 33 (1930-1949), hluti úr mynd. Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 23065. Sótt 26. maí 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is.
Melshús við Suðurgötu 33 (1930-1949), hluti úr mynd. Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 23065. Sótt 26. maí 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is.

Presthúsabraut 21, Akranesi

Heiti: Melshús
Byggingarár: 1922
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: : Sigurður Jónsson og Kristín Árnadóttir
Upphafleg staðsetning: Suðurgata 33, Akranesi
Flutt: 1955 að Presthúsabraut 21, Akranesi
Hvernig flutt: Í heilu lagi
Presthúsabraut 21 2

Flutningshús við Presthúsabraut, 1950-1959. Melshús fyrir miðri mynd. Ljósm.: Jóhannes Gunnarsson. Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 23065. Sótt 26. maí 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is.

20250628_162030

Presthúsabraut 21, Akranesi, í júní 2025, suðausturhlið. Ljósm.: Höfundur.

20250628_163433

Presthúsabraut 21, Akranesi, í júní 2025, suðvesturhlið. Ljósm.: Höfundur.

20250628_163348

Presthúsabraut 21, Akranesi, í júní 2025, norðvesturhlið. Ljósm.: Höfundur.

Saga:

Melshús við Suðurgötu 33 á Akranesi var byggt af hjónunum Sigurði Jónssyni (1865-1946) og Kristínu Árnadóttur (1862-1947) árið 1922. Þar bjuggu þau hjón til dánardags ásamt sjö börnum sínum. „Melshús var lítið timburhús ein hæð og ris. Vegghæð var svo lítil að öll hæðin var undir súð. Einn gluggi var á hvorum gafli og gluggi á kvisti fyrir miðri götuhlið. Gengið var inní húsið um inngangsskúr á þeirri hlið, sem sneri frá götu og þáði þak hans upp í húsþakið. Húsið stóð á lágum grunni og var enginn kjallari undir því.“

Sigurður ólst upp Melshúsum, sem var gamalt býli. Hann stóð fyrst fyrir búi móður sinnar, en byggði sinn eigin bæ 1922. Sigurður var sjómaður mestan hluta ævi sinnar, stundum formaður, en var fiskimatsmaður seinustu árin.1Gísli S. Sigurðsson (2007). Svipast um á Suðurgötu. Fyrsti hluti. Árbók Akurnesinga, 7, bls. 131; Ólafur H. Björnsson (1947, 1. febrúar). Hversu Akraness byggðist. 2. kafli. Fjölgun býla og bæja til 1840. Akranes, 6. árg., 2-5. tbl., bls. 40-41.

Heimili Kristínar bar með sér óvenjulegan þrifnað. „Allt var hvítskúrað út úr dyrum, – hátt og lágt, – hver hlutur á sínum stað. Allt notað til hins ýtrasta, en allt svo vel gert, að vel fór. Miklu líkara nýju en gömlu og margnotuðu. Þrenslin voru líka mikil í þessum litla bæ á þessu fjölmenna heimili. En það var furðulegt, hvernig þar var á öllu haldið.“2Ólafur H. Björnsson (1947, 1. febrúar), bls. 41.

Um 1955 var húsið flutt á lóð númer 21 við Presthúsabraut og er í raun efri hæð hússins sem þar stendur nú (2023). Einnig hefur húsið verið stækkað til norðvesturs.3Gísli S. Sigurðsson (2007), bls. 131.

Á Suðurgötu 33 stendur nú steinsteypt hús með fjórum íbúðum sem byggt var árið 2015.4Fasteignaskrá. Sótt 26. maí 2023 https://fasteignaskra.is.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. júlí, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. júlí, 2025