Óttarsstaðir eystri, Hraunum við Straumsvík
1885 að Óttarsstöðum við Straumsvík
Óttarsstaðir eystri líklega um 1978. Heimild: Gísli Sigurðsson (1978, 7. maí). Suður í Hraunum. Lesbók Morgunblaðsins, 53. árg., 16. tbl., bls. 8.
Óttarsstaðir eystri um 2020. Heimild: Atli Rúnarsson (2021). Fornleifaskrá Hafnarfjarðar V. Straumur, Óttarsstaðir og Lónakot, bls. 128. Hafnarfirði: Byggðasafn Hafnarfjarðar.
Saga:
Þorpið Vogar á Vatnsleysuströnd byggðist að hluta til á jörðunum Austurkoti og Minni-Vogum og enn eru hús í Vogum sem bera þessi nöfn. Austurkot er nú Egilsgata 11 og Minni-Vogar Egilsgata 8.
Árið 1881 byggðist Grænaborg að hluta í landi Minni-Voga og að hluta í landi Austurkots. Þegar íbúðarhús hjónanna Ara Egilssonar (1852-1910) og Margrétar Gísladóttur (1854-1888) brann vorið 1883 aðstoðaði Gísli Þormóðsson (1829-1893) faðir Margrétar þau hjónin við að byggja nýtt timburhús við hlið Austurkots. Þau Ari og Margrét Gísladóttir dvöldu þó aðeins tvö ár í nýja húsinu því þau fluttu til Kanada árið 1885.
Ari Egilsson var lærður skipstjóri og stjórnaði bæði eigin skútum og annarra.1Guðmundur B. Jónsson (1987). Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, bls. 120. [Útg.staðar ekki getið:] Höfundur.
Ari keypti byggingarvið úr timburflutningaskipinu Jamestown sem strandaði við Hafnir árið 1881 og notaði í hús sitt.2Helga Margrét Guðmundsdóttir (2023, 9. nóvember). Tölvupóstur.; Halldór Svavarsson (2021). Strand Jamestowns úti fyrir Höfnum 1881, bls. 131-132. Reykjavík: Almenna bókafélagið.
Þegar þau Ari og Margrét voru farin af landi brott keypti Friðfinnur Friðfinnsson (1844-1891) á Óttarstöðum í Hraunum sunnan Hafnarfjarðar húsið. Hann tók það niður og flutti viðina í áföngum á skipi sínu og endurreisti það á Óttarstöðum. Friðfinnur hafði keypti hálflenduna Óttarstaði af Guðmundi Jónssyni þetta sama ár 1885. Friðfinnur var skipstjóri og helmings eigandi þilskipsins Lilju. Það var því hægðarleikur fyrir hann að flytja viðina á skipi sínu og skipa þeim upp úr léttabáti sínum í Óttarstaðavörinni.3Helga Margrét Guðmundsdóttir (2023, 9. nóvember).
Eiginkona Friðfinns var Guðfinna Gísladóttir (1859-1924).
Á Óttarsstöðum var húsið ýmist nefnt Óttarsstaðir eystri, Óttarsstaðir neðri eða Austurbærinn. Þegar gerð var fornleifaskráning á Óttarsstöðum árið 2021 var húsinu lýst þannig:
Leifar af tröppum framan við húsið. Bárujárnsklætt timburhús á hlöðnum kjallara sem er styrktur með steypu. Ein hæð, ris og kjallari, átta gluggar. Líklega hefur verið inngangur aftan á húsinu til að komast í eldhúsið (2587-93) en þar er steyptur pallur. Húsið er illa farið og risið farið að hrynja, kamínan og reykháfur úr múrsteinum er enn til staðar.4Atli Rúnarsson (2021). Fornleifaskrá Hafnarfjarðar V. Straumur, Óttarsstaðir og Lónakot, bls. 128. Hafnarfirði: Byggðasafn Hafnarfjarðar.
Um Óttarsstaði eystri segir Gísli Sigurðsson í blaðagrein árið 2000:
Síðustu ábúendur á jörðinni, hjónin Guðrún Bergsteinsdóttir [1877-1956] og Sigurður Kristinn Sigurðsson [1875-1955] hættu búskap þar 1952. Síðasti maður sem hafði fasta búsetu í Hraunum var hinsvegar Guðmundur sonur þeirra. Hann var bátasmiður og byggði sér hús niðri við fjörukambinn, en það er nú horfið. Guðmundur bátasmiður lézt 1985. Þennan jarðarpart, sem talinn var 5 ha, á fjölskyldan þó ekki lengur. Guðni Ívar Oddsson keypti hann 1979 og flutti síðan til Ameríku. Hann er dáinn en sonur hans, Paul I. Oddsson, erfði jörðina og hefur hann aldrei til Íslands komið.5Gísli Sigurðsson (2000, 25. mars). Nútíminn fór hjá garði. Lesbók Morgunblaðsins, 75. árg., 12. tbl., bls. 4-6.
Þau Guðrún og Sigurður gengu í hjónaband árið 1899 og um svipað leyti hófu þau búskap á Óttarsstöðum eystri. Guðrún var frá Eyðikoti, hjáleigu frá Óttarsstöðum og þar innangarðs. Árið 1918 eða 1919 keyptu þau hjón jörðina og þar bjuggu þau meðan þau höfðu heilsu til.6Ólafur Þorvaldsson (1955, 2. mars). Sigurður Kristinn Sigurðsson. Minningarorð. Morgunblaðið, 42. árg., 50. tbl., bls. 6.
Leitarorð: Vogar – Vatnsleysuströnd
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 28. maí, 2026
Heimildaskrá
- 1Guðmundur B. Jónsson (1987). Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, bls. 120. [Útg.staðar ekki getið:] Höfundur.
- 2Helga Margrét Guðmundsdóttir (2023, 9. nóvember). Tölvupóstur.; Halldór Svavarsson (2021). Strand Jamestowns úti fyrir Höfnum 1881, bls. 131-132. Reykjavík: Almenna bókafélagið.
- 3Helga Margrét Guðmundsdóttir (2023, 9. nóvember).
- 4Atli Rúnarsson (2021). Fornleifaskrá Hafnarfjarðar V. Straumur, Óttarsstaðir og Lónakot, bls. 128. Hafnarfirði: Byggðasafn Hafnarfjarðar.
- 5Gísli Sigurðsson (2000, 25. mars). Nútíminn fór hjá garði. Lesbók Morgunblaðsins, 75. árg., 12. tbl., bls. 4-6.
- 6Ólafur Þorvaldsson (1955, 2. mars). Sigurður Kristinn Sigurðsson. Minningarorð. Morgunblaðið, 42. árg., 50. tbl., bls. 6.
Deila færslu
Síðast uppfært 28. maí, 2026

