Brúarhraun nýflutt að Öldugötu 27 skömmu eftir 1943. Verið er að múrhúða húsið.
Sarpur.is. Mynd nr. BH/2014-100-1118.
Brúarhraun nýflutt að Öldugötu 27 skömmu eftir 1943. Verið er að múrhúða húsið. Sarpur.is. Mynd nr. BH/2014-100-1118.

Öldugata 27, Hafnarfirði

Heiti: Brúarhraun - Brúarhraunshúsið
Byggingarár: ≈1850
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Halldór Bjarnasonn beykir
Aðrir eigendur:
>1884: Magnús Halldórsson og Steinunn Einarsdóttir:
Upphafleg staðsetning: Strandgata 23 (þar sem Strandgata 39 er nú), Hafnarfirði
Flutt: 1943 að Öldugötu 27, Hafnarfirði
Hvernig flutt: Í heilu lagi

Saga:

Öldugata 27 í nóvember 2010. Ljósm.: Friðrik S. Einarsson.

Hús þetta byggði Halldór Bjarnason beykir um miðja 19. öld. Nafn sitt, Brúarhraun, fékk húsið af því að það stóð við brúna yfir Lækinn (Hamarskotslæk), sem þá var mun vestar en nú er, um það bil þar sem Strandgata 39 er nú, en húsið hefði væntanlega verið númer 23 við götuna.  Magnús sonur Halldórs (f. 1858) bjó síðan í húsinu með konu sinni Steinunni Einarsdóttur, sem flutt hafði til Hafnarfjarðar 1884 og giftust þau skömmu síðar. Þau hjón áttu tvö börn og auk fjölskyldunnar bjuggu oft leigjendur upp á lofti í húsinu.

Þegar  legu Strandgötu var breytt árið 1943 varð húsið að víkja og var það þá flutt í heilu lagi að Öldugötu 27 í Hafnarfirði. Þá var húsið múrhúðað1Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður, bls. 39 og 63-64. Önnur útgáfa. [Hafnarfjörður:] Höfundur; Magnús Jónsson (1959, 19. desember). Íbúar Hafnarfjarðar árið 1902, bls. 16. Alþýðublað Hafnarfjarðar, 18. árg., bls. 14-19. Sótt 30. október 2023 af https://timarit.is/page/4676078#page/n13/mode/2up, en síðar var það klætt með bárujárni.

 

Leitarorð: Hafnarfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. maí, 2024

Heimildaskrá

  • 1
    Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður, bls. 39 og 63-64. Önnur útgáfa. [Hafnarfjörður:] Höfundur; Magnús Jónsson (1959, 19. desember). Íbúar Hafnarfjarðar árið 1902, bls. 16. Alþýðublað Hafnarfjarðar, 18. árg., bls. 14-19. Sótt 30. október 2023 af https://timarit.is/page/4676078#page/n13/mode/2up

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. maí, 2024