Lindargata 13 árið 1971. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 0815.jpg. Sótt 18. apríl 2024 af https://borgarsogusafn.prod.thon.is/myndasafn?q=%22Lindargata+13%22#S%C3%BE%C3%93%20%C3%81BS%200815.jpg.
Lindargata 13 árið 1971. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 0815.jpg. Sótt 18. apríl 2024 af https://borgarsogusafn.prod.thon.is/myndasafn?q=%22Lindargata+13%22#S%C3%BE%C3%93%20%C3%81BS%200815.jpg.

Nýlendugata 5a, Reykjavík

Byggingarár: 1898
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Ástráður Hannesson
Aðrir eigendur:
1915: Engilbert Magnússon
Upphafleg staðsetning: Lindargata 13, Reykjavík
Flutt: 2005 að Nýlendugötu 5a, Reykjavík
Hvernig flutt: Flutt í heilu lagi
Nýlendugata 5a 6

Lindargata 13 skömmu áður en húsið var flutt. Heimild: Gagnasafn Húsafriðunarnefndar.

Nýlendugata 5a 2

Nýlendugata 5a árið 2009. Heimild: Gagnasafn Húsafriðunarnefndar.

Saga:

Í október 1898 var virt hús við Lindargötu sem Ástráður Hannesson (1865-1935) hafði látið byggja. Húsið var byggt af bindingi. Allir útveggir voru klæddir með plægðum borðum, pappa og járni og járn var einnig á þaki á súð með pappa á milli. Niðri í húsinu voru þrjú herbergi, eldhús og búr, sem allt var þiljað og málað, með tvöföldum loftum. Þar voru þrír ofnar og ein eldavél. Uppi voru tvö herbergi auk miðlofts. Þar var einnig allt þiljað og herbergi máluð. Þar voru tveir litlir ofnar. Kjallari var undir öllu húsinu sem var hólfaður í 4 rými. Tvö þessara rýma voru með timburgólfi.1Borgarskjalasafn. Brunabótavirðingar 1888 til 1900. Aðfnr. 734. Brunavirðing nr. 520, 1. október 1898. Sótt 18.04.2023 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/734-bok-03-07-1888-til-17-02-1900-adfnr-734.pdf.

Í byrjun var húsið skráð númer 1 við Lindargötu, en fékk síðan númerið 13.

Þegar manntal var tekið árið 1901 bjó Ástráður í húsinu ásamt konu sinni Ingibjörgu Sigríði Einarsdóttur (1866-1961) og þremur börnum þeirra, auk vinnukonu og konu sem skráð var aðkomandi í húsinu. Auk þeirra búa sex ungar konur í húsinu. Ástráður var afgreiðslumaður í Ísafoldarprentsmiðju í þrjá áratugi. Árið 1905 fluttu þau hjón að Smiðjustíg 13, sem Ástráður hafði einnig látið byggja.

Árið 1915 var Engilbert Magnússon (1876-1955) skipstjóri orðinn eigandi hússins ásamt konu sinni, Guðmundu Gísladóttur (1893-1986). Hann hækkaði húsið þannig að það varð tvílyft með kvisti og risi. Jafnframt var þá gerður inn- og uppgönguskúr við norðurhlið hússins. Hann byggði síðan viðbyggingu úr steinsteypu við húsið árið 1924, sem teiknuð var af Einar Erlendssyni. Engilbert bjó í húsinu til dauðadags.2Nikulás Úlfar Másson og Margrét Jónsdóttir (1999). Byggingasaga, ekkert bls.tal. Skýrslur Árbæjarsafns LXXII. Reykjavík: Árbæjarsafn; Páll V. Bjarnason og Helga Maureen Gylfadóttir (2004). Húsakönnun. Hverfisgata – Ingólfsstræti – Lindargata – Klapparstígur. Skýrsla nr. 121. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur; Manntal 1901. Sótt 18. apríl 2024 af https://manntal.is/; Dánartilkynning: Engilbert Magnússon (1955, 29. júní). Morgunblaðið, 42. árg., 143. tbl., bls. 15.

Þegar skipulagsvinna á hinum svonefnda „Stjórnarráðsreit“ í byrjun aldarinnar hófst var rætt um að rífa eða færa mörg hús við Sölvhólsgötu og Lindargötu. Torfusamtökin, Húsafriðunarnefnd og borgarminjavörður lögðust gegn því að hróflar yrði við Lindargötu 13 því húsið þótti mynda „heillega götumynd timburhúsa á mótum Lindargötu og Smiðjustígs.“ Hins vegar sagði Ólafur Sigurðsson arkitekt hjá Arkþingi um húsið: „Þetta er gamalt timburhús og það hefur verið byggt steinhús utan í það. Það hefur ekki verið búið í þessu húsi, nema útigangsfólk, í fjöldamörg ár. Leiðslur í húsinu sprungu þarna áður en vatn og rafmagn var tekið af húsinu.“ Ólafur segir að Arkþing leggi til að byggt verði hús sömu gerðar án steinbyggingar við húsið. „Þannig væri hægt að halda eftir götumyndinni,“3Óánægja með niðurrif húsa við Lindargötu (2001, 31. ágúst). Morgunblaðið, 89. árg., 197. tbl., bls. 12.

Niðurstaðan varð sú að húsið var auglýst til brottflutnings eða niðurrifs.4Til sölu (2002, 15. desember). Morgunblaðið C, 90. árg., bls. 10.

Nýir eigendur fluttu húsið að Nýlendugötu 5a í Reykjavík, þar sem steyptur var nýr kjallari undir húsið og húsið allt gert upp svo sómi er að. Húsið var flutt í heilu lagi 25. október 2005. Finnur Lúðvíksson þungaflutningamaður sá um flutninginn sem hann sagði hafa gengið eins og í sögu þó fara þyrfti ýmsar krókaleiðir með húsið í þessu tveggja klukkutíma ferðalagi.5Húsflutningar í miðbænum (2005, 26. október). Morgunblaðið, 93. árg., 290. tbl., bls. 56.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 18. apríl, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 18. apríl, 2024