Brúnstaðir við Suðurlandsbraut, um 1973. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 1363. Sótt 20. október 2023 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is
Brúnstaðir við Suðurlandsbraut, um 1973. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 1363. Sótt 20. október 2023 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is

Nýlendugata 26, Reykjavík

Heiti: Brúnstaðir
Byggingarár: 1928
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Sveinn Þórðarson
Aðrir eigendur:
1936: Ingimundur Gíslason og Guðrún Þorsteinsdóttir
Upphafleg staðsetning: Kringumýrarblettur 9, Laugardal (nú Engiteigur 19), Reykjavík
Flutt: 1993 að Brunnstíg 5, nú Nýlendugata 26, Reykjavík

Saga:

Árið 1928 var hús Sveins Þórðarsonar virt til brunabóta. Þá var húsið sagt standa við Laugaveg. Síðan var heimilisfangið mjög á reiki og húsið ýmist sagt standa við Sigtún, Engjaveg, Reykjaveg, Þvottalaugaveg, Þvottalaugablett, Suðurlandsveg eða Suðurlandsbraut, en síðast var það sagt vera á Kirkjumýrabletti eða Kringlumýrarbletti 9. Húsið var ætíð nefnt Brúnstaðir og var eitt af mörgum erfðafestubýlum í Reykjavík. Það stóð þar sem nú er bílastæði við Engjateig 19.

Um hús Sveins, sem var tæpir 34 m² að grunnfleti, segir í virðingunni:

[Húsið] er nýtt íbúðarhús einlyft með risi, bygt úr bindingi, klætt utan borðum, pappa og járni á veggjum og þaki.
Í húsinu eru 2 íbúðarherbergi og eldhús. Alt þiljað innan með plægðum panelborðum og veggir íbúðarherbergjanna lagðir striga og maskínupappir og alt ýmist veggfóðrað eða málað.
Gólf er á loftbitum og þar uppi er geymsla.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar 1928 til 1930. Aðfnr. 744.

Árið 1950 sótti þáverandi eigandi hússins, Ingimundur Gíslason (1905-1978), um að fá að stækka húsið með viðbyggingu, en beiðninni var synjað í tvígang. „Ingimundur gafst ekki upp og að lokum var viðbyggingin samþykkt. Nýja viðbyggingin var virt 1956 og var hún úr timbri og múrhúðuð að utan. Hún var 60 fermetrar.“2Páll V. Bjarnason, Helga Maureen Gylfadóttir, Anna Lísa Guðmundsdóttir og Jóna Kristín Ámundadóttir (2003). Mýrargötusvæði. Húsakönnun og fornleifaskráning, bls. 67. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 98.

Ekki virðist húsbyggjandinn hafa búið í húsi sínu, en þar eru ýmsir aðrir skráðir til heimilis.

Það var svo árið 1936 sem hjónin Ingimundur Gíslason og Guðrún Þorsteinsdóttir (1906-1985) hófu þar búskap og bjó Guðrún þar til dauðadags árið 1985, en mann sinn missti hún árið 1978.3Gísli G. Auðunsson (1978, 23. desember). Ingimundur Gíslason Brúnstöðum – Minning. Morgunblaðið, 65. árg., 295. tbl., bls. 36; Gísli G. Auðunsson (1985, 28. febrúar). Minning: Guðrún Þorsteinsdóttir, Brúnstöðum. Morgunblaðið, 72. árg., 49. tbl., bls. 47

Fyrstu 10 árin stundaði Ingimundur ýmsa vinnu með búskapnum, en frá 1946 vann hann eingöngu við búskapinn. Fyrst var um blandaðan búskap að ræða, en síðar fór Ingimundur eingöngu yfir í svína- og hænsnabúskap. Hesta átti hann þó alltaf, hafði yndi af hestum og stundaði hestamennsku til síðasta dags, þó annar búskapur væri aflagður. Ingimundi búnaðist vel, hann var útsjónarsamur og duglegur og ekki spillti lífsförunauturinn, þáttur Guðrúnar var þar engu minni. Á tímabili var bú hans eitt stærsta svínabú landsins.4Gísli G. Auðunsson (1978, 23. desember).

Nýlendugata 26 í október 2023. Ljósm.: Höfundur.

Árið 1985 var unnið að skipulagi fyrir Laugardalinn, m.a. þar sem land Brúnstaða var. Þar kemur fram að fyrirhugað sé að Reykjavíkurborg leysi landið til sín. Það var þó ekki fyrr en árið 1993 að Brúnstaðir voru fluttir á lóðina sem nú er númer 26 við Nýlendugötu (var áður Brunnstígur 5).5Borgarskipulag Reykjavíkur. Sigtúnsreitur. Deiliskipulagstillaga. Í húsakönnun sem gerð var á Mýrargötusvæðinu árið 2003 segir m.a.:

Þegar húsið var komið á lóðina var það tilbúið undir tréverk. Í því er kjallari, hæð og ris. Það er bárujárnsklætt forskalað timburhús og járnklætt á hefðbundinn íslenskan máta. Í því eru nýsmíðaðir danskir gluggar. Eldhúshluti er ný viðbygging. Bíslag að norðanverðu. Árið 1993 er samþykktur rekstur leikskóla í húsinu. Árið 2000 er samþykkt að breyta leikskóla í einbýlishús.6Páll V. Bjarnason, Helga Maureen Gylfadóttir, Anna Lísa Guðmundsdóttir og Jóna Kristín Ámundadóttir (2003), bls. 67

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. febrúar, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. febrúar, 2024