Verslun KEA, Hrísey. 1935-1940. Ljósm.: Gunnlaugur P. Kristinsson. Sarpur.is. Mynd nr. KEA-6230.
Verslun KEA, Hrísey. 1935-1940. Ljósm.: Gunnlaugur P. Kristinsson. Sarpur.is. Mynd nr. KEA-6230.

Norðurvegur 3, hús Hákarla-Jörundar, Hrísey

Heiti: Syðstabæjarhús - Gamla Syðstabæjarhús - Kaupangur - Hús Hákarla Jörundar
Byggingarár: 1884-1886
Fyrsti eigandi: Jörundur Jónsson
Aðrir eigendur:
1888: Margrét Guðmundsdóttir
Upphafleg staðsetning: Í landi Syðstabæjar í Hrísey
Flutt: 1917 að Norðurvegi 3, Hrísey
Hvernig flutt: Dregið á kviktrjám
Norðurvegur 3, hús Hákarla-Jörundar, Hrísey

Norðurvegur 3, Hrísey, 1964-1966. Ljósm.: Gunnlaugur P. Kristinsson. Sarpur.is. Mynd nr. KEA-2249.

Hákarla jör

Saga:

Hákarla Jörundur (f. 1826) byggði þetta hús í landi Syðstabæjar í Hrísey á árunum 1884 til 1886. Hann naut þó hússins ekki lengi því hann lést árið 1888. Hákarla Jörundur flutti ásamt fyrri konu sinni, Svanhildi Jónsdóttur, til Hríseyjar árið 1862. Hann stundaði hákarlaveiðar og hafði mikil umsvif í Hrísey. Má segja að þorpið í Hrísey hafi myndast í kringum Syðstabæ og rekstur Hákarla Jörundar.

Árið 1884 hófst Jörundur handa við að byggja nýtt hús fyrir fjölskyldu sína, sem orðin var ærið stór, Jörundur eignaðist 15 börn með tveimur konur og ættleiddi auk þess barn seinni konu sinnar, Margrétar Guðmundsdóttur. Um það leyti sem Jörundur var að huga að nýbyggingu gerði afspyrnurok og 19 skip fórust við Hrísey, flest norsk síldarskip. Þar á meðal strönduðu skipin Skjold og Norden frá Haugasundi. Jörundur keypti timbur úr flökunum og nýtti í byggingu hússins og má segja að mestu hluti innviða hússins sé kominn úr þessum skipum. Um smíði hússins sá Jóhann Bessason frá Skarði í Dalsmynni.

Tveimur árum eftir að Jörundur lést giftist Margrét ekkja hans Jóhannesi Davíðssyni. Árið 1916 hófu Svanhildur dóttir Jörundar og maður hennar Páll Bergsson búskap í húsinu.1Ásgeir Halldórsson (1995, 30. desember). Saga Gamla Syðstabæjarhússins í Hrísey. Hluti af greinargerð og áætlun Hjörleifs Stefánssonar um endurbætur. Verknr. 1197 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Akureyri (2009, 1. desember). Hús Hákarla Jörundar afhent Akureyrarbæ. Sótt 3. ágúst 2010 af http://www.akureyri.is/frettir/nr/13741.

Á árunum 1917 til 1919 var byggt nýtt steinsteypt íbúðarhús í Syðstabæ (Hólabraut 1) á hólnum sem gamla timburhúsið stóð. Til að rýma til fyrir nýja húsinu var gamla húsið flutt niður fyrir brekkuna. Fékk gamla húsið þá nafnið Gamla Syðstabæjarhúsið, en það stóð sunnan við núverandi hússtæði og náði heldur lengra til austurs en núverandi hús.2Orri Vésteinsson (1999). Fornleifaskráning í Eyjafirði XIII. Fornleifar í Hrísey, bls. 30. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands, skýrsla FS071-9061.

Um veturinn 1917 var Syðstabæjarhúsið tekið upp af grunni sínum og dregið á kviktrjám niður brekkuna af Syðstabæjarhólnum á þann stað sem það stendur nú. Verk þetta var framkvæmt undir stjórn Jóns Sigurðssonar frá Hellulandi í Hrísey, en Jón var þá nýkominn frá vélfræðinámi í Þýskalandi. Hefir þetta verið stórvirki á þessum tíma og dáðust menn almennt að þessari framkvæmd. Fyrst eftir að húsið var flutt niður af hólnum var það fest niður á staura, nokkru ofar en það nú stendur. Kjallarinn mun ekki hafa verið steyptur undir húsið fyrr en 1919-1920.3Ásgeir Halldórsson (1995, 30. desember), bls. 33.

Páll Bergsson hóf verslunarrekstur í suðurenda miðhæðar hússins og var þar rekin verslun til ársins 1951 þegar Kaupfélag Eyfirðinga eignaðist húsið og var húsið eftir það notað sem vörugeymsla. Þess vegna hefur húsið líklega einnig verið kallað Kaupangur um tíma. Sumarið 1955 var Gamla Syðstabæjarhús múrhúðað að utan en 1. desember 2009 var húsið afhent Akureyrarbæ til eignar og umsjónar eftir endurbætur á húsinu sem tekið höfðu 10 ár þar sem húsið var fært til upprunalegs útlits.4Ásgeir Halldórsson (1995, 30. desember); Akureyri (2009, 1. desember).

Húsinu er lýst þannig á vef Húsafriðunarnefndar:

Syðstabæjarhús er einlyft portbyggt timburhús með risþaki, 12,65 m að lengd og 6,40 m á breidd. Húsið stendur á steinsteyptri undirstöðu. Miðjukvistur með risþaki er upp af framhlið hússins. Við miðja bakhlið er bakdyraskúr, 4,6 m að lengd og 4,73 m á breidd, á steinsteyptum sökkli og á honum lágt risþak. Framhlið kjallara er hraunuð en aðrar hliðar sléttmúraðar. Veggir eru klæddir listaþili. Á húsinu eru 12 sexrúðu gluggar með miðpósti; sjö á vesturhlið þar af tveir á kvisti, einn á bakhlið og tveir á hvorum gafli. Tveir gluggar sömu gerðar en minni eru á gaflhyrnu sunnan megin á húsinu og einn að norðanverðu. Yfir gluggunum er brík strikuð á neðri brún og vatnsbretti að ofan. Á gaflhyrnu sunnan megin eru að auki tveir tveggja rúðu gluggar en yfir þeim er vatnsbretti. Á framhlið kjallara eru fjórir sex rúðu gluggar með miðpósti og dyr fyrir miðju með vængjahurðum. Aðaldyr hússins eru á suðurgafli og á bakdyraskúr eru dyr á hvorri hlið og fjórir einnar rúðu gluggar á gafli. Þök eru klædd bárujárni og á bakdyraskúr eru tveir þakgluggar.5Minjastofnun Íslands (ódags.). Friðlýst hús. Gamla Syðstabæjarhúsið, Hrísey.

 

Friðlýsing:
Friðað af menntamálaráðherra 22. maí 2003 samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001 að tillögu Húsafriðunarnefndar. Friðun tekur til ytra borðs.6Minjastofnun Íslands (ódags.). Friðlýst hús. Gamla Syðstabæjarhúsið, Hrísey.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 28. desember, 2023

Heimildaskrá

  • 1
    Ásgeir Halldórsson (1995, 30. desember). Saga Gamla Syðstabæjarhússins í Hrísey. Hluti af greinargerð og áætlun Hjörleifs Stefánssonar um endurbætur. Verknr. 1197 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Akureyri (2009, 1. desember). Hús Hákarla Jörundar afhent Akureyrarbæ. Sótt 3. ágúst 2010 af http://www.akureyri.is/frettir/nr/13741.
  • 2
    Orri Vésteinsson (1999). Fornleifaskráning í Eyjafirði XIII. Fornleifar í Hrísey, bls. 30. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands, skýrsla FS071-9061.
  • 3
    Ásgeir Halldórsson (1995, 30. desember), bls. 33.
  • 4
    Ásgeir Halldórsson (1995, 30. desember); Akureyri (2009, 1. desember).
  • 5
    Minjastofnun Íslands (ódags.). Friðlýst hús. Gamla Syðstabæjarhúsið, Hrísey.
  • 6

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 28. desember, 2023