Tjarnargata 6 í Keflavík. Ljósm.: Keflavík og Keflvíkingar. Sótt 22. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10222810048653927&set=pcb.10157910151387213.
Tjarnargata 6 í Keflavík. Ljósm.: Keflavík og Keflvíkingar. Sótt 22. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10222810048653927&set=pcb.10157910151387213.

Norðfjörðsgata 6, Keflavík, Reykjanesbæ

Byggingarár: 1916
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Ársæll Þorsteinsson og Jónína Einarsdóttir
Aðrir eigendur:
1928: María Guðmundsdóttir og Einar Guðberg Sigurðsson
Upphafleg staðsetning: Tjarnargata 6, Keflavík, Reykjanesbæ
Flutt: 2001 að Norðfjörðsgötu 6, Keflavík, Reykjanesbæ
Hvernig flutt: Í heilu lagi
2

Gula húsið næst okkur á myndinni er Tjarnargata 6. Ljósm. Friðrik Friðriksson. Keflavík og Keflvíkingar.

3
1

Tjarnargata 6 í Keflavík á leið að nýju heimilisfangi. Ljósm.: Einar Hörður Þórðarson. Keflavík og Keflvíkingar. 

Norðfjörðsgata 6 (2)

Norðsfjörðsgata 6, Keflavík, í ágúst 2025. Ljósm.: Höfundur.

Saga:

Þegar gert var fasteignamat í Keflavíkurhreppi árið 1930 var m.a. metið íbúðarhús úr timbri við Tjarnargötu 6 í Keflavík í eigu Ársæls Þorsteinssonar (1888-1951). Í gögnum matsins kemur m.a. fram að húsið húsið hafi verið fullgert árið 1916. Það er járnvarið að utan með risi og inngönguskúr. Grunnflötur hússins var um 41 fermetra og við það bættist bíslagið sem var 4 fermetrar. Í húsinu er fremur kalt en rakalaust. Vatnsleiðsla var í húsinu en ekki salerni. Rafmagn var í húsinu. Ein íbúð var í húsinu með fimm herbergjum. Þar var ein eldavél og ofnar. Lóðin var afmörkuð með timbur- og vírgirðingu1Gögn í skjalasafni Reykjanesbæjar.

Þegar manntal var tekið í Keflavíkurhreppi árið 1920 kemur fram að þá bjó Ársæll í húsinu ásamt eiginkonu sinni Jónínu Einarsdóttur (1893-1970), þremur ungum börnum þeirra og vetrarstúlku sem var hjá þeim. Auk þess bjuggu önnur hjón í húsinu. Í manntalinu kemur fram að Ársæll sé sjómaður, en á leið á sjúkrahús í Kaupmannahöfn.2Þjóðskjalasafn Íslands. Manntal 1920. Sótt 22. mars 2025 af https://manntal.is/.

Árið 1928 fluttu þau María Guðmundsdóttir (1899-1983) og Einar Guðberg Sigurðsson (1892-1947) í húsið við Tjarnargötu 6. María var alþekkt fyrir líknarstörf sín í Keflavík og sinnti m.a. sjúklingum í herbergi með þremur rúmum á efri hæð hússins við Tjarnargötu. Einar var í fararbroddi þeirra sem vildu að sjúkrahús yrði reist í Keflavík og lagði m.a. til land undir sjúkrahúsið. Hann drukknaði árið 1947 en áfram hélt María að sinna margskonar félags- og líknarstörfum, var í sóknarnefnd, aflaði fjár til sjúkrahússins auk þess sem hún vann hjá kaupfélaginu um árabil, fyrst við skúringar og síðan í Alþýðubrauðgerðinni.3Einar Guðberg (1984, 1. janúar). Minning. María Guðmundsdóttir. Faxi, 44. árg., 1. tbl., bls. 28-29; Guðbergur Reynisson (2021, 14. júlí). Keflavík og Keflvíkingar. Sótt 22. mars 2025 af https://www.facebook.com/groups/keflavik/posts/10157910151387213/.

Þegar til stóð að reisa nýbyggingu við Tjarnargötu 6 árið 2001 þurfti húsið að víkja. Þá var það flutt að Norðfjörðsgötu 6 í Keflavík og gerðar á því endurbætur sem Magnús Rafn Guðmannsson verkfræðingur hannaði.4Kanon arkitektar ehf. (2012, febrúar). Reykjanesbær. Byggða- og húsakönnun. Áfangaskýrsla, bls. 44. Sótt 22. mars 2025 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_132.pdf.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025