Miðhús, í landi Klúku, Bjarnarfirði, Kaldrananeshreppi
Miðhús í Reykhólasveit árið 1970. Ljósm.: Þór Magnússon. Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. ÞM-6119-16. Sótt 26. febrúar 2025 af https://www.sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=750047.
Miðhús í Reykhólasveit árið 1970. Ljósm.: Þór Magnússon. Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. ÞM-6119-15. Sótt 26. febrúar 2025 af https://www.sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=750046.
Saga:
Í byrjun árs 2010 barst Húsafriðunarnefnd ósk um leyfi til að flytja gamla íbúðarhúsið á Miðhúsum í Reykhólasveit norður að Svanshól í Bjarnarfirði í Kaldrananeshreppi. Þá var Ólína Kristín Jónsdóttir (1931-2020) eigandi hússins en hafði gefið ungum hjónum, Hlyn Gunnarssyni og Viktoríu Rán Ólafsdóttur, það til varðveislu með því skilyrði að það yrði flutt frá jörðinni og endurbyggt á nýjum stað. Stefnt var að því að flytja húsið sem fyrst meðan frost væri í jörðu og Bjarnarfjarðarháls fær flutningabíl.
Húsafriðunarnefnd samþykkti flutning þennan og lét mæla húsið upp, teikna og ljósmynda áður en af flutningi varð.1Gögn um Miðhús í gagnasafni Húsafriðunarnefndar.
Húsið á Miðhúsum var reist af Oddi Jónssyni (1859-1920) lækni um 1913. Eiginkona hans var Finnboga Árnadóttir (1886-1941). Heimili þeirra hjóna var mannmargt og gestakomur tíðar og gegndi þá Finnboga oft störfum hjúkrunarkonu. Menningarbragur þótti ríkja á heimilinu og læknirinn viljugur að deila því sem hann las um í bókum, blöðum og erlendum tímaritum með heimafólki sínu og gestum. Margir sóttu því undirbúningsmenntun sína til hans áður en farið var til frekara náms. Þegar Oddur lést árið 1920 hætti Finnboga bráðlega búskap og flutti með dætur sínar þangað sem þær gátu notið skólagöngu og hún fengið vinnu.2Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. ÞM-6119-15. Sótt 25. febrúar 2025 af https://www.sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=750046; Skráningarsíða Héraðsskjalasafns Austur Húnavatnssýslu. Oddur Jónsson (1859-1920) héraðslæknir Miðhúsum Reykhólahreppi. Sótt 25. febrúar 2025 af https://atom.hunabyggd.is/index.php/oddur-j-nsson-1859-1920-h-ra-slaeknir-mi-h-sum-reykh-lahreppi-bar-fr-rormstungu; Guðrún Oddsdóttir – Minning (1987, 29. apríl). Morgunblaðið, 75. árg., 95. tbl., bls. 44. Sótt 25. febrúar 2025 af https://timarit.is/page/1654734?iabr=on.
Árið 1939 fluttu hjónin Ingibjörg Guðrún Árnadóttir (1897-1991) og Jón Daðason (1899-1977) að Miðhúsum. Þau keyptu síðan jörðina árið 1946. Ólína Kristín, dóttir þeirra, tók við búsforráðum á Miðhúsum árið 1956, ásamt eiginmanni sínum Sveini Guðmundsson (1923-2005). Tveimur árum síðar fluttu þau í nýtt íbúðarhús á jörðinni og eftir það var ekki búið í gamla bænum.3Minning: Ólína Kristín Jónsdóttir (2020, 18. ágúst). Morgunblaðið, 108. árg., 193. tbl., bls. 19. Sótt 25. febrúar 2025 af https://timarit.is/page/7344497?iabr=on; Gögn um Miðhús í gagnasafni Húsafriðunarnefndar. Sveinn hafði hugmyndir um að koma upp vísi að byggðasafni í gamla húsinu, en af því varð ekki.4Á Reykhólum ætti að rísa hressingarheimili (1972, 14. september). Morgunblaðið, 59. árg., 208. tbl., bls. 12. Sótt 25. febrúar 2025 af https://timarit.is/page/1435118?iabr=on.
Eftir að húsið var flutt í Bjarnarfjörð árið 2010 stóð það á hlaðinu á Svanshól í Bjarnarfirði í sex ár, þar sem til stóð að endurbyggja það. Af þeim framkvæmdum varð þó ekki. Hlynur og Viktoría Rán létu húsið af hendi til nýrra eigenda í því ástandi sem það var árið 2015. Árið eftir flutti nýi eigandinn það á spildu í landi Klúku í Bjarnarfirði, þar sem það stendur enn (2025) en lítið sem ekkert hefur þokast við endurbyggingu þess.5Hlynur Gunnarsson (2025, 25. febrúar). Munnleg heimild.
Leitarorð: Bjarnarfjörður – Strandir
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. júlí, 2025
Heimildaskrá
- 1Gögn um Miðhús í gagnasafni Húsafriðunarnefndar.
- 2Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. ÞM-6119-15. Sótt 25. febrúar 2025 af https://www.sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=750046; Skráningarsíða Héraðsskjalasafns Austur Húnavatnssýslu. Oddur Jónsson (1859-1920) héraðslæknir Miðhúsum Reykhólahreppi. Sótt 25. febrúar 2025 af https://atom.hunabyggd.is/index.php/oddur-j-nsson-1859-1920-h-ra-slaeknir-mi-h-sum-reykh-lahreppi-bar-fr-rormstungu; Guðrún Oddsdóttir – Minning (1987, 29. apríl). Morgunblaðið, 75. árg., 95. tbl., bls. 44. Sótt 25. febrúar 2025 af https://timarit.is/page/1654734?iabr=on.
- 3Minning: Ólína Kristín Jónsdóttir (2020, 18. ágúst). Morgunblaðið, 108. árg., 193. tbl., bls. 19. Sótt 25. febrúar 2025 af https://timarit.is/page/7344497?iabr=on; Gögn um Miðhús í gagnasafni Húsafriðunarnefndar.
- 4Á Reykhólum ætti að rísa hressingarheimili (1972, 14. september). Morgunblaðið, 59. árg., 208. tbl., bls. 12. Sótt 25. febrúar 2025 af https://timarit.is/page/1435118?iabr=on.
- 5Hlynur Gunnarsson (2025, 25. febrúar). Munnleg heimild.
Deila færslu
Síðast uppfært 1. júlí, 2025



