Loftmynd af Ja.is þar sem lóðin númer 33 við Hlíðargötu á Fáskrúðsfirði er fyrir miðju.
Loftmynd af Ja.is þar sem lóðin númer 33 við Hlíðargötu á Fáskrúðsfirði er fyrir miðju.

Miðbær, Hlíðargötu 33, Fáskrúðsfirði

Heiti: Skúr – Tunga - Miðbær
Byggingarár: 1907
Rifið: < 1940
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Stöðvarhreppur
Upphafleg staðsetning:

Kirkjubólsland, Stöðvarfirði

Saga:

[Íbúðarhúsið] Skúr kemur fyrst fram í sóknarmanntali árið 1902 en þá eru hjónin Kristján Magnússon [1863-1937] og Guðrún Hávarðardóttir [1874-1964] skráð þar búandi ásamt börnum sínum. Þá höfðu þau verið skráð í nokkur ár í húsmennsku á Kirkjubóli. … Árið 1907 var húsið Skúr í svo lélegu ástandi að það var rifið og byggði Stöðvarhreppur lítið hús undir fjölskylduna í Kirkjubólslandi sem fékk nafnið Tunga. Í daglegu tali manna var húsið hins vegar áfram kallað Skúr og íbúarnir kenndir við það s.s. Kristján í Skúr og Garðar [Kristjánsson, 1909-1964] í Skúr. Árið 1921 þá tók hreppurinn lán til þess að láta taka Skúr (Tungu) niður og endurbyggja á Fáskrúðsfirði, þangað sem fjölskyldan flutti. Stöðvarhreppur átti hins vegar húsið áfram og bar áfram ábyrgð á uppihaldi fjölskyldunnar. Húsið fékk nafnið Miðbær (gamli), sem stóð þar til ársins 1940 að það var rifið og Miðbær (nýi) byggður.1Hlynur Ármannsson. Saga Stöðvarfjarðar. Grundarstekkur – Skúr. Sótt 13. apríl 2026 af Saga Stöðvarfjarðar | Facebook.

Kristján, sem vann við sjósókn og smíðar, bjó í húsinu til dauðadags, en síðustu árin  var Garðar sonur hans skráður sem húsbóndi og var hann og fjölskylda hans ásamt Guðrúnu móður hans síðast skráð í húsinu árið 1937, sama ár og Kristján lést.2Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmannatöl; Íslendingabók.

Í fasteignamati árið 1930 var húsið talið óvandað.

Miðbær stóð þar sem nú er lóð númer 33 við Hlíðargötu á Fáskrúðsfirði, líklega spölkorn neðan við götuna, en nýi Miðbær er einnig horfinn af sjónarsviðinu.3Kristín Ágústsdóttir (2005, október). Byggingarár húsa á Búðum í Fáskrúðsfirði, bls. 17 og 24. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa Austurlands; Guðrún Gunnarsdóttir (2016, 26. júlí). Húsanöfn á Fáskrúðsfirði. Sótt 13. apríl 2026 af https://faskhus.wordpress.com/hlidargata/.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. apríl, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. apríl, 2026