Merkurgata 9b, Hafnarfirði
Merkurgata 9b, Hafnarfirði, árið 2004. Ljósm.: Michelle Sonia Horne. Sótt 4. júní 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=319195543051710&set=pcb.319195899718341&locale=is_IS.
Merkurgata 9b, Hafnarfirði, líklega árið 2021. Sótt 4. júní 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=319195696385028&set=pcb.319195899718341&locale=is_IS.
Saga:
Um Klofa segir Magnús Jónsson í bók sinni Bær í byrjun aldar:
[Þar sem Klofi stóð] … var löngu síðar kolaport Bæjarútgerðarinnar, með klettum umhverfis. Þarna bjuggu hjónin Jónas Grímsson [1854-1925] og Vilborg Oddsdóttir [1845-1928].
Hann var fæddur á þessum stað 1854, en hún 1945 í Keflavík. Þaðan fluttist hún til Hafnarfjarðar 1878, og giftust þau 1882. Hjá þeim var Vilmundur, einkabarn þeirra, sem drukknaði þegr „Geir“ fórst 1912.
Þarna var einnig Þuríður Sveinsdóttir [1828-1908]. …
Vatnsburður og önnur púlsvinna varð æfistarf Þuríðar.
Hún dó 1908. Jónas Grímsson dó 1925 [í Klofa], en Vilborg 1928.1Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður. Önnur útgáfa, bls. 109. [Hafnarfjörður:] Höfundur.
Í manntali 1910 kemur fram að Jónas stundaði sjómennsku á þilskipi, en tíu árum síðar er hann sagður vinna eyrarvinnu við fisk, grjót o.fl.2Manntal 1910 og Manntal 1920. Sótt 4. júní 2024 af https://manntal.is/.
Um húsið sem nú stendur við Merkurgötu 9b í Hafnarfirði segir í húsakönnun í Vesturbæ Hafnarfjarðar, sem gerð var árið 2021:
Þetta hús, stóð áður á Klofalóðinni sem væri nú nokkurn vegin á móts við Vesturgötu 14. Klofi var timburbær og vegna skipulagsbreytinga á Klofalóðinni var hann fluttur eða öllu heldur timbrið, á núverandi stað um 1902. Í elstu brunavirðingu af húsinu er því lýst svo: a) Húsið er einlyft með risi 1,50. Því er skipt niðri í 2 herbergi og eldhús, allt klætt innan með panel og málað, notað til íbúðar, uppi (risið) notað til geymslu. 5 gluggar á húsinu, 1 eldavél og 1 ofn í húsinu. b) Við norðurgafl hússins er skúr með vatnshallaþaki, klæddur innan með panel, notaður til inngöngu í húsið. Stærð: L. 2,10m. B. 1,40m. H. 2,20m. 1 gluggi. Allt virt á 3890kr.
Hefur húsið staðið nánast óbreytt frá upphafi að utan og á sama grunni. Árið 2006 var sótt um breytingu samkvæmt tillöguteikningu Gests Halldórssonar. Breytingin var lágreist viðbygging á tvo vegu við Merkurgötu 9b. Var tillögu þessari synjað, teikningin þótti ekki sannfærandi þar sem viðbyggingin var ekki hönnuð á forsendum hússins. Árið 2007 var enn sótt um breytingu sem fór á sama veg eins og nokkrar munnlegar fyrirspurnir um stækkun á húsinu.
Árið 2020 samþykktu bæði Minjastofnun og Skipulagssvið Hafnarfjarðar breytingu á húsinu eftir teikningum Páls V. Bjarnasonar. Felur breytingin í sér að húsið er lengt, þakið hækkað, kvistir á báðar þakhliðar og svalir á þakgafli.3Gláma – Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 58. Hafnarfirði: Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.
Í samantekt Byggðasafns Hafnarfjarðar, dags. 13. ágúst 2019, um Merkurgötu 9b, er eftirfarandi lýsing Maríu Kristjánsdóttur (1885-1952) á Klofa, en hún bjó sem barn í næsta húsi við Klofa:
Bærinn Klofi stóð því sem næst þar sem nú eru tröppurnar sem liggja upp að skrifstofum Bæjarútgerðarinnar. Neðan til við klöppina sem bærinn stóð á lá gata vestur í Garðahverfi. Austan til við bæinn var garður milli Klofalóðar og lóðar Jóns Kaupmanns Bjarnasonar, en að vestan var lóð Árna Árnasonar.
Klofi var lítill timburbær, það var baðstofubygging og sneri glugginn fram á fjörðinn. Að austanverðu við efri enda bæjarins var skúrbygging og var gegnið inn í bæinn þar. Þegar inn var komið úr skúrnum, var komið í eldhúsið. Þar var gluggi á þakinu og sneri í vestur, en úr eldhúsinu var gegnið í baðstofuna. Baðstofan mun hafa verið eitt stafgólf eða á annað, en eldhúsið var eitt stafgólf. Tvö rúm voru í baðstofunni fram við gafl hvort á móti örðu, en lítið borð á milli undir glugganum. Rokkur stóð stundum aftan til við annað rúmið. Aftan til við hitt rúmið stóð kommóða af venjulegri gerð en ákaflega gömul. Timburgólf (skarsúð), en síðar mun hafa verið klætt innan á sperrurnar með „panel“ Í eldhúsinu var lítil eldavél af þeirri gerð er kallaðist „kamína“. Hún stóð við þilið milli eldhúss og baðstofu. Á vetrum var hún flutt inn í baðstofuna, að hún hitaði upp jafnframt því sem eldað var á henni. Torfþak var á bænum en framþil af tré pappaklætt, en áður munu hafa verið kampur er náði upp að glugga og jafnvel mun hafa verið kampur upp úr og djúp gluggatóft. Hliðarútveggir voru hlaðnir úr torfi og grjóti, en lágir. Rörpípa lá upp frá eldavélinni upp úr þaki. Úr eldhúsinu í Klofa var gengið inn lítinn kofa, þar bjó Klofa Þuríður. Kofi þessi var moldarkofi þiljaður að innan. Inni var aðeins rúm kerlingar og lítill skápur. Gluggi var á kofanum og sneri í vestur með fjórum rúðum. Þuríður var Sveinsdóttir frá Strýtu og var orðin gömul er hér var komið.
Síðast bjuggu í Klofa Jónas Grímsson og kona hans Vilborg Oddsdóttir, með syni sínum Vilmundi. Þó bærinn væri ekki stór og ekki mikið búinn húsgöngum, var þó allt með stökum myndarbrag, bæði út og inni og hreinlæti framúrskarandi. Átti þar mestan þátt í Vilborg húsfreyja. Bærinn var allur hvítþveginn og hreinn hvenær sem að var komið. Klofi átti litla lóð. Smágarður var þar og í honum 3 rófnabeð, en grasblettur lítill vestan bæjarins. Neðan undan bænum var vör og kölluð Klofavör. Austast í henni var bryggja. Á mölinni var stundum þurrkaður fiskur.4Byggðasafn Hafnarfjarðar (2019, 13. ágúst). Samantekt um Merkurgötu 9b, Hafnarfirði. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Síðan segir í samantekt byggðasafnsins:
Lýsingin hér að ofan lýsir timburbæ með hlöðnum útveggjum úr torfi og grjóti. Að öllum líkindum hefur allt timbur úr bænum verið nýtt í nýja húsið, endurbyggt á núverandi stað Merkurgötu 9b.
Heimildir um Merkurgötu 9b frá því það var reist um aldamótin síðustu eru heldur fátæklegar. Hvorki byggingarsamþykkt né teikningar eru að finna af húsinu. Hafnarfjarðarbær lét gera fasteignamat á húsum bæjarins árið 1916 en þá var Klofi, Vesturhverfi 3. Eigandinn Jónas Grímsson þurrabúðarmaður notaði eignina sjálfur ásamt því að leigja af húsinu sem er lýst þannig:
„Íbúðarhús stærð: 5,80×5,20m hæð 2,90m einlyft með risi, byggt úr timbri, járnvarið. Skipt í: 2 herbergi og eldhús, þiljað panel. Inngönguskúr stærð: 2,20×1,40m hæð 2,20m með vatnshallaþaki. Brunavirðing Brunabótafélags Íslands gerð í september 1917 og húsinu lýst eins og í fasteignamatinu, útveggir úr timbri, járnvarðir og enginn kjallari skráður.
Ekki virðist hafa verið gerðar fleiri brunavirðingar af húsinu en brunavirðingar voru jafnan gerðar ef einhverjar breytingar voru gerðar á húsum.
Óljóst er hvenær kjallara var komið fyrir undir húsið, engar breytingar eru skráðar í bókum byggingarnefndar Hafnarfjarðar frá því skráningar hófust 1916. Húsið hefur staðið nánast óbreytt frá upphafi.
Merkurgata 9b var reist um 1900, á þeim árum var almennt að hús voru timburklædd en þó varð það algengara að hús voru klædd bárujárni þar sem það var oftast ódýrara en timbur, dró úr eldhættu og gerðu húsið vatnsþétt.
Þegar húsið fékk númer við götu var það:
Vesturhverfi 3, um 1930 er því breytt í Vörðustíg 7b og 1985 verður það Merkurgata 9b.5Byggðasafn Hafnarfjarðar (2019, 13. ágúst). Samantekt um Merkurgötu 9b, Hafnarfirði. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Eins og fram hefur komið voru gerðar miklar breytingar á húsinu árið 2020. Var þáverandi inngönguskúr við vesturgafl hússins fjarlægður, húsið lengt til vesturs og gerðar svalir á nýjan vesturgafl þess. Auk þess var ris hækkað og gerðir kvistir á norður- og suðurhliðar.
Í umsögn Minjastofnunar Íslands um breytingar á húsinu kemur fram að á lóð þess eru tvö garðlög sem njóta friðunar og ekki er heimilt að raska.6Umsögn Minjastofnunar Íslands um breytingar á Merkurgötu 9b, Hafnarfirði, dags. 2. desember 2019. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands
Á Facebook-síðu hússins má sjá margar ljósmyndir af vinnu við breytingar á húsinu.
Leitarorð: Hafnarfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. júní, 2024
Heimildaskrá
- 1Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður. Önnur útgáfa, bls. 109. [Hafnarfjörður:] Höfundur.
- 2Manntal 1910 og Manntal 1920. Sótt 4. júní 2024 af https://manntal.is/.
- 3Gláma – Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 58. Hafnarfirði: Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.
- 4Byggðasafn Hafnarfjarðar (2019, 13. ágúst). Samantekt um Merkurgötu 9b, Hafnarfirði. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
- 5Byggðasafn Hafnarfjarðar (2019, 13. ágúst). Samantekt um Merkurgötu 9b, Hafnarfirði. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
- 6Umsögn Minjastofnunar Íslands um breytingar á Merkurgötu 9b, Hafnarfirði, dags. 2. desember 2019. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands
Deila færslu
Síðast uppfært 4. júní, 2024


