Kort af svæðinu í Kaplaskjóli þar sem Melbær stóð og var flutt milli lóð. Kort: Ja.is.
Kort af svæðinu í Kaplaskjóli þar sem Melbær stóð og var flutt milli lóð. Kort: Ja.is.

Melbær, Nesvegur 57, Reykjavík

Heiti: Melbær
Byggingarár: 1912
Rifið: ≈1975
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Árni Árnason
Aðrir eigendur:
1916: Guðrún Árnadóttir
Upphafleg staðsetning: Kaplaskjól - Sörlaskjól 80, Reykjavík
Flutt: 1926 að Nesvegi 57, Reykjavík

Saga:

Seint á 19. öld myndaðist byggð tómthúsbýla í Kaplaskóli í Reykjavík, en Kaplaskjól var láglent svæði við sjávarsíðuna þar sem Skjólin byggðust síðar. Þarna voru átta torfbæir í upphafi en sumum þeirra var síðar breytt í timburhús. Tómthúsbændur gerðu báta sína út frá Sveinsstaðavör.1Anna Lísa Guðmundsdóttir og Margrét Björk Magnúsdóttir (2022). Sörlaskjól. Fornleifaskrá, bls. 3-5. Reykjavík: Borgarsögusafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 2018.

Eitt þessara býla var Melbær, sem byggður var árið 1886 af Árna Árnasyni (1852-1916) tómthúsmanni. Þar bjó hann árið 1910 með Margréti Þórðardóttur (1849-1924) ráðskonu sinni, dóttur þeirra og þremur tökubörnum. Þegar Árni lést eignaðist Guðrún dóttir þeirra Margrétar (1883-1960) húsið.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1910. 3. hluti: Ingólfsstræti – Laugavegur. Kaplaskjól. Melbær. Sótt 20. febrúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1906-1910/1910/manntal-i-reykjavik-1910-3.-hluti.pdf; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1916. 3. hluti: Ingólfsstræti – Laugavegur. Kaplaskjól. Melbær. Sótt 20. febrúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1911-1920/1916/manntal-i-reykjavik-1916-3.-hluti.pdf.

Árið 1912 reif Árni gamla bæinn og reisti í staðinn nýtt timburhús lítið eitt norðaustar, þar sem nú er suðurhluti lóðarinnar Sörlaskjóls 80. Þar stóð húsið fram til 1926, en þá var það komið í eigu fyrirtækisins H. P. Duus sem flutti það norðar og lítið eitt austar, þangað sem húsið Nesvegur 57 er nú. Um leið reisti fyrirtækið fiskverkunarhús sunnar á sjávarkambinum, á svæði sem nú er neðan götunnar Sörlaskjóls (á móts við húsin númer 84 og 90). Húsinu Melbæ virðist hafa verið breytt í íveruhús fyrir fólk sem starfaði við fiskvinnsluna. Húsið stóð á lóðinni Nesvegi 57 til um 1970 þegar nýtt hús var reist þar.3Anna Lísa Guðmundsdóttir og Margrét Björk Magnúsdóttir (2022), bls. 7.

Þegar hið nýbyggða einlyfta timburhús Árna var virt í júlí 1912 kom eftirfararndi m.a. fram í brunavirðingu: Húsið var klætt utan með plægðum borðum, pappa, listur og járni þar yfir á veggjum og þaki. Í útveggi og milligólf var fyllt með sagspónum. Niðri voru þrjú íbúðarherbergi, eldhús og einn fastur skápur, sem allt var þiljað. Herbergin voru auk þess klædd með striga og pappír bæði á veggjum og loftum og allt málað. Þar var einn ofn og ein eldavél. Óinnréttaður kjallari með malargólfi var undir öllu húsinu. Húsið var með lágu risi. Við vesturgafl hússins var inngönguskúr með risi og kjallara. Heildargrunnflötur hússins með bíslaginu var rúmir 38 fermetrar.4Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 04-04-1911 til 20.05.1915. Aðfnr. 737. Brunav.nr. 306. Sótt 20. febrúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/737-bok-04-04-1911-til-20-05-1915-adfnr-737.pdf.

Þegar húsið var virt eftir að það hafði verið flutt árið 1926 sést að því hefur verið breytt og það sett á nýjan kjallara. Á aðalhæð hússins voru tvö íbúðarherbergi, hvort með 6 föstum rúmstæðum úr timbri. Kjallarinn var úr steinsteypu með steyptu gólfi og skilveggjum. Þar var borðsalur, eitt íbúðarherbergi og eldhús. Þiljur voru innan á útveggjum, en skilveggir voru sementssléttaðir og allir veggir ýmist veggfóðraðir eða málaðir.5Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 21-01-1926 til 10-01-1928. Aðfnr. 743. Brunav.nr. 306. Sótt 20. febrúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/743-bok-21-01-1926-til-10-01-1928-adfnr-743.pdf.

Í janúar 1975 kemur fram í Tímanum að borgarsjóður hafi keypt Melbæ í Kaplaskjóli, sem þá virðist vera nýtt sem geymsluhúsnæði.6Afsalsbréf (1975, 8. janúar). Tíminn. 5. tbl., bls. 13. Í kjölfarið hefur svo húsið verið rifið, en það hús sem nú er númer 57 við Nesveg er sagt byggt 1973 í fasteignaskrá.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 20. febrúar, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 20. febrúar, 2025