Lyngholt, Siglufirði
1929 að Hólavegi 5, Siglufirði
1981 yfir á Saurbæjarás, Siglufirði
Saga:
Þegar jörðin Hóll í Siglufirði fór í eyði 1928 var íbúðarhúsið sem þar stóð flutt út í Siglufjarðarþorp. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær húsið var byggt en í fasteignamati 1918 er íbúðarhúsið sagt vera timburhús með pappaþaki. Þá áttu þeir Einar Jónasson, Hóli, Njáll Jónasson, Hóli, Björn Jónasson, Siglufirði og Jósep Blöndal, Siglufirði, jörðina að jöfnu. Einar bjó á þremur hlutum jarðarinnar og Björn Jónasson hafði einn fjórða hluta til umráða. Stuttu síðar hóf Siglufjarðarbær rekstur kúabús á Hóli.1Ingólfur Kristjánsson (1968). Siglufjörður, bls. 83-84. Siglufirði: Siglufjarðarkaupstaaður og Sögufélag Siglufjarðar.
Gamla íbúðarhúsið var flutt á Hólaveg á Siglufirði og stóð þar sem Hólavegur liggur nú (2026) á milli húsanna númer 5 og 6. Húsið stóð á staurum fyrstu árin en síðan var steyptur manngengur kjallari undir það. Húsið lokaði götunni nokkurn veginn alveg, en undir það síðasta hafði þó myndast vegslóði upp fyrir það sem varð mikið forarsvað þegar rigndi. Af þessum sökum var húsið stundum kallað „Þrándur í Götu“.
Sturtuútbúnaðinn í húsinu var frumstæður, en virkaði engu að síður. Það var gúmmíslanga sem var tengd inn á heitt og kalt í annan endann með T-fittings, en hinn hékk neðan í gólfbita og var í rúmlega höfuðhæð. Undir honum hékk niðursuðudós sem búið var að gata botninn á og í gólfinu beint fyrir neðan var niðurfall.
Lengst af bjó Sigurjón Björnsson (1891-1966) skipstjóri í húsinu ásamt fjölskyldu sinni, en síðar leigðu ýmsar fjölskyldur húsið sem bráðabirgðahúsnæði.
Þegar ákveðið var að ráðast í að leggja Hólaveg þurfti húsið að víkja. Árið 1981 ákváðu hjónin Eysteinn Aðalsteinsson og Arnfinna Björnsdóttir að flytja húsið yfir á Saurbæjarás, á lóðina Lyngholt, sem er austan Siglufjarðar, fyrir sunnan Ráeyri. Erfitt var að komast að húsinu á Hólavegi með stórvirk tæki og var því brugðið á það ráð að saga húsið í tvennt, hífa hlutana á flutningabíl og flytja yfir á Ásinn þar sem steyptur grunnur beið þess. Þar stendur húsið enn þar sem auðséð er að hlúð er vel að því.2Ómar Geirsson (2026, 8. febrúar). Sótt 16. júlí 2026 af Siglfirðingar, fyrr og nú – Sögur og myndir. | „Rollur handteknar með lögregluvaldi…“ Ha.. | Facebook; Leó Ólason (2015, 14. apríl). Sótt 16. júlí 2026 af Facebook; Eysteinn Aðalsteinsson (2026, 15. júlí). Munnleg heimild.
Leitarorð: Siglufjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 29. júlí, 2026
Heimildaskrá
- 1Ingólfur Kristjánsson (1968). Siglufjörður, bls. 83-84. Siglufirði: Siglufjarðarkaupstaaður og Sögufélag Siglufjarðar. ↩︎
- 2Ómar Geirsson (2026, 8. febrúar). Sótt 16. júlí 2026 af Siglfirðingar, fyrr og nú – Sögur og myndir. | „Rollur handteknar með lögregluvaldi…“ Ha.. | Facebook; Leó Ólason (2015, 14. apríl). Sótt 16. júlí 2026 af Facebook; Eysteinn Aðalsteinsson (2026, 15. júlí). Munnleg heimild. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 29. júlí, 2026
