Lyngholt, árið 1987. Heimild: Víkurfréttir, 15. apríl 1987. 8. árg., 23. tbl., bls. 2. Sótt 1. mars 2025 af https://timarit.is/page/6742841?iabr=on.
Lyngholt, árið 1987. Heimild: Víkurfréttir, 15. apríl 1987. 8. árg., 23. tbl., bls. 2. Sótt 1. mars 2025 af https://timarit.is/page/6742841?iabr=on.

Lyngholt, Bergvegur 19, Keflavík, Reykjanesbæ

Heiti: Lyngholt
Byggingarár: ?
Rifið: 1923
Upphafleg notkun: Sumarbústaður
Fyrsti eigandi: ?
Aðrir eigendur:
≈ 1953: Pálmi Guðmundsson og Jófríður Jóna Jónsdóttir
1957-1962: Kristín Rut Jóhannsdóttir og Lárus Arnar Kristinsson
?: Guðlaugur Jónatansson
Upphafleg staðsetning: Vatnsendi, Kópavogi
Flutt: Um 1954 að Bergvegi 19, Keflavík, Reykjanesbæ
Lyngholt 3

Lyngholt, Bergvegi 19, Keflavík, líklega árið 2012. Ljósm.: Ingvar Vilhjálmsson. Sótt 1. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=3044429502208&set=gm.10150561721857213.

Lyngholt 2

Lyngholt, Bergvegi 19, Keflavík, líklega árið 2019. Ljósm.: Mars Þurý Kai. Sótt 1. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo?fbid=10217992093024603&set=gm.10155794492657213.

Saga:

Við Bergveg 19 í Keflavík, Reykjanesbæ, stóð hús sem nú hefur verið rifið.

Ekki er alveg ljóst hvar húsið stóð upphaflega, en í umræðu um húsið í hópnum Keflavík og Keflvíkingar á samfélagsmiðlinum Facebook kemur fram að það hafi verið byggt sem sumarbústaður við Vatnsenda í Kópavogi, en ekki er vitað hvenær.

Húsið var nefnt Lyngholt, en hvort nafnið flutti með húsinu eða var tekið upp á hinum nýja stað liggur ekki fyrir.

Samkvæmt fyrrnefndri umræðu voru það hjónin Pálmi Guðmundsson (f. 1929) og Jófríður Jóna Jónsdóttir (f. 1932) sem fluttu húsið á Bergið í Keflavík. Í nóvember 1953 skrifar Pálmi undir lóðarleigusamning við Keflavík hf. um lóðina og er þá skráður til heimilis í Lyngholti, Bergi.

Þau fluttu úr húsinu árið 1957, enda hafði fjölskyldan þá stækkað og húsið ekki stórt. Sagan segir að nýju eigendurnir hafi greitt húsið með Skodabifreið sem þau áttu án nokkurrar milligjafar. Það voru hjónin Kristín Rut Jóhannsdóttir (f. 1940) og Lárus Arnar Kristinsson (f. 1937 – síðar oft nefndur Lalli á sjúkrabílnum) sem keyptu húsið með þessum hætti. Þau áttu húsið líklega til ársins 1962.

Eftir það átti Guðlaugur Jónatansson (1934-2009) húsið lengi.

Búið var í Lyngholti fram yfir síðustu aldamót, en síðan komst húsið í mikla niðurníslu og var rifið, líklega árið 2023.1Ingvar Vilhjálmsson o.fl. (2012, 27. febrúar) Sótt 1. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo?fbid=3044429502208&set=gm.10150561721857213; Mars Þurý Kai o.fl. (2019, 2. janúar). Sótt 1. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo?fbid=10217992093024603&set=gm.10155794492657213; Skjalasafn byggingafulltrúa Reykjanesbæjar.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. mars, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. mars, 2025