Lundargata 17 á Akureyri árið 1989. Heimild: Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri. Húsakönnun, bls. 60. Akureyri: Minjasafnið á Akureyri.
Lundargata 17 á Akureyri árið 1989. Heimild: Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri. Húsakönnun, bls. 60. Akureyri: Minjasafnið á Akureyri.

Lundargata 17, Akureyri

Byggingarár: 1894
Rifið: 2009
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Jakob Jónsson
Aðrir eigendur:
1903: Frímann Jakobsson
1916: Gunnar Guðlaugsson
1920: Jóhann Scheving og Jóhannes Björnsson
Upphafleg staðsetning: Lundargata 10, Akureyri
Flutt: 1920 að Lundargötu 17, Akureyri

Saga:

Húsið, sem hér er til umfjöllunar, byggði Jakob Jónsson trésmiður frá Grísará (1844-1903) á lóð númer 10 við Lundargötu á Akureyri árið 1894. Þegar Gunnar Guðlaugsson (1887-1941) húsasmiður keypti húsið af Frímanni Jakobssyni (1868-1937), sem eignaðist húsið eftir föður sinn, var húsið virt. Þá var húsið einlyft timburhús á steingrunni, portbyggt með risi og kvisti. Árið 1920 hóf Gunnar að byggja nýtt hús á lóð sinni og var þá gamla húsið flutt að Lundargötu 17. Jóhann Scheving fékk leyfi til að flytja húsið en þegar húsið var virt sama ár var húsið jafnframt skráð í eigu Jóhannesar Björnssonar. Þá er húsið sagt einlyft íbúðarhús á kjallara, með portbyggðu risi. Veggir og þak var klætt með timbri og pappa.1Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri. Húsakönnun, bls. 56-57 og 60. Akureyri: Minjasafnið á Akureyri.

Húsinu var lýst þannig árið 1995:

Húsið hefur með breytingum gegnum árin fengið svolítið sérstakt útlit. Að hluta til er það einlyft timburhús á kjallara með portbyggðu risi en norðan við það var byggð einlyft viðbygging árið 1937. Samtímis var norðurhluti þaksins á elsta húsinu lyft og er húsið því tvílyft að hluta. Húsið er allt múrað að utan og er erfitt að greina skil eldra húss og viðbyggingar. Inngangur er á austurhlið og eru steintröppur að götunni. Við vesturhlið er inngönguskúr. Í húsinu eru tvær íbúðir.2Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995), bls. 60.

Eldur laus í Lundargötu 17 á Akureyri. Ljósm.: KL. Heimild: Dagur, 24. mars 1990, 74. árg., 59. tbl., bls. 20. Sótt 30. október 2024 af https://timarit.is/page/2690582?iabr=on.

Í mars 1990 kom upp eldur í húsinu. Þá voru tveir fluttir á sjúkrahús vegna reykeitrunar.3Eldur laus í Lundargötu 17 á Akureyri (1990, 24. mars). Dagur, 74. árg., 59. tbl., bls. 20.

Í maí 2007 kviknaði aftur í húsinu, sem nú stórskemmdist, en íbúar komust út af sjálfsdáðum. Lundargata 17 var rifin tveimur árum síðar.4Brennuvargar eru ófundnir (2007, 7. maí). Fréttablaðið, 7. árg., 123. tbl., bls. 12; Arnór Bliki Hallmundsson (2015, 25. janúar). Hús við Lundargötu. Sótt 5. september 2023 af https://arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/1593583/.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 30. október, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 30. október, 2024