Olíumálverk Jóns Helgasonar. Kirkjustræti 1875. Fremst til vinstri er Alþingishúsið, síðan sést Kirkjustræti 12, í sinni upphaflegu mynd, ein hæð og ris. Heimild: Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. ÁBS-2822. Sótt 16. júlí 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=246862.
Olíumálverk Jóns Helgasonar. Kirkjustræti 1875. Fremst til vinstri er Alþingishúsið, síðan sést Kirkjustræti 12, í sinni upphaflegu mynd, ein hæð og ris. Heimild: Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. ÁBS-2822. Sótt 16. júlí 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=246862.

Líkn, Árbæjarsafni, Reykjavík

Heiti: Líkn
Byggingarár: 1848
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Christian L Möller
Aðrir eigendur:
1851: Halldór Kr. Friðriksson og Charlotte Caroline Leopoldine
1911: Háskóli Íslands
1940 ?: Hjúkrunarfélagið Líkn
1950 ?: Alþingi
1973: Reykjavíkurborg
Upphafleg staðsetning: Kirkjustræti 12, Reykjavík
Flutt: 1973 á Árbæjarsafn í Reykjavík
Hvernig flutt: Efri hæð flutt í heilu lagi
Líkn 5

Líkn við hlið Alþingishússins, Kirkjustræti 12, árið 1952. Ljósm. Magnús Daníelsson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. MAD 001 078 1-3.jpg. Sótt 16. júlí 2024 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is.

Líkn 2

Líkn við hlið Alþingishússins, Kirkjustræti 12, árið 1973. Ljósm.: Þjóðviljinn. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. ÞJV 017 116 1-1.jpg. Sótt 16. júlí 2024 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/.

líkn 7

Líkn lyft á flutningabíl árið 1973. Ljósm.: Þór Eyfeld Magnússon. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. Skg-2516. Sótt 16. júlí 2024 af https://www.sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=665789.

Líkn 6

Líkn á Árbæjarsafni. Árbæjarsafn. Líkn - Kirkjustræti 12. Sótt 16. júlí 2024 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/02e13cf4-0687-497b-aec4-f4b6f836ef17.

Saga:

Árið 1948 reisti Christian L. Möller (1811-1881), kaupmaður og veitingamaður, sér hús sunnan við Austurvöll í Reykjavík. Húsið stóð við götuna Kirkjubrú, sem síðar nefndist Kirkjustræti, og fékk númerið 12 við götuna, en húsið var það fyrsta sem reist var við götuna. Húsið var bindingshús á einni hæð með risi.1Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1987). Kvosin. Byggingarsaga miðbæjar Reykjavíkur, bls. 212. Reykjavík: Torfusamtökin; Árbæjarsafn. Líkn – Kirkjustræti 12. Sótt 16. júlí 2024 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/02e13cf4-0687-497b-aec4-f4b6f836ef17. „Sagan segir að húsið hafi verið byggt úr múrsteini sem varð afgangs þegar Dómkirkjan var stækkuð á árunum 1947-48.“2Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1987), bls. 212.

Árið 1851 keypti Halldór Kr. Friðriksson (1819-1902) yfirkennari við Latínuskólann og lengi þingmaður Reykvíkinga húsið. Þar bjó hann með konu sinni, Charlotte Caroline Leopoldine (1826-1911) og börnum. Hann lét byggja hæð úr timbri ofan á húsið. Árið 1880 seldi hann austurhluta lóðar sinnar undir Alþingishús, sem reist var þar sama ár.3Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1987), bls. 212-213.

Húsið var í eigu fjölskyldu Halldórs til ársins 1911 er Háskóli Íslands keypti það. Eftir að Háskólinn eignaðist húsið voru þar rannsóknarstofa læknadeildar og íbúð háskólaritara. Geymsluhús á vesturmörkum lóðarinnar var notað sem krufningarstofa læknadeildar.4Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1987), bls. 213.

Frá 1911 til 1940 var Háskóli Íslands til húsa í Alþingishúsinu en rannsóknastofa var í Líkn og á efri hæðinni var íbúð háskólaritara. Árið 1929 var Pétur Sigurðsson (1896-1971) háskólaritari og flutti með fjölskyldu sína í Líkn þar sem hún bjó til ársins 1940. Eiginkona Péturs var Þóra Sigurðardóttir (1899-1979). Þau áttu tvær dætur meðan þau bjuggu í húsinu, en þar var oft margt um manninn því skyldmenni utan af landi fengu oft að gista í lengri og skemmri tíma og stundum flatsæng yfir allt. Meðal annars var systir Þóru með sér aðstöðu á háaloftinu. Eina klósettið í húsinu var á neðri hæðinni, en í íbúðinni var einn krani með köldu vatni. Miðstöðvarkynding var í eldhúsinu.5Helga Einarsdóttir (2003). Gamla Reykjavík – viðtöl um Í.R.húsið, Þingholtsstræti 9 og Kirkjustræti 12, bls. 43-54. Í gagnasafni Árbæjarsafns.

Eftir að Háskólinn flutti úr húsinu árið 1940 fékk

… hjúkrunarfélagið Líkn húsið til afnota og var það þá nefnt eftir félaginu. Þar fór fram berklaskoðun og mæðra- og ungbarnaeftirlit þar til Heilsuverndarstöðin við Barónsstíg var tekin í notkun um 1950. Húsið var síðan í eigu Alþingi og voru þar skrifstofur og skjalageymslur þingins. Árið 1973 var það flutt í Árbæjarsafn og endurbyggt þar.6Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1987), bls. 213.

Það var einungis efri hluti hússins sem fluttur var í safni, en neðri hluti þess var rifinn. Endursmíði hússins lauk á Árbæjarsafni árið 1978.7Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Ljósm.: Þjóðviljinn. Mynd nr. ÞJV 017 116 1-1.jpg. Sótt 16. júlí 2024 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/.

Áður en hafist var handa við uppbyggingu hússins í Árbæjarsafni annaðist Þorsteinn Gunnarsson arkitekt uppmælingu og byggingarrannsóknir, en Nanna Hermansson stjórnaði uppbyggingu á staðnum, en Ólafur B. Jónsson sá um framkvæmdir.8Hörður Ágústsson (2000). Íslensk byggingararfleifð II. Varðveisluannáll 1863-1990. Verndunaróskir, bls. 187. [Reykjavík:] Húsafriðunarnefnd ríkisins.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 18. júní, 2025

Heimildaskrá

  • 1
    Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1987). Kvosin. Byggingarsaga miðbæjar Reykjavíkur, bls. 212. Reykjavík: Torfusamtökin; Árbæjarsafn. Líkn – Kirkjustræti 12. Sótt 16. júlí 2024 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/02e13cf4-0687-497b-aec4-f4b6f836ef17.
  • 2
    Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1987), bls. 212.
  • 3
    Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1987), bls. 212-213.
  • 4
    Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1987), bls. 213.
  • 5
    Helga Einarsdóttir (2003). Gamla Reykjavík – viðtöl um Í.R.húsið, Þingholtsstræti 9 og Kirkjustræti 12, bls. 43-54. Í gagnasafni Árbæjarsafns.
  • 6
    Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1987), bls. 213.
  • 7
    Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Ljósm.: Þjóðviljinn. Mynd nr. ÞJV 017 116 1-1.jpg. Sótt 16. júlí 2024 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/.
  • 8
    Hörður Ágústsson (2000). Íslensk byggingararfleifð II. Varðveisluannáll 1863-1990. Verndunaróskir, bls. 187. [Reykjavík:] Húsafriðunarnefnd ríkisins.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 18. júní, 2025