Laugavegur 62 í Reykjavík árið 1975. Árbæjarsafn. Miðasala - Laugavegur 62. Sótt 2. nóvember 2024 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/376c0101-e844-4efa-9b3b-b8cff868fbd8.
Laugavegur 62 í Reykjavík árið 1975. Árbæjarsafn. Miðasala - Laugavegur 62. Sótt 2. nóvember 2024 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/376c0101-e844-4efa-9b3b-b8cff868fbd8.

Laugavegur 62, Árbæjarsafni, Reykjavík

Byggingarár: 1901
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Gísli Þorkelsson
Aðrir eigendur:
1978: Reykjavíkurborg / Árbæjarsafn
Upphafleg staðsetning: Laugavegur 62, Reykjavík
Flutt: 1978 á Árbæjarsafn í Reykjavík
Laugavegur 62 3

Laugavegur 62 hífður á nýjan grunn á Árbæjarsafni. Ljósm.: Róbert Ágústsson. Heimild: Byggðasöfn á Íslandi. Ritstjóri: Sigurjón Baldur Hafsteinsson. Bls. 106.

Laugavegur 62 1

Miðasala Árbæjarsafns. Árbæjarsafn. Miðasala - Laugavegur 62. Sótt 2. nóvember 2024 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/376c0101-e844-4efa-9b3b-b8cff868fbd8.

Saga:

Árið 1901 var reist timburhús við Laugaveg 62 í Reykjavík. Um það hús segir á vef Árbæjarsafns:

Húsið stóð áður við Laugaveg 62. Það var reist af Gísla Þorkelssyni steinsmið árið 1901 og var framan af íbúðarhús, en á 20. öld varð Laugavegur ein helsta verslunargata Reykjavíkur og árið 1923 hóf nýlenduvöruverslun starfsemi í kjallara hússins, sem hafði verið hækkaður stuttu áður. Um svipað leyti varð húsið hornhús, þegar Vitastígur var lengdur til suðurs, og var því komið fyrir dyrum á horn hússins. Á 20. öld hýsti það margskonar verslunarrekstur, tóbaksverslun, bólstraraverkstæði, húsgagnaverslun og loks barnafataverslun.
Húsið var flutt á Árbæjarsafn árið 1978 og var hugsað frá upphafi sem afgreiðsla safnsins og minjagripaverslun. Núverandi kjallari hússins er ekki upprunalegur og ekki niðurgrafinn líkt og áður hafði verið.1Árbæjarsafn. Miðasala – Laugavegur 62. Sótt 2. nóvember 2024 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/376c0101-e844-4efa-9b3b-b8cff868fbd8.

Þegar húsið var virt til brunabóta í október 1901 var því lýst þannig:

Hús þetta er byggt af bindingi, klætt utan borðum plægðum, pappa þar yfir á suðurhlið og austurgafli og með járnþaki á plægðri súð með pappa á milli. Niðri í húsinu eru 3 herbergi auk eldhúss sem allt er þiljað og málað og herbergin með panelpappa innan á þiljum og neðan á loptum sem eru tvöföld, og 2 geymsluherbergi óþiljuð. Þar er 1 ofn og 1 eldvjel. Uppi eru 2 herbergi þiljuð og máluð og með lopti. Þar eru 2 litlar eldavjelar. Kjallari er undir öllu húsinu og honum hólfað sundur í 4 rími.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar 1900-1905. Aðf.nr. 735. Brunavirðingarnúmer 637. Sótt 2. nóvember 2024 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf.

Síðar var húsið klætt bárnujárni í stað pappans.3Borgarsögusafn Reykjavíkur / Reykjavík City Museum. Sótt 2. nóvember 2024 af https://www.facebook.com/borgarsogusafn/posts/the-museum-house-laugavegur-62-which-houses-the-%C3%A1rb%C3%A6jarsafn-open-air-museum-tick/3565718953475716/.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. nóvember, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. nóvember, 2024