Laugavegur 41a árið 1972. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Myndavefur. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 0771.jpg
Laugavegur 41a árið 1972. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Myndavefur. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 0771.jpg

Laugavegur 41A, Reykjavík

Byggingarár: 1906
Rifið: 2014
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Jóhannes Lárusson trésmiður
Aðrir eigendur:
1926: Halldór Oddsson
1941: Benedikt Benediktsson,
Upphafleg staðsetning: Hverfisgata 56B, Reykjavík
Flutt: 1926 að Laugavegi 41 A, Reykjavík
2011-11-03_23201075

Hús Halldórs Oddssonar við Hverfisgötu 56 A og sem á að flytja á Laugaveg 41 A. Teikning Jens Eyjólfssonar, dags. 14. maí 1926. Teikningavefur Reykjavíkurborgar Sótt 26. nóvember 2023 https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/.

Laugavegur 41A 1

Laugavegur 41 A í maí  2010. Ljósm.: Höfundur

Saga:

Árið 1906 byggði Jóhannes Lárusson trésmiður timburhús á lóð númer 56 B við Hverfisgötu í Reykjavík árið 1906. Árið 1913 kom upp bruni í inngönguskúr við húsið því glas með bensíni hafði sprungið hjá manni sem bjó í húsinu.

Vorið 1926 var húsið flutt á lóð nr. 41 A við Laugaveg, þar sem það stendur enn, en þá hafði Halldór Oddsson, þáverandi eigandi hússins, gert lóðaskipti við Timburverslun Árna Jónssonar sem starfrækt var við Hverfisgötu. Brunavirðing fór fram á húsinu eftir að það var flutt.1Nikulás Úlfar Másson og Helga Maureen Gylfadóttir (2001). Húsakönnun. Laugavegs¬reitir – miðsvæði. Skýrslur Árbæjarsafns 86[, ekkert bls.tal]. Reykjavík: Árbæjarsafn; Freyja Jónsdóttir (2002, 17. desember). Laugavegur 41a. Morgunblaðið, Heimili Fasteignir, bls. C 28. Sótt 13. febrúar 2011 af http://timarit.is.

Þar segir að það sé einlyft á hlöðnum kjallara úr höggnum grásteini, byggt af bindingi, klætt utan með borðum, pappa, listum og bárujárni á veggjum og þaki.
Í bindingi er pappalag og milligólf er í báðum bitalögum.
Á aðalhæðinni eru þrjú íbúðarherbergi, eldhús og gangur. Allt þiljað að innan og neðan á loftbita með panel­borðum, sem öll eru lögð striga og vélapappír og ýmist máluð eða veggfóðruð. Í risi eru tvö íbúðar­herbergi og framloft. Herbergin eru með sama frágangi og á aðalhæðinni, en framloftið er þiljað og málað.
Hlaðinn kjallari úr tilhöggnum grásteini er undir húsinu öllu. Hann er með steinsteypugólfi og í honum eru tvö íbúðarherbergi og eldhús. Innan á útveggjum kjallarans er borðagrind með pappa, listum og þiljum þar innan á og er það að öllu leyti sams konar frágangur og á aðalhæðinni. Yfir steinsteypugólfinu er timbur­gólf. Grunnflötur hússins er 7,2 x 6,3m.
Við austurgafl hússins er inngönguskúr. Þar er gangur og stór fataskápur. Kjallari er undir honum með sömu herbergjaskipan og uppi. Frágangur bæði að utan og innan er sá sami og á húsinu sjálfu. Grunnflötur skúrsins er 2,4 x 2,7m.2Freyja Jónsdóttir (2002, 17. desember).

Breyting á Laugavegi 4A. Teikning Hafliða Jóhannssonar, dags. 25. september 1941. Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Sótt 26. nóvember 2023 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/.

Árið 1941 stækkaði þáverandi eigandi hússins, Benedikt Benediktsson, húsið til vesturs. Í viðbyggingunni var eitt herbergi, baðherbergi, geymsla, gangur og bakdyrainngangur.3Freyja Jónsdóttir (2002, 17. desember)

Árið 2014 barst Minjastofnun Íslands beiðni um niðurrif hússins, en húsið var friðað skv. 29. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012 eins og öll hús sem voru 100 ára eða eldri. Gerð var úttekt á húsinu til að meta ástand þess, m.a. með flutning þess í huga. Í umsögn Minjastofnunar um beiðni um niðurrif segir m.a.:

Í ljósi þess að ástand hússins við Laugaveg 41A leyfir ekki brottflutning þess í heilu lagi fellst Minjastofnun niðurrif þess á staðnum og lýsir friðun þess úr gildi fallna. Mælst er til þess að grásteinn úr kjallaraveggjum og allt heillegt efni verði endurnýtt. Sé þess ekki kostur að endurnýta steina úr kjallaravegg, óskar Árbæjarsafn eftir því að fá þá til varðveislu.4Umsögn Minjastofnunar Íslands til Úti og inni arkitekta, dags. 4. sepember 2014. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.

Húsið var rifið í október 2014.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. maí, 2025

Heimildaskrá

  • 1
    Nikulás Úlfar Másson og Helga Maureen Gylfadóttir (2001). Húsakönnun. Laugavegs¬reitir – miðsvæði. Skýrslur Árbæjarsafns 86[, ekkert bls.tal]. Reykjavík: Árbæjarsafn; Freyja Jónsdóttir (2002, 17. desember). Laugavegur 41a. Morgunblaðið, Heimili Fasteignir, bls. C 28. Sótt 13. febrúar 2011 af http://timarit.is.
  • 2
    Freyja Jónsdóttir (2002, 17. desember).
  • 3
    Freyja Jónsdóttir (2002, 17. desember)
  • 4
    Umsögn Minjastofnunar Íslands til Úti og inni arkitekta, dags. 4. sepember 2014. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. maí, 2025