Laugavegur 33, Reykjavík
Landmælingadeild herforingjaráðsins í Kaupmannahöfn. „Reykjavík“ 1902, hluti, 1:25000. Safnanúmer 144.02.1. Reykjavík og Kaupmannahöfn: Generalstabens topografiske Afdeling (Landmælingadeild herforingjaráðsins), 1903. Sótt 17. júlí 2025 af https://islandskort.is/map/1141#?c=0&m=0&s=0&cv=118&r=0&xywh=5904%2C3348%2C1655%2C907.
Laugavegur 33, Reykjavík, 2023. Ljósm.: Borg fasteignasala. Sótt 17. júlí 2025 af https://fastinn.is/soluskra/1114149.
Saga:
Laust eftir fermingu hóf Jón Bjarnason (1858-1927) að stunda verslun og sjómennsku í Hafnarfirði. Árið 1888 kvæntist hann Guðríði Eiríksdóttur (1864-1928) og árið eftir reisti hann hús á lóð sem hann átti þar sem nú er Brekkugata 2 í Hafnarfirði, á horni Brekkugötu og Lækjargötu. Ekki liggur fyrir hve stórt húsið var. Um þetta leyti veiktist hann og lá svo til rúmfastur í 7 ár.1Rósa Karen Bergþórsdóttir, Byggðasafni Hafnarfjarðar (2025, 10. júlí of 2025, 14. júlí). Tölvupóstur; Páll Eggert Ólason (1950). Íslenzkar æviskrár frá landnámstímum til ársloka 1940. III. bindi, bls. 72. Sótt 11. júlí 2025 af https://baekur.is/bok/dfdd721a-e63f-489d-a5e1-c12615debb70/3/76. Um þetta hús segir Jón Gestur Vigfússon (1892-1980) í endurminningum sínum:
Svo kemur (næst efsta hús upp með læknum) hús Jóns Bjarnasonar skipstjóra. Við það hús er tengd ein af mínum elstu minningum, því foreldrar mínir bjuggu þar á lofthæð einn vetur. Jón var þá rúmfastur og lá allan veturinn, en um vorið reif hann sig upp úr sleninu, lét rífa húsið og flutti það til Rvk og byggði það upp að nýju á Laugavegi 33, gerðist þar kaupmaður og rak þar verslun alt til dauðadags.
Þennan vetur mun ég [þ.e. Jón Gestur]hafa verið 4 ára og margir voru þeir dagar sem ég dvaldi undir sænginni hjá nafna mínum [þ.e. Jóni Bjarnasyni] við það atlæti sem best verður og hjelst okkar vinátta alla stund meðan hann lifði.2Sveinn Magnússon (2022). Hjónin Jón Gestur Vigfússon og Sesselja Magnúsdóttir, bls. 160. Óútgefið rit í eigu Byggðasafns Hafnarfjarðar.
Samkvæmt ofanrituðu má ætla að húsið hafi verið flutt til Reykjavíkur vorið 1897. Árið eftir flutti Jón Bjarnason til Reykjavíkur. Þar gerðist hann skipstjóri fram til ársins 1907 þegar hann hóf verslunarrekstur að Laugavegi 33. Verslunina rak hann til dánardags 21. september 1927 og komst í sæmileg efni.3Páll Eggert Ólason (1950), bls. 72.
Þegar fylgja á húsi Jóns til Reykjavíkur árið 1897 vandast málið. Á lóð númer 33 við Laugaveg hafa staðið nokkur hús í tímans rás. Á korti af Reykjavík frá árinu 1902 sjást tvö hús á lóðinni, framhús með úthýsi við norðurhlið og norðan við það annað hús, eilítið minna.4Landmælingadeild herforingjaráðsins í Kaupmannahöfn. „Reykjavík“ 1902, 1:25000. Safnanúmer 144.02.1. Reykjavík og Kaupmannahöfn: Generalstabens topografiske Afdeling (Landmælingadeild herforingjaráðsins), 1903. Sótt 17. júlí 2025 af https://islandskort.is/map/1141#?c=0&m=0&s=0&cv=118&r=0&xywh=5904%2C3348%2C1655%2C907.
Til er brunavirðing sem gerð var í júní 1902 þar sem virt eru tvö hús sem Jón Bjarnason skipstjóri hafði látið byggja á lóð sinni við Laugaveg 33 en lóðina hafði hann keypt af Júlíusi Schou (1856-1938) steinhöggvara árið áður.
Framhúsið á kortinu er ugglaust timburhús sem í virðingunni er sagt tvíloftað bindingshús með risi og kvisti, klætt utan með borðum, pappa og járni. Íbúðarherbergi og eldhús voru á báðum hæðum, einnig í risi og kjallara, sem var undir öllu húsinu. Inn- og uppgönguskúr var við norðurhlið hússins af sama efnið og húsið sjálft. Verður ekki betur séð en 13 herbergi hafi verið í húsinu og fimm eldhús.
Hitt húsið er geymsluhús, byggt úr bindingi með trégólfi og járni á þaki.5Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905. Aðfnr. 735. Brunavirðinganr. 672. Sótt 11. júlí 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. B-skjöl, Laugavegur 33, B/230.
Ekki kemur fram í virðingunni að um aðflutt hús sé að ræða, en minnt er á að mörg dæmi eru um að þegar fyrsta brunavirðing fór fram var ekki minnst á að hús hafi verið aðflutt, jafnvel þó afdráttarlausar heimildir séu fyrir því að svo hafi verið. Ekki hafa fundist elstu teikningar af þessum húsum, en dæmi eru um að á þeim komi fram að um sé að ræða endurbyggingu á aðfluttu húsi. Ekki er loku fyrir það skotið að bygging húsanna hafi hafist nokkru fyrr, en Jón óskað eftir mati á þeim árið 1902 þegar þeim var að fullu lokið.
Einnig er hugsanlegt að húsið sem Jón kom með frá Hafnarfirði hafi verið rifið þegar nýju húsin voru byggð árið 1902.
Í manntali sem gert var í Reykjavík árið 1906 sést að Jón og Guðríður kona hans búa að Laugavegi 33 ásamt tveimur dætrum sínum, syni Jóns sem hann átti fyrir hjónaband og móður Guðríðar. Auk þess eru 24 einstaklingar skráðir þar til heimilis í 6 fjölskyldum6Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík og Seltjarnarnesi 1906. Sótt 11. júlí 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1906-1910/manntal-i-reykjavik-og-seltjarnarnesi-1906.pdf; Eftirmæli (1930, 1. janúar). Óðinn, 26. árg., 1.-6. tbl., bls. 44-46. Sótt 11. júlí 2025 af https://timarit.is/page/2293007?iabr=on., enda var húsið stórt. Væntanlega hefur íbúum hússins fækkað eitthvað eftir að neðri hæðin var gerð að sölubúð um 1907.7Nikulás Úlfar Másson og Helga Maureen Gylfadóttir (2001). Laugavegsreitir – miðsvæði. Reykjavík: Árbæjarsafn. Skýrsla nr. 86. Sótt 11. júlí 2025 af https://borgarsogusafn-api.prod.thon.is/uploads/Borgarsoegusafn_Skyrsla_86_Laugavegsreitir_midsvaedi_Husakoennun_2001_219b354032.pdf.
Árið 1907 seldi Jón tengdasyni sínum, Jónasi Þorsteinssyni (1880-1918) íbúðarhúsið, útihúsið og alla lóðina við Laugaveg 33. Árið eftir varð þessi eign séreign Guðríðar Júlíönu (1889-1951) dóttur þeirra hjóna samkvæmt kaupmála. Hún átti húsin og lóðina lengi og gerði þar ýmsar breytingar og viðbætur.8Borgarskjalasafn Reykjavíkur. B-skjöl, Laugavegur 33, B/230.
Eins og fram hefur komið er erfitt að fullyrða um hvað varð um hús Jóns Bjarnasonar sem flutt var frá Hafnarfirði til Reykjavíkur á síðustu árum 19. aldar. Ekki má þó útiloka þann möguleika að húsið sem nú er númer 33 við Laugaveg og hefur nú (2025) fengið verðugar endurbætur eigi að einhverju leyti að rætur sínar að rekja til Hafnarfjarðar.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 17. júlí, 2025
Heimildaskrá
- 1Rósa Karen Bergþórsdóttir, Byggðasafni Hafnarfjarðar (2025, 10. júlí of 2025, 14. júlí). Tölvupóstur; Páll Eggert Ólason (1950). Íslenzkar æviskrár frá landnámstímum til ársloka 1940. III. bindi, bls. 72. Sótt 11. júlí 2025 af https://baekur.is/bok/dfdd721a-e63f-489d-a5e1-c12615debb70/3/76.
- 2Sveinn Magnússon (2022). Hjónin Jón Gestur Vigfússon og Sesselja Magnúsdóttir, bls. 160. Óútgefið rit í eigu Byggðasafns Hafnarfjarðar.
- 3Páll Eggert Ólason (1950), bls. 72.
- 4Landmælingadeild herforingjaráðsins í Kaupmannahöfn. „Reykjavík“ 1902, 1:25000. Safnanúmer 144.02.1. Reykjavík og Kaupmannahöfn: Generalstabens topografiske Afdeling (Landmælingadeild herforingjaráðsins), 1903. Sótt 17. júlí 2025 af https://islandskort.is/map/1141#?c=0&m=0&s=0&cv=118&r=0&xywh=5904%2C3348%2C1655%2C907.
- 5Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905. Aðfnr. 735. Brunavirðinganr. 672. Sótt 11. júlí 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. B-skjöl, Laugavegur 33, B/230.
- 6Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík og Seltjarnarnesi 1906. Sótt 11. júlí 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1906-1910/manntal-i-reykjavik-og-seltjarnarnesi-1906.pdf; Eftirmæli (1930, 1. janúar). Óðinn, 26. árg., 1.-6. tbl., bls. 44-46. Sótt 11. júlí 2025 af https://timarit.is/page/2293007?iabr=on.
- 7Nikulás Úlfar Másson og Helga Maureen Gylfadóttir (2001). Laugavegsreitir – miðsvæði. Reykjavík: Árbæjarsafn. Skýrsla nr. 86. Sótt 11. júlí 2025 af https://borgarsogusafn-api.prod.thon.is/uploads/Borgarsoegusafn_Skyrsla_86_Laugavegsreitir_midsvaedi_Husakoennun_2001_219b354032.pdf.
- 8Borgarskjalasafn Reykjavíkur. B-skjöl, Laugavegur 33, B/230.
Deila færslu
Síðast uppfært 17. júlí, 2025

