Langeyrarvegur 16a, Hafnarfirði
Langeyrarvegur 16a, Hafnarfirði, árið 2001. Ljósm.: Margrét Bragadóttir.
Langeyrarvegur 16a, Hafnarfirði. Byrjað að byggja við húsið árið 2001. Ljósm.: Margrét Bragadóttir.
Saga:
Árið 1960 auglýsti bæjarverkfræðingurinn í Hafnarfirði hús sem stóð við Vesturgötu 20 í Hafnarfirði og nefnt Aldan til sölu og brottflutnings.1Húsið (1960, 16. febrúar). Morgunblaðið, 47. árg., 38. tbl., bls. 17.
Þegar húsið var brunavirt árið 1918, sama ár og það var byggt, var Sigfús Bergmann (1872-1918) eigandi þess. Þá var húsinu lýst þannig:
Húsið er einlyft með porti og risi 1,90m. Niðri er því skipt í 2 stofur og anddyri, klætt innan með panel, stofurnar eru fóðraðar, allt málað. Uppi skipt í herbergi og eldhús, klætt innan með panel og málað. Notað til íbúðar. Undir öllu húsinu er 2,40m hár kjallari með 2 gluggum, sementshúðaður að innan, bæði á veggjum og lofti, innréttaður sem verslunarbúð.1 eldavél og 2 ofnar.2Gláma – Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 142. Hafnarfirði: Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.
Ekki mun þó Sigfús hafa verslað í húsinu, því hann lést úr spönsku veikinni í nóvember 1918 og rak þá verslun í myndarlegu verslunarhúsi við Strandgötuna.
Lengst mun Guðmundur Guðmundsson (1906-1967) hafa rekið versluna að Vesturgötu, sem nefndist Aldan. Í auglýsingum frá Öldunni kemur fram að þar voru m.a. seldar málningavörur og ýmis konar hlífðarfatnaður fyrir sjómenn og verkafólk. E.t.v. hefur Guðmundur rekið verslunina fyrir Gunnlaug Stefánsson kaupmann, því í auglýsingu frá 1930 skráir Gunnlaugur nafn sitt undir auglýsingu frá versluninni og í minningargrein um Guðmund kemur fram að hann hafi ungur ráðist sem verslunarþjónn til Gunnlaugs og starfað lengi í þjónustu hans.3Lúðvík Geirsson (1994). Höfuðstaður verslunar. Saga verslunar og kaupmennsku í Hafnarfirði í sex hundruð ár, bls. 213 og 281. Hafnarfirði: Verslunarmannafélag Hafnarfjarðar; Brúin (1930, 6. júní). 2. árg., 40. tbl., bls. 3; Sjófatnaðarbúð (1930, 13. janúar). Alþýðublað Hafnarfjarðar, 1. árg., 2. tbl., bls. 2; Adolf Björnsson (1967, 16. nóvember). Guðmundur Guðmundsson, stórkaupmaður – Minning. Morgunblaðið, 54. árg., 261. tbl., bls. 22.
Um eða upp úr 1960 þurfti húsið að víkja af Vesturgötunni. Þá festu hjónin Sigurður H. Þorsteinsson (1930-2013) og Torfhildur Steingrímsdóttir (1928-2018) kaup á húsinu og fluttu það að Langeyrarvegi 16a í Hafnarfirði, þar sem ólu upp fjögur börn.4Geir Gunnlaugsson (2021, 26. desember). Sótt 14. júní 2024 af https://www.facebook.com/groups/247258775368224/search/?q=Langeyrarveg%2016a. Sigurður vann lengst af við kennslu og skólastjórn. Hann var sérfræðingur í frímerkjasöfnun og kunnur frímerkjasafnari og skrifaði um það málefni á ýmsum vettvangi. Torfhildur var virk í skátastarfi alla sína tíð. Hún var einnig listakona og hélt málverkasýningar og í kaþólskum kirkjum hér heima og erlendis má finna dýrlingamyndir eftir hana, en hún var einnig virk í safnaðarstarfi kaþólsku kirkjunnar á Íslandi.5Andlát. Sigurður H. Þorsteinsson (2013, 1. nóvember). Morgunblaðiið, 101. árg., 254. tbl., bls., 9; Torfhildur Steingrímsdóttir (2018, 13. mars). Morgunblaðið, 106. árg., 61. tbl., bls. 23.

Langeyrarvegur 16a, Hafnarfirði, árið 2017. Heimild: Gláma – Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 142. Hafnarfirði: Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.
Hjónin Margrét Bragadóttir og Páll Ottó Bernburg keyptu húsið árið 1993 af þeim Arndísi Valgerði Pétursdóttur og Guðbrandi Brandssyni, sem höfðu átt húsið frá árinu 1990. Margrét og Páll hófu nokkrum árum síðar miklar endurbætur á húsinu og byggðu jafnframt við það til norðurs um 2001. M.a. skiptu þau um utanhússklæðningu og klæddu húsið aftur með bárujárni, sem hæfir húsinu mun betur en plastklæðningin sem var á því áður.6Margrét Bragadóttir (2023, 7. febrúar). Sótt 16. júní 2024 af https://www.facebook.com/photo.php?fbid=3346143562322400&set=p.3346143562322400&type=3; Margrét Bragadóttir (2024, 18. júní). Tölvupóstur.
Leitarorð: Hafnarfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. júní, 2024
Heimildaskrá
- 1Húsið (1960, 16. febrúar). Morgunblaðið, 47. árg., 38. tbl., bls. 17.
- 2Gláma – Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 142. Hafnarfirði: Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.
- 3Lúðvík Geirsson (1994). Höfuðstaður verslunar. Saga verslunar og kaupmennsku í Hafnarfirði í sex hundruð ár, bls. 213 og 281. Hafnarfirði: Verslunarmannafélag Hafnarfjarðar; Brúin (1930, 6. júní). 2. árg., 40. tbl., bls. 3; Sjófatnaðarbúð (1930, 13. janúar). Alþýðublað Hafnarfjarðar, 1. árg., 2. tbl., bls. 2; Adolf Björnsson (1967, 16. nóvember). Guðmundur Guðmundsson, stórkaupmaður – Minning. Morgunblaðið, 54. árg., 261. tbl., bls. 22.
- 4Geir Gunnlaugsson (2021, 26. desember). Sótt 14. júní 2024 af https://www.facebook.com/groups/247258775368224/search/?q=Langeyrarveg%2016a.
- 5Andlát. Sigurður H. Þorsteinsson (2013, 1. nóvember). Morgunblaðiið, 101. árg., 254. tbl., bls., 9; Torfhildur Steingrímsdóttir (2018, 13. mars). Morgunblaðið, 106. árg., 61. tbl., bls. 23.
- 6Margrét Bragadóttir (2023, 7. febrúar). Sótt 16. júní 2024 af https://www.facebook.com/photo.php?fbid=3346143562322400&set=p.3346143562322400&type=3; Margrét Bragadóttir (2024, 18. júní). Tölvupóstur.
Deila færslu
Síðast uppfært 19. júní, 2024

