Langeyrarvegur 1 í Hafnarfirði árið 2017. Sótt 6. júní 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=1502709736487284&set=a.1502709666487291.1073742225.240218376069766.
Langeyrarvegur 1 í Hafnarfirði árið 2017. Sótt 6. júní 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=1502709736487284&set=a.1502709666487291.1073742225.240218376069766.

Langeyrarvegur 1, Hafnarfirði

Heiti: Hús Ólafs Nikulássonar – Merkurgata 11 – Vesturbrú 13 – Vesturbrú 13b – Langeyrarvegur 1
Byggingarár: 1906
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Ólafur Nikulásson og Ingibjörg Benónýsdóttir
Aðrir eigendur:
1912: Ingibjörg Benónýsdóttir
Upphafleg staðsetning: Þar sem nú er hús nr. 13 við Vesturbraut í Hafnarfirði
Flutt: 1929 að Langeyrarvegi 1, Hafnarfirði

Saga:

Í húsakönnun sem gerð var fyrir Vesturbæ Hafnarfjarðar árið 2021 segir um húsið sem nú er númer 1 við Langeyrarveg:

Lóðasamningur var gerður 20. janúar 1906 fyrir Ólaf Nikulásson [1863-1912]. Var húsið í fyrstu kennt við eiganda sinn þar til 1911 að það verður Merkurgata nr. 11 en 1918 breyttist það í Vesturbrú 13. Í fyrstu brunavirðingu sem gerð var árið 1917 er Ingibjörg Benónýsdóttir [1863-1943] eigandi hússins en var hún ekkja Ólafs, hann drukknaði árið 1912. Í elstu brunavirðingunni er húsinu lýst þannig: Húsið er einlyft með risi 0,60. Því er skipt í 3 herbergi og eldhús, klætt innan með panel og málað. Undir húsinu er kjallari úr grjóti með 2 gluggum, notaður til geymslu. b) Inngönguskúr áfastur við húsið, með vatnshalla og 1 glugga, notaður til inngöngu í húsið.
Samkvæmt fundargerðarbók byggingafulltrúans í Hafnarfirði er húsið flutt af lóðinni, Vesturbrú 13, yfir á lóðina Vesturbrú 13b, sem nú er Langeyrarvegur 1. Var húsið óbreytt en kjallari byggður undir húsið. Engin teikning fylgdi umsókninni. Var húsið sett niður 29. ágúst 1929. Yfirsmiður, Þorbjörn Klemensson.1Gláma – Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 126. Hafnarfirði: Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.

Í manntali sem tekið var árið 1910 bjuggu þau Ólafur og Ingibjörg í húsinu ásamt fjórum börnum sínum.2Manntal 1910. Sótt 6. júní 2024 af https://manntal.is/.

Í brunavirðingu sem gerð var árið 1929 eftir flutning hússins er húsinu lýst þannig:

Húsið er einlyft með risi 0.60m. Því er skipt í 2 stofur og eldhús. Önnur stofan er fóðruð, annars húsið allt klætt innan með timbri og málað, notað til íbúðar. Undir öllu húsinu er kjallari notaður til geymslu. Við suðvesturhlið hússins er skúr með vatnshallaþaki, klæddur innan með panel. Notaður til inngöngu í húsið.3Gagnasafn Minjastofnunar Íslands. Langeyrarvegur 1, Hafnarfirði. Verknr. 5911.

Langeyrarvegur 1, Hafnarfirði, í apríl 2024. Ljósm.: Höfundur.

Þegar húsið var auglýst til sölu árið 2017 var því lýst þannig:

Eignin er skráð 69,8 fm, auk þess fylgir eigninni skúr sem er ekki skráður í heildarfermetra eignar. Gengið er inn á efri hæð hússins, á hæðinni er baðherbergi, stofa og eldhús. Gengið er niður hringstiga á neðri hæð, þar eru tvö svefnherbergi og þvottahús.4Húsaskjól (2017, 3. nóvember). Sótt 6. júní 2024 af https://www.facebook.com/media/set/?set=a.1502709666487291.1073742225.240218376069766&type=3&paipv=0&eav=AfbFwHEMj0F2hhjQuABbJsLhc5BHnKwa109RwJ7VCVfPxaRCjZw-g8iSR_LUSvJ5sE8&_rdr

 

Leitarorð: Hafnarfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 8. júní, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 8. júní, 2024