Lágholtsvegur 7, Reykjavík
Saga:
Um húsið sem nú stendur við Lágholtsveg 7 í Reykjavík segir í húsakönnun sem gerð var á Bráðræðisholti árið 2004:
Húsið er einlyft timburhús með kjallara og risi, byggt veturinn 1922-1923 af Ólínu Andrésdóttur. Það stóð upphaflega á lóðinni Bragagötu 28 en árið 1982 fékkst leyfi til að byggja annað hús á þeirri lóð og rífa þetta. Árið 1983 var hins vegar samþykkt að flytja mætti húsið á nýja lóð við Lágholtsveg og endurbyggja það þar. Húsið virðist hafa staðið óbreytt fram að því að það var flutt og endurbyggt. Eftir Ólínu eignaðist það Ástríður Guðbrandsdóttir, sem hafði búið þar með henni, og síðar bjuggu þar lengi Jakobína Thorarensen og Ólafur Thorarensen. Árið sem húsið var flutt voru settar svalir á suðausturgafl þess. Árið 1991 fékkst leyfi til að hækka og innrétta steyptan kjallara undir húsinu og reisa garðskála og verandir úr timbri og gleri við suðurhlið þess. Þessar breytingar virðast ekki hafa verið framkvæmdar [þ.e. árið 2004].1Páll V. Bjarnason og Drífa Kristín Þrastardóttir (2004). Húsakönnun. Grandavegur – Eiðsgrandi – Hringbraut – Framnesvegur, bls. 29. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 114.
Í brunavirðingu sem gerð var í lok janúar 1923 er húsi Ólínu lýst þannig:
[Húsið] er nýtt íbúðarhús, bygt úr binding klætt utan borðum, pappa, listum og járni á veggjum og þaki. Í binding er filtpappi og milligólt er í bitalögum með sagspónastappi í.
Í húsinu eru 3 íbúðarherbergi, eldhús, vatnssal, 2 fastir skápar og 2 gangar. Allt þiljað en að öðru leiti ófullgert.
Kjallari er undir ¼ hluta hússins, 2 metra hár, einnig ófullgerður.
Lengd; 7,5 m, br.: 6,85 m, hæð 3 m. Ris: 2 metr.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-12-1922 til 24-03-1924. Aðfnr. 741. Brunavnr. 1804.
Í manntali þetta sama ár kemur fram að í húsinu eru sagðar búa þær Ólína Andrésdóttir (1858-1935) húsfrú og Ástríður Guðbrandsdóttir (1880-1949) saumakona, sem var dóttir Ólínu. Auk þess býr þar ekkja með tvö fullorðin börn sín og einnig er þar til húsa kona sem skráð er sjúklingur.3Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1923. 1. hluti. Aðalstræti – Bræðraborgarstígur.
Ólína Andrésdóttir fæddist í Flatey á Breiðafirði árið 1858. Þegar hún var þriggja ára drukknaði faðir hennar og stóð móðir hennar ein uppi með sex dætur og þá sjöundu ófædda. Því var Ólína komið í fóstur eins og tvíburasystur hennar, en þær fengu ekki að fylgjast að. Ekki átti Ólína kost á skólagöngu en snemma hneigðist hugar hennar til ljóðagerðar eins og Herdísar tvíburasystur hennar.4Ingveldur Thorarensen (2014, maí). „Snemma hafði jeg yndi af óð.“ Herdís og Ólína Andrésdætur. Ritgerð til BA-prófs í almennri bókmenntafræði við hugvísindasvið Háskóla Íslands.
Leiðir systranna lágu ekki saman fyrr en í Reykjavík þegar þær voru komnar um sextugt. Saman urðu þær þjóðkunnar fyrir kvæði sín, frásagnargáfu og fróðleik. Ólína orti meira en Herdís og varð sérstaklega þekkt fyrir þulur sínar. Þær og Theodora Thoroddsen voru systkinadætur og umgengust mikið í Reykjavík. Þær voru mjög virkar í Lestrarfélagi kvenna Reykjavíkur og birtu kvæði og frásagnir í Mánaðarriti þess. Árið 1924 gáfu þær út Ljóðmæli á eigin kostnað, og aðra útgáfu aukna 1930. Að þeim látnum safnaði dóttursonur Herdísar, séra Jón Thorarensen, saman óbirtum kvæðum þeirra. Voru þau prentuð í þriðju útgáfu ljóðmælanna sem kom út stóraukin árið 1976. Alls hafa ljóðmæli þeirra systra komið út fimm sinnum.5Skáld.is. Skáldadal. Ólína Andrésdóttir.
Þeim sem vilja fræðast meira um skáldkonurnar Ólínu og Herdísi er bent á ritgerð Ingveldar Thorarensen um þær systur og finna má hér.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 22. febrúar, 2025
Heimildaskrá
- 1Páll V. Bjarnason og Drífa Kristín Þrastardóttir (2004). Húsakönnun. Grandavegur – Eiðsgrandi – Hringbraut – Framnesvegur, bls. 29. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 114. ↩︎
- 2
- 3
- 4Ingveldur Thorarensen (2014, maí). „Snemma hafði jeg yndi af óð.“ Herdís og Ólína Andrésdætur. Ritgerð til BA-prófs í almennri bókmenntafræði við hugvísindasvið Háskóla Íslands. ↩︎
- 5
Deila færslu
Síðast uppfært 22. febrúar, 2025