Hörðuvellir 2 um 1950. Heimild: Upplýsingar frá Byggðasafni Hafnarfjarðar í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Hörðuvellir 2 um 1950. Heimild: Upplýsingar frá Byggðasafni Hafnarfjarðar í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.

Lækjargata 3, Hafnarfirði

Heiti: Hörðuvellir II
Byggingarár: 1923
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Edvard Morthens
Aðrir eigendur:
2002: Hafnarfjarðarkaupstaður
2003: Ólöf Berglind Halldórsdóttir
Upphafleg staðsetning: Á Hörðuvöllum í Hafnarfirði
Flutt: 2002 að Lækjargötu 3, Hafnarfirði
Lækjargata 3 1

Húsið auglýst til sölu árið 1923. Heimild: Tækifæriskaup á húseign (1923, 19. ágúst). Morgunblaðið, 10. árg., 242. tbl., bls. 2.

Lækjargata 3

Saga:

Hörðuvellir í Hafnarfirði er svæði það við Hamarskotslækinn þar sem Lækjarskóli og leikskólinn Hörðuvellir eru staðsettir. Á þessu svæði voru áður nokkur íbúðarhús, en nú stendur aðeins eitt þeirra eftir, Hörðuvellir 1. Árið 2002 þurfti húsið við Hörðuvelli 2 að víkja fyrir nýjum mannvirkjum, en það stóð spölkorn austar en Hörðuvellir 1.

Heimildum ber ekki saman um byggingarár hússins. Í fasteignaskrá er byggingarárið skráð 1914, en í húsakönnun, sem gerð var árið 2019 er það sagt byggt árið 1923. Í elstu brunavirðingu frá 1924 er húsinu lýst þannig: „a) Húsið er einlyft með risi 3 m. Því er skipt í 3 herbergi og eldhús, ásamt uppgangi á loftið, 2 stofur fóðraðar. Allt klætt innan með panel. Uppi er húsinu skipt í tvennt og þiljað að nokkru leyti með panel. Húsið er notað til íbúðar, 6 gluggar. b) Við norðurhlið hússins er skúr úr timbri með vatnshalla þaki, notaður til inngöngu í húsið. Stærð: L. 3,0 m. B. 2,0 m. H. 2,7 0m. 1 gluggi. Þak úr timbri, pappalagt.“ Alls var húsið 54,4 m² að grunnfleti með inngönguskúrnum. Á tímabilinu 1955 til 1960 voru svokallaðir „Hafnarfjarðarkvistir“ settir á húsið.1Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson og Rósa Karen Borgþórsdóttir (2019). Miðbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 44.

Fyrsti eigandi hússins var Edvard Morthens (1882-1963), kaupmaður og bræðslumaður í Hafnarfirði. En hann átti það ekki lengi, því hann auglýsti húsið til sölu í ágúst 1923, en þá var húsið nýbyggt. Því fylgdi steinsteypt fjós og 1000 m² lóð.2Tækifæriskaup á húseign (1923, 19. ágúst). Morgunblaðið, 10. árg., 242. tbl., bls. 2.

Edvard Morthens var frá Noregi, en kom hingað frá Ameríku árið 1912. Eiginkona hans var Rósa Guðbrands­dóttir (1892-1980). Meðal níu barna þeirra hjóna var söngvarinn Haukur Morthens (1924-1992). Edvard fluttist aftur til Noregs árið 1932 en Rósa bjó áfram á Íslandi.3Aldrei drakk hann (1956, 10. nóvember). Þjóðviljinn, 21. árg., 257. tbl., bls. 9 og 10.

Árið 2002 var húsið flutt að Lækjargötu 3 í Hafnarfirði, og var þá Hafnarfjarðarkaupstaður nýorðinn eigandi að húsinu, en seldi það árið eftir til Ólöfu Berglindar Halldórsdóttur.4Málfríður Kristjánsdóttir o.fl. (2019), bls. 44.

 

Leitarorð: Hafnarfjörður

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. maí, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. maí, 2024