Lækjarfit 1, Garðabæ
Saga:
Á lóðinni sem nú er númer 48 við Laugarnesveg í Reykjavík byggði Aðalsteinn Jónsson (1901-1973) sér og fjölskyldu sinni lítið timurhús árið 1926 og nefndi Brimnes. Eiginkona Aðalsteins var Þorgerður Árnadóttir (1902-1976).
Þegar húsið var brunavirt í júlí 1928 virðist Aðalsteinn búinn að stækka hús sitt. Það var sagt einlyft íbúðarhús með risi, byggt úr bindingi, klætt utan borðum, pappa og járni á veggjum og þaki. Á aðalhæð hússins voru 2 íbúðar herbergi, eldhús og gangur, allt þiljað að innan veggfóðrað og málað. Á þaklofti var eitt þiljað og málað íbúðarherbergi, tvö geymsluherbergi og framloft. Eldavél, miðstöð og vatns- og skolplagnir voru í húsinu. Lengd hússins var 4,7 m og breidd þess 7 m.
Enn var húsið stækkað árið 1934, en þá var Friðrik Gíslason (1900-1979) bifvélavirki eigandi þess ásamt konu sinni Sigríði Ásmundsdóttur (1903-1988). Á baklóð hússins var bifreiðaverkstæði þar sem Friðrik stundaði bílaviðgerðir.1Drífa Kristín Þrastardóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2009). Húsakönnun. Laugarnesvegur – Sundlaugavegur – Laugalækur – Hrísateigur – Otrateigur, bls. 21. Minjasafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 150; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 21-01-1928 til 21-06-1930. Aðfnr. 744. Brunavirðinganr. 2448; Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Laugarnesvegur 38. Sótt 8. maí 2025 https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/.

Lækjarfit 1 í Garðabæ árið 2022. Ljósm.: Fasteignasalan Torg. Sótt 8. maí 2025 af https://fastinn.is/soluskra/1038186#images.
Þegar til stóð að reisa nýtt fjölbýlishús á lóðinni við Laugarnesveg 48 þurfti húsið að víkja og steinsteypt hús var byggt á lóðinni árið 1960.
Árið 1957 samþykkti Garðahreppur að húsið væri sett á lóðina Lækjarfit 1 í Garðahreppi (nú Garðabæ). Þar var húsið sett á hærri grunn en þann sem það stóð á við Laugarnesveginn og kjallari gerður að íbúð. Tveir eigendur voru skráðir af húsinu árið 1962, þau Laufey Einarsdóttir sem átti hæðina og risið og Finnbogi Sævar Guðmundsson sem átti kjallarann.2Kortavefur Garðabæjar ásamt gögnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Húsið stendur enn við Lækjarfit 1 og virðist una hag sínum vel.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 8. maí, 2025
Heimildaskrá
- 1Drífa Kristín Þrastardóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2009). Húsakönnun. Laugarnesvegur – Sundlaugavegur – Laugalækur – Hrísateigur – Otrateigur, bls. 21. Minjasafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 150; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 21-01-1928 til 21-06-1930. Aðfnr. 744. Brunavirðinganr. 2448; Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Laugarnesvegur 38. Sótt 8. maí 2025 https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/.
- 2Kortavefur Garðabæjar ásamt gögnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Deila færslu
Síðast uppfært 8. maí, 2025