Söðlasmiðshúsið er vinstra megin á myndinn, gegnt Kaupfélaginu. Rútan stendur fyrir framan Hótel Borgarnes. Ljósm.: Þorsteinn Jósepsson. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. ÞJ_Mýra-451. Sótt 19. júní 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1980558.
Söðlasmiðshúsið er vinstra megin á myndinn, gegnt Kaupfélaginu. Rútan stendur fyrir framan Hótel Borgarnes. Ljósm.: Þorsteinn Jósepsson. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. ÞJ_Mýra-451. Sótt 19. júní 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1980558.

Kveldúlfsgata 1a, Borgarnesi

Heiti: Borg - Söðlasmiðshúsið
Byggingarár: ≈ 1909
Upphafleg notkun: Íbúðarhús og verkstæði
Fyrsti eigandi: Magnús Þorbjarnarson og Ingibjörg Einarsdóttir ?
Aðrir eigendur:
1936 ?: Jón Bjarni Guðmundsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir
1973: Þorgrímur Stefánsson og Anna Ósvaldsdóttir
Upphafleg staðsetning: Egilsgata 14, Borgarnesi
Flutt: 1974 að Kveldúlfsgötu 1a, Borgarnesi
Hvernig flutt: Í heilu lagi á bíl
Kveldúlfsgata 1a 4

Söðlasmiðshúsið híft af grunni sínum árið 1974. Ljósmynd í eigu Ransyar Björnsdóttur. Sótt 19. júní 2024 af https://www.facebook.com/photo?fbid=10222525670037570&set=pcb.634894860642447.

Kveldúlfsgata 1a 5

Söðlasmiðshúsið á leið á áfangastað. Ljósmynd í eigu Ransyar Björnsdóttur. Sótt 19. júní 2024 af https://www.facebook.com/photo?fbid=10222525670037570&set=pcb.634894860642447.

Saga:

Á Facebook-síðunni „Borgarnes Myndir“ er skemmtileg myndasyrpa sem Ransy Björnsdóttir setti þangað í mars 2020. Myndirnar sýna þegar verið er að flytja hús frá Egilsgötu að Kveldúfsgötu 1a í Borgarnesi árið 1974. Þar kemur fram að skipta þurfti um flutningstrukk áður en lagt var af stað með húsið, því bíllinn sem húsið var fyrst sett á bilaði. Einnig sést að húsið var híft af steinsteyptum grunni sem það stóð á og inngönguskúr, sem var við suðurgafl hússins, hefur verið tekinn.1Ransy Björnsdóttir (2020, 20. mars). Borgarnes Myndir. Sótt 19. júní 2024 af https://www.facebook.com/groups/148123219319616/permalink/634894860642447/.

Húsið var númer 14 við Egilsgötu og hefur staðið austan við elsta hluta byggingar Hótel Borgarness, þar sem miðhluti byggingarinnar er í dag.2Heiðar Lind Hansson (2018, 11. desember). Borgarnes Myndir. Sótt 19. júní 2024 af https://www.facebook.com/groups/148123219319616/posts/337012360430700/.

Hús þetta var nefnt Borg, en ætíð kallað Söðlasmiðshúsið því þar bjó og starfaði Magnús Þorbjarnarson (1873-1942) söðlasmiður. Hann settist að í Borgarnesi árið 1907 og tveimur árum síðar gekk hann að eiga Ingibjörgu Einarsdóttur (1878-1953). Líklegt má telja að hús þeirra hafi verið byggt um svipað leyti. Þau eignuðust tvö börn, stúlku, sem dó ung, og son.3Minningarorð um Magnús Þorbjarnarson söðlasmið (1942, 2. desember). Morgunblaðið, 29. árg., 261. tbl., bls. 4; Hjúskapur (1909, 27. júní). Ísafold, 36. árg., 40. tbl., bls. 2; Söðlasmiðir hvítir hrafnar (1976, 10. desember). Morgunblaðið, 63. árg., 272. tbl., bls. 10.

Magnús tók ríkan þátt í félagsmálum og var þar liðtækur í hetra lagi. Meðlimur Félags iðnaðarmanna í Borgarnesi var hann frá stofnun þess. Hann var áhugasamur templari og gegndi trúnaðarstörfum meðal þeirra um langt skeið. Sóknarnefndaroddviti var hann lengi og stóð framarlega í kirkjumálum sóknar sinnar.4Gísli Magnússon (1942, 1. júní). Magnús Þorbjarnarson söðlasmiður. Tímarit iðnaðarmanna, 15. árg., 3. tbl., bls. 47.

Á verkstæði Magnúsar Þorbjarnarsonar söðlasmiðs í Borgarnesi 1925 til 1929. Magnús er í bakgrunni, en í forgrunni er Þórarinn Ólafsson (1885-1947), síðar húsasmiður. Ljósm.: Ljósmyndastofa Óskars og Vignirs. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. 23-30-23. Sótt 29. júní 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=2122114.

Magnús gerði meira en smíða og gera við söðla og önnur aktygi því  hann gerði einnig dívana og væntanlega önnur húsgögn. Hafði hann oftast nemanda eða aðstoðarmann hjá sér í vinnu. Einn nemandanna var Jón Bjarni Guðmundsson (1903-1981), sem byrjaði að læra söðlasmíði hjá Magnúsi á 15. aldursári. Hann hafði síðan vinnustofu sína í húsinu frá árinu 1936, en þá var Magnús hættur störfum vegna heilsubrests, til 1973 þegar honum var gert að flytja úr húsinu, því húsið þurfti að víkja af skipulagsástæðum. Eiginkona Jóns Bjarna var Ingibjörg Guðmundsdóttir (1916-2000).5Söðlasmiðir hvítir hrafnar (1976, 10. desember).

Á gömlum myndum af húsinu má sjá að við norðurenda hússins var viðbygging við húsið. Þar var fjárhús og hlaða.  Á yngri myndum sést að skemman við norðurgaflinn hefur verið fjarlægð og húsið sjálft lengt til norðurs.6Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. ÞJ_Mýra-451. Sótt 19. júní 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1980558; Ingibjörg Hargrave (2018, 30. maí). Borgarnes Myndir. Sótt 19. júní 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10215226913213838&set=gm.205280363603901&idorvanity=148123219319616.

Árið áður en húsið þurfti að víkja af Egilsgötunni vegna fyrirhugaðrar stækkunar Hótels Borgarness bjó Guðrún Broddadóttir í húsinu með fjölskyldu sinni. Henni segist svo frá:

Í þessu húsi leið okkur vel, ´73 -´74, gamla söðlasmiðshúsinu. Við Guðjón Ingvi Stefánsson bjuggum þarna, á efri hæðinni með börnin okkar 3, Elínu, Þorbjörn og Stefán Brodda. Vitað var, að húsið þyrfti að víkja, því fengum við þar inni, til bráðabirgða á meðan raðhúsið okkar, í Þórðargötu 26, var í byggingu og varð íbúðarhæft. Skömmu áður fluttu þaðan seinasti söðlasmiðurinn Jón Bjarni og kona hans Ingibjörg, fluttu þau Kjartansgötuna. Þau hjón voru mikið sómafólk og urðu miklir vinir mínir. Í söðlasmiðshúsinu var ró og friður þó það stæði vart faðmslengd frá hótelinu og beint á móti kaupfélaginu. Í húsinu var einstaklega góður andi, það angaði af leðurlykt en hún vandist vel. Ekki man ég betur en, að á suðurstafninum, gegnt kaupfélaginu, hafi verið steypt merking: SÖÐLASMIÐUR. Mér var sagt að þar hefðu alltaf búið söðlasmiðir(hef lesið um það), enda húsið ávallt kallað Sölasmiðshúsið.7Guðrún Broddadóttir (2020, 20. mars). Borgarnes Myndir. Sótt 19. júní 2024 af https://www.facebook.com/groups/148123219319616/permalink/634894860642447/.

Það voru hjónin Þorgrímur Stefánsson, þá byggingarfulltrúi í Borgarnesi, og Anna Ósvaldsdóttir, sem afgreiddi í apótekinu og síðar í Kaupfélaginu, sem keyptu húsið og létu flytja það að Kveldúlfsgötu 1a, þar sem það stendur fyrir framan, en áfast, steinsteyptu húsi, sem byggt var 1975.8Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir (2020, 20. mars). Borgarnes Myndir. Sótt 19. júní 2024 afSótt 19. júní 2024 af https://www.facebook.com/groups/148123219319616/permalink/634894860642447/; Kortasjá Borgarbyggðar. Teikning Þorgríms Stefánssonar, dags. október 1971. Sótt 19. júní 2024 af  https://snorri.borgarbyggd.is/teikningar/bor_20070705_851.pdf. Ef grannt er skoðað ber gluggaskipan timburhússins enn yfirbragð gamla Söðlasmiðshússins.

Kortasjá Borgarbyggðar. Teikning Þorgríms Stefánssonar, dags. október 1971. Sótt 19. júní 2024 af  https://snorri.borgarbyggd.is/teikningar/bor_20070705_851.pdf.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. júní, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. júní, 2024