Krosseyrarvegur 11, líklega um 1925. Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 124. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið. Sótt 30. janúar 2023 af https://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/Husakonnun-Vesturbae-jan-2021.pdf.
Krosseyrarvegur 11, líklega um 1925. Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 124. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið. Sótt 30. janúar 2023 af https://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/Husakonnun-Vesturbae-jan-2021.pdf.

Krosseyrarvegur 11, Hafnarfirði

Heiti: Sigurjónsbær - Garðhús
Byggingarár: >1900
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Sigurjón Jónsson
Upphafleg staðsetning: Í landi Stóru-Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd
Flutt: 1921 að Krosseyrarvegi 11, Hafnarfirði
Hvernig flutt: Tekið niður og viðirnir fluttir sjóleiðina
Krosseyrarvegur 11 1

Krosseyrarvegur 11 í nóvember 2010, norðurhlið og austurgafl. Ljósm.: Friðrik S. Einarsson.

Krosseyrarvegur 11 2

Krosseyrarvegur 11, í júlí 2013. Suðurhlið. Ljósm.: https://www.google.com/maps.

Saga:

Rétt eftir aldamótin 1900 byggðu Sigurjón Jónsson (f. 1873) og sambýliskona hans, Guðrún Filippusdóttir (f. 1869), tómthús í landi Stóru-Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd. Húsið var byggt niður við sjó og nefndist Garðhús. Bærinn var einnig nefndur Sigurjónsbær. Þau bjuggu þar í næstum 20 ár, en fluttu þá til Hafnarfjarðar, rifu bæinn og byggðu hann upp að nýju á lóð númer 11 við Krosseyrarveg. Síðan hafa Garðhús verið í eyði.1Guðmundur B. Jónsson (1987). Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, bls. 351 og 363. [Útg.staðar ekki getið:] Höfundur; Kristborg Þórsdóttir (2021). Deiliskráning fornleifa í landi Stóru-Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd, bls. 25-26. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses. Skýrsla nr. FS847-21271.

Áður en Sigurjón flutti húsið tók hann það niður spýtu fyrir spýtu, batt viðina saman í knippi og flutti þá sjóleiðina til Hafnarfjarðar. Hann fékk mælda út lóð fyrir húsið við Krosseyrarveg 11 í Hafnarfirði árið 1921, þar sem húsið stendur enn, og árið eftir var húsið brunavirt fyrst. Þá var því lýst þannig:

a, Húsið er einlyft með risi 0,80m. Því er skipt í 2 herbergi og eldhús. Klætt innan með panel og herbergin með veggfóðri. 4 gluggar á húsinu 1 eldavél go 1 ofn í húsinu. Undir húsinu er 1m. hár steisteyptur kjallari notaður til geymslu. 2 gluggar á kjallara.“
b, Skúr við vesturenda hússins þiljaður innan. Stærð: L. 1,60m. B. 2m. H. 2,40m. 1 gluggi á inngönguskúr.2Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 124. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.

Árið 1932 var húsið lengt, ris hækkað og kvistur setur á þakið sunnanmegin.3Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 124.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023