Kringlumýri, Skagafirði
Saga:
Árið 1892 hóf Kristján Gíslason (1863-1954) kaupmaður að reisa íbúðar- og verslunarhús við Aðalgötu á Sauðárkróki, neðst í Kristjánsklaufinni, örlítið vestar en húsið Kaupvangstorg 1 er í dag (2024). Þar bjó Kristján og verslaði meðan hann bjó á Sauðárkróki og bætti oft við húsið. Þarna rak hann síðan verslun um hálfrar aldar skeið.1Kristmundur Bjarnason (1969). Saga Sauðárkróks. Fyrri hluti fram til ársins 1907, bls. 190 og 237. Sauðárkróki: SauðárkrókskaupstaðurGuðný Zoëga og Sólveig Olga Sigurðardóttir (2018). Verndarsvæði í byggð – Sauðárkrókur. Fornleifaskráning, bls. 35-36. Byggðasafn Skagfirðinga. Rannsóknaskýrslur 2018/200.
Í Virðingarbók frá árinu 1917 var húsi Kristjáns, svokölluðu Kristjánshúsi eða K.G. í daglegu tali lýst þannig:
Húsið er ein hæð með porti, risi og kvisti að austan en vesturpartur tvær hæðir. Niðri ein sölubúð, 2 skrifstofur og önnur með ofni. 1 vörugeymsluherbergi, 1 eldhús með eldavél, 1 búr, 2 íbúðarherbergi veggfóðruð og máluð, með ofni. Gangur með þverskilrúmi, 1 forstofa og útúrbyggður forstofuskúr. Öll þessi herbergi þiljuð og máluð að undanskildu vörugeymsluherberginu. Á loftinu: 7 íbúðarherbergi veggfóðruð og máluð, í þeim 2 ofnar, 2 vörugeymsluherbergi. Kjallari undir ca. ½ húsinu, skipt í 5 geymsluherbergi og í einu þeirra þvottapottur. Kjallarinn hlaðinn og steinlímdur með steinsteyptu gólfi. Tveir reykháfar, annar hlaðinn en hinn steinsteyptur og ganga rör frá eldstæðum í þá. Veggir úr timbri og járni, þak úr timbri, pappa og járni. Mál: 15 x 10,2.2Guðný Zoëga og Sólveig Olga Sigurðardóttir (2018), bls. 36.
Stofninn að húsinu er talinn vera svonefnd Gilsstofa, sem fjallað er um hér.
Árið 1985 fékk Sigurður Hansen bóndi í Kringlumýri í Skagafirði að hirða það sem eftir var af húsum Kristjáns Gíslasonar gegn því að flytja þau burtu. Hugmynd Sigurðar var að nýta efnið úr húsunum til að koma upp byggingu í Kringlumýri.3Sólborg Una Pálsdóttir (2023). Húsaskrá Akrahrepps. Yfirlit, bls. 24-25. Héraðsskjalasafn Skagfirðinga.
Þegar húsið var tekið niður tók Sigurður Hansen eftir því að hluti byggingarinnar (suðurhlutinn) var mjög gamall. Eftir nokkra rannsókn var niðurstaðan sú að hér væri Gilsstofan komin. Sá hluti byggingarinnar var fluttur og gerður upp í Glaumbæ og stendur þar enn sem hluti af safnasvæði Byggðasafns Skagfirðinga. Norðurhlutinn, líklega byggður 1892, var nýttur í byggingu á Kringlumýri sem kallaður er vinnustofa. Eftir lýsingum Sigurðar að dæma þá hefur Gilsstofan og viðbygging Kristjáns verið algjörlega sambyggð, þ.e. að gólfborðin í húsahlutunum voru heil á milli húsa. Húsið snýr í dag öfugt við það sem það gerði á Króknum, það sem er upprunalegt af þakinu er á suðvesturhelmingi þess en annað er frá því að það var endurbyggt í Kringlumýri, sperrur og þakklæðning. Það sem nú er norðausturhorn hússins, var mikið fúið, bæði grind og klæðningar en þar hafði verið baðherbergi á efri hæðinni og þurfti að endurnýja það horn. Allt annað er meira og minna óhreyft að innanverðu, s.s. grind, klæðning, gólfborð, hurðir og fleira þótt klætt hafi verið yfir sumt. Enn er þó t.d. hægt að sjá mörg lög af betrekki sem snéru að gilstofuhlutanum og leifar af gólfdúk á baðherberginu á efri hæðinni. Hins vegar er búið að setja parket og gólfhitalagnir yfir gömlu gólffjalirnar í búðarhlutanum, en af sliti á þeim mátti sjá hvar búðarborðið hafði staðið ofl. Klæðning að utanverðu er sömuleiðis að miklu leyti á sínum stað undir bárujárni sem sett var utaná húsið. Samkvæmt þessu þá ætti húsið í raun og veru að falla í flokk friðaðra húsa en leiðrétta þarf bygginarár.4Sólborg Una Pálsdóttir (2023), bls. 25.
Enn stendur húsið í Kringlumýri, kallað Vinnustofan. Þar hafa m.a. verið haldnir handverksmarkaðir.5Feykir.is. Helgarmarkaður í Kringlumýri um helgina (2013, 21. júní). Sótt 3. apríl 2024 af https://www.feykir.is/is/skagafjordur/helgarmarkadurinn-i-kringlumyri-um-helgina.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 8. apríl, 2024
Heimildaskrá
- 1Kristmundur Bjarnason (1969). Saga Sauðárkróks. Fyrri hluti fram til ársins 1907, bls. 190 og 237. Sauðárkróki: SauðárkrókskaupstaðurGuðný Zoëga og Sólveig Olga Sigurðardóttir (2018). Verndarsvæði í byggð – Sauðárkrókur. Fornleifaskráning, bls. 35-36. Byggðasafn Skagfirðinga. Rannsóknaskýrslur 2018/200.
- 2Guðný Zoëga og Sólveig Olga Sigurðardóttir (2018), bls. 36.
- 3Sólborg Una Pálsdóttir (2023). Húsaskrá Akrahrepps. Yfirlit, bls. 24-25. Héraðsskjalasafn Skagfirðinga.
- 4Sólborg Una Pálsdóttir (2023), bls. 25.
- 5Feykir.is. Helgarmarkaður í Kringlumýri um helgina (2013, 21. júní). Sótt 3. apríl 2024 af https://www.feykir.is/is/skagafjordur/helgarmarkadurinn-i-kringlumyri-um-helgina.
Deila færslu
Síðast uppfært 8. apríl, 2024