Kópnesbraut 10, Hólmavík
Saga:
Hjónin Þórólfur Jónsson og Sigríður Valgeirsdóttir bjuggu í Vonarholti í Arnkötludal á árunum 1909 til 1922.1Óli E. Björnsson (1990). Hólmavíkurbók, bls. 158. [Hólmavík:] Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps. Þó þau hjón væru ekki vel efnum búin komust þau vel af og voru oftar veitendur en þiggjendur í samskiptum við aðra. Enda voru þau bæði dugnaðarfólk, auk búskapar stundaði Þórólfur mikið sjó og var einnig smiður góður. Sigríður var víðkunn fyrir prjónaskap og henni féll sjaldan verk úr hendi. Þeim tókst að koma sér upp timburhúsi á jörðinni áður en þau fluttu að Fjarðarhorni í Gufudalssveit. Í bókinni Sýslað í baslinu segir að þau hafi einungis búið 10 ár á Vonarholti, því þau álög hafi hvílt á jörðinni að þar mætti enginn búa lengur en tíu ár samfellt án þess að verða fyrir einhverju óláni.2Jón frá Pálmholti (1975). Sýslað í baslinu. Minningar Guðmundar Jónssonar frá Selbekk í Steingrímsfirði og síðar á Ingunnarstöðum, bls. 63-66. Reykjavík: Letur.
Árni E. Jónsson keypti húsið í Vonarholti og flutti til Hólmavíkur með aðstoð ábúandans, Sigurðar Helgasonar. Óli E. Björnsson segir þetta hafa verið um 1940, en í Fasteignaskrá Íslands er húsið sagt byggt 1935 og er þá líklega miðað við árið sem það var flutt. Síðar fékk húsið nafnið Steinholt, en það stendur við Kópnesbraut 10.3Óli E. Björnsson (1990), bls. 159
Leitarorð: Arnkötludalur – Strandir – Steingrímsfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. desember, 2025
Heimildaskrá
- 1Óli E. Björnsson (1990). Hólmavíkurbók, bls. 158. [Hólmavík:] Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps.
- 2Jón frá Pálmholti (1975). Sýslað í baslinu. Minningar Guðmundar Jónssonar frá Selbekk í Steingrímsfirði og síðar á Ingunnarstöðum, bls. 63-66. Reykjavík: Letur.
- 3Óli E. Björnsson (1990), bls. 159
Deila færslu
Síðast uppfært 1. desember, 2025