Kollavík, Þistilfirði

Heiti: Skuld - Kollavík
Byggingarár: ≈ 1860
Horfið:
Brann: 1972
Upphafleg notkun: Verslun
Fyrsti eigandi: Bjarni Þorsteinsson og Anna Sigríður Hjaltalín
Aðrir eigendur:
1866: Bjarni Þorsteinsson
≈ 1875: Katrín Þorsteinsdóttir / Ágúst Þorsteinsson ?
1949-1979: Ketill Björgvinsson og Karólína Jakobsdóttir
Upphafleg staðsetning:

Við norðanverða höfnina á Raufarhöfn, þar sem Aðalbraut 2 er nú (2025)

Flutt:

Um 1889 til Kollavíkur í Þistilfirði

Saga:

Árið 1855 gengu þau Bjarni Þorsteinsson og Anna Sigríður Hjaltalín (1832-1866) í hjónaband og hófu búskap á Raufarhöfn, jörð föður Önnu Sigríðar. Bjarni var hreppstjóri sveitarfélagsins um tíma, gerði út báta sem hann smíðaði sjálfur og rak smáverslun með búskapnum.1Níels Árni Lund (2016). Sléttunga III. Safn til sögu Melrakkasléttu. Raufarhöfn, bls. 25. Reykjavík: Skrudda ehf.

Verslaði hann mest með afgangsvörur frá „spekulantaskipum“ sem seldu oftast með niðursettu verði til að rýma fyrir innlendri vöru til útflutnings. Hann byggði fyrir þessa verslun sína hús suður við lækinn rétt sunnan við lóðarmörk „Búðarinnar“. Síðar keypti það hús Ágúst Þorsteinsson (Thorsteinsson, 1857-1929) bókbindari frá Hermundarfelli og gerði það að gistihúsi.2Níels Árni Lund (2016), bls. 25.

Húsið stóð þar sem Hótel Norðurljós er nú (2025).3Lilja Laufey Davíðsdóttir og Ragnheiður Gló Gylfadóttir (2016). Aðalskráning[skráning] fornleifa í Raufarhafnarhreppi og skráning fornleifa á deiliskipulagsreit við Heimskautsgerði, bls. 31. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses.

Lífið virtist blasa við ungu hjónunum þegar þau hófu búskap, en eftir um 10 ára hjónaband og þegar þau hjón höfðu eignast fjögur börn, missti Bjarni eiginkonu sína og eldri dóttur með skömmu millibili. Þá fór verulega að halla undan fæti hjá Bjarna og hann hóf mikla víndrykkju og fór oft ekki vel að ráði sínu. Þegar hann fór frá Raufarhöfn á árunum 1875 til 1876 var hann búinn að missa börn sín frá sér, var orðinn snauður förumaður og talinn hálfruglaður. Um það leyti keypti Ágúst frá Hermundarfelli húsið.4Níels Árni Lund (2016), bls. 25-26.

Höfundi hefur verið bent á að það hafi ekki verið Ágúst sem keypti húsið af Bjarna, heldur Katrín Þorsteinsdóttir (Thorsteinsson, 1847-1914),  ekkja með þrjú börn, sem hugðist hafa framfæri sitt og barna sinna af gisti- og veitingasölu. Þau Ágúst og Katrín giftust um 1881. Þau breyttu húsinu nokkuð innan húss svo það hentaði betur hlutverki sínu.5Harpa Hreinsdóttir (2025, 12. október). Tölvupóstur; Níels Árni Lund (2016), bls. 128. „Ágúst nefndi nú húsið „Skuld“ því hann hefur trúlega lent í einhverja skuld við kaupin á húsinu og breytinguna þar innan veggja.“6Níels Árni Lund (2016), bls. 128. Í Sléttungu III kemur fram að um 1890 hafi þau hjón flutt með börn sín til Reykjavíkur.7Níels Árni Lund (2016), bls. 128.

Heimildarmaður höfundar segir hins vegar að þau hjón hafi flutt í Kollavík í Þistilfirði árið 1889 með þrjú börn.8Harpa Hreinsdóttir (2025, 12. október). Ekki verður hægt að skilja heimildir öðruvísi en að þá hafi þau flutt hús sitt með sér. Í íbúatali Kollavíkur, sem varðveitt er í Héraðsskjalasafni Þingeyinga, kemur fram að þau hafi búið í Kollavík frá 1889 til 1894.9Héraðsskjalasafn Þingeyinga. Íbúatal Kollavíkur.

Eftir að húsið kom í Kollavík var byggð við það baðstofa og þannig var húsið notað sem íbúðarhús þar til nýtt íbúðarhús var byggt á jörðinni árið 1945. Þá var baðstofan tekin rifin og húsið nýtt sem geymsla og reykhús. Árið 1972 kviknaði í húsinu þegar verið var að reykja kjöt í því. Einnig kviknaði í íbúðarhúsinu þannig að það varð óíbúðarhæft og allt innbú og mikið af matvælum skemmdust þannig að hjónin Ketill Björgvinsson (1909-1993) og Karolína Jakobsdóttir (1918-2008) urðu fyrir miklu tjóni, en ekkert manntjón varð.

Gamla húsið er lengst til hægri á þessari mynd af bæjarstæði Kollavíkur sem tekin var árið 1963.10Jakobína Ketilsdóttir (2025, 15. október). Munnleg heimild; 2 bæir brunnu í gær. (1972, 24. október). Morgunblaðið,  59. árg., 242. tbl., bls. 32.

Kollavík við Þistilfjörð árið 1963. Ljósmynd í eigu Héraðsskjalasafns Þingeyinga.

Leitarorð: Þistilfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 27. apríl, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 27. apríl, 2026