Knudtzonverslun, Keflavík
Náströnd, á mörkum Keflavíkur og Njarðvíkur
1848 til Keflavíkur
Saga:
Ströndin á mörkum Keflavíkur og Njarðvíkur var og er nefnd Náströnd. Fyrstu mannvirkin þar voru líklega verslunarhús þeirra mága P. C. Knudtzons og Thomasar Thomsen, því þeir hófu þarna verslunarrekstur árið 1823 eða 1824. Árið 1833 seldi Thomsen mági sínum sinn hluta eignanna. Þær voru: hús með þremur herbergjum, eldhúsi og krambúð á kjallara, pakkhús, sjóbúð, smiðja, garður og brunnur. Sagt er að Knudtzon hafi orðið gjaldþrota árið 1842 og hafi þá engin verslun verið rekin í húsum hans. „Árið 1843 hófst rekstur hans að nýju eins og ekkert hefði í skorist.“ Árið 1848 jók hann enn umsvif sín og keypti eignir Flensborgarverslunarinnar í Keflavík. Þá voru hús hans á Náströnd ýmist flutt á athafnasvæðið í Keflavík eða rifin og lagðist þá verslunarrekstur af á Náströnd um nokkurra ára skeið.
Ekki er vitað um nein örugg ummerki um þessi hús í dag, en árið 1888 voru verslunarhús Flensborgarverslunarinnar rifin og nýtt hús byggt í þeirra stað. Það hús stendur enn að stofni til við Hafnargötu nr. 6 í Keflavík.
Norðmaðurinn P. C. Knudtzons (1789-1864) var mikill athafnamaður, og þó honum sæist ekki ætíð fyrir í verslunarrekstri naut hann mikillar virðingar í heimalandi sínu. Hann átti eignir víðs vegar um land og koma nokkrar þeirra við sögu á þessum vef. Þess má geta að hann stóð fyrir því að reisa vindmyllur í Keflavík og á Hólavelli í Reykjavík, en þá myllu seldi hann síðar Bernhöft bakara.1Bjarni Guðmarsson (1992). Saga Keflavíkur 1766-1890, bls. 206-213. [Keflavík:] Keflavíkurbær; Jón Helgason (1916). Þegar Reykjavík var fjórtán vetra. Brot úr sögu Reykjavíkur, bls. 99-100. Reykjavík: Prentsmiðjan Gutenberg.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 26. febrúar, 2026
Heimildaskrá
- 1Bjarni Guðmarsson (1992). Saga Keflavíkur 1766-1890, bls. 206-213. [Keflavík:] Keflavíkurbær; Jón Helgason (1916). Þegar Reykjavík var fjórtán vetra. Brot úr sögu Reykjavíkur, bls. 99-100. Reykjavík: Prentsmiðjan Gutenberg.
Deila færslu
Síðast uppfært 26. febrúar, 2026