Hafnargata 51 híft af grunni sínum árið 1993. Ljósm.: Gísli Sigurðsson. Heimild: Keflavík og Keflvíkingar. Sótt 20. mars 2025 af https://www.facebook.com/groups/59627962212/search/?q=klapparst%C3%ADg.
Hafnargata 51 híft af grunni sínum árið 1993. Ljósm.: Gísli Sigurðsson. Heimild: Keflavík og Keflvíkingar. Sótt 20. mars 2025 af https://www.facebook.com/groups/59627962212/search/?q=klapparst%C3%ADg.

Klapparstígur 2, Keflavík, Reykjanesbæ

Byggingarár: 1932
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Ágústa Sigurjónsdóttir og Jón Sigurðsson
Aðrir eigendur:
1993: Keflavíkurbær
Upphafleg staðsetning: Hafnargata 51, Keflavík, Reykjanesbæ
Flutt: 1993 að Klapparstíg 2, Keflavík, Reykjanesbæ
Hvernig flutt: Í heilu lagi
Capture

Heimild: Til sölu Hafnargata 51 (1993, 11. febrúar). Víkurfréttir, 14. árg., 6. tbl., bls. 4

Klapparstígur 2 (1)

Saga:

Í fasteignaskrá er húsið sem nú stendur við Klapparstíg 2 í Keflavík í Reykjanesbæ sagt reist árið 1932. Það voru hjónin Ágústa Sigurjónsdóttir (1899-2000) og Jón Sigurðsson (1897-1966) sem byggðu húsið við Hafnargötu 51 í Keflavík, og þar bjó Jón til æviloka og Ágústa líklega til ársins 1992.1Ágústa Sigurjónsdóttir 100 ára (1999, 1. desember). Faxi, 59. árg., 4. tbl., bls. 77.

Í febrúar árið 1993 var Keflavíkurbær orðinn eigandi hússins og auglýsti eftir tilboðum í húsið og flutning þess á lóð númer 2 við Klapparstíg í Keflavík. Bærinn tók tilboði Húsaness sf. í verkið og hefur húsið eflaust verið flutt sama ár.2Til sölu Hafnargata 51 (1993, 11. febrúar). Víkurfréttir, 14. árg., 6. tbl., bls. 4; Húsanes fær flutninginn (1993, 4. mars). Víkurfréttir, 14. árg., 9. tbl., bls. 14.

Húsið var flutt í heilu lagi og stendur enn við Klapparstíg 2, þar sem sjá má að það nýtur góðrar umhyggju og viðhalds.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025