Breiðabólsstaður á árunum 1966 til 1968. Búið er að byggja við íbúðarhúsið, en ekki byggja nýtt hús. Ljósm.: Sigurhans Vignir. Myndin er í eigu Byggðasafns Dalamanna. Heimild: Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. 2012-1-202.
Breiðabólsstaður á árunum 1966 til 1968. Búið er að byggja við íbúðarhúsið, en ekki byggja nýtt hús. Ljósm.: Sigurhans Vignir. Myndin er í eigu Byggðasafns Dalamanna. Heimild: Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. 2012-1-202.

Kjallaksstaðir (Kjarlaksstaðir), Fellsströnd, Dalabyggð

Heiti: Breiðabólsstaður - Kjarlaksstaðir
Byggingarár: 1930
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Þórður Kristjánsson og Steinunn Þorgilsdóttir
Aðrir eigendur:
1984: Halldór Þórðarson
1992: Helgi Þorgils Friðjónsson
Upphafleg staðsetning: Breiðabólsstaður, Fellsströnd
Flutt: 1993 að Kjallaksstöðum, Fellsströnd
Hvernig flutt: Í heilu lagi á flutningavagni
Híft á flutningavagn

Húsið híft á flutningsvagn á Breiðabólsstað. Ljósm. í eigu Guðbjörns Guðmundssonar.

Á vegi

Húsið í lögreglufylgd í leið á áfangastað. Ljósm. í eigu Guðbjörns Guðmundssonar.

Saga:

Árið 1918 gengu þau Steinunn Þorgilsdóttir (1892-1984) og Þórður Kristjánsson (1890-1967) í hjónaband. Þá hófu þau búskap í Knarrarhöfn í Hvammssveit þaðan sem Steinunn var. Þaðan fluttust þau árið 1921 að Breiðabólsstað á Fellsströnd, þar sem Þórður var fimmti ættliðurinn sem stundaði þar búskap. Þar bjuggu þau hjón bæði til dauðadags.

Árið 1930 byggðu þau hjón nýtt íbúðarhús á jörðinni, sem þau stækkuðu síðan um 1955. Vafalaust hefur verið orðið þröngt um heimafólk því börn hjónanna voru sex og heimilið mannmargt.

Þórði voru falin margvísleg trúnaðarstörf fyrir sveit sína og söfnuð. Á fyrstu búskaparárum sínum tók hann sæti í hreppsnefnd og frá árinu 1936 var hann hreppstjóri Fellsstrandarhrepps. Einnig sat hann lengi í sóknarnefnd og var sóknarnefndarformaður um tíma, auk þess að vera meðhjálpari og forsöngvari.

Steinunn setti einnig mark sitt á sveit sína. Hún lauk prófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík árið 1914 og hafði mikinn áhuga á menntun barna og unglinga. Hún stundaði kennslu utan heimilis í 9 ár og tók eftir það börn og unglinga á heimili sitt allt til ársins 1950. Hún var prófdómari við Staðarfellsskóla allt frá stofnun hans árið 1927 og sat í skólaráði frá 1939 til dauðadags. Steinunn var sæmd fálkaorðunni fyrir störf sín að félags- og menntamálum í Dalasýslu.

Um 1984 var byggt nýtt íbúðarhús á Breiðabólsstað og var því ekki lengur þörf fyrir gamla húsið þar. Þá var Halldór, yngsta barn þeirra Steinunnar og Þórðar, eigandi Breiðabólsstaða. Gamla húsið eignaðist þá barnabarn þeirra, Helgi Þorgils Friðjónsson myndlistarmaður, sem flutti það að Kjallaksstöðum á Fellsströnd þar sem það stendur enn og er nýtt sem sumarhús fjölskyldunnar. Húsið var flutt í heilu lagi á flutningavagni árið 1993, en viðbyggingin frá 1955 var ekki flutt með húsinu.1Ásgeir Ingibergsson (1967, 27. maí). Þórður Kristjánsson Breiðabólsstað, kveðja. Morgunblaðið, 54. árg., 116. tbl., bls. 20; Steinunn Þorgilsdóttir Breiðabólstað (1984, 3. nóvember). Morgunblaðið, 71. árg., 213. tbl., bls. 32; Þrúður Kristjánsdóttir (2015, 17. júní). Steinunn Þorgilsdóttir 1892-1984, Knarrarhöfn, Breiðabólsstaður. Skessuhorn, 25. tbl., bls. 36; Pétur Ástvaldsson (2025, 16. febrúar). Tölvupóstur; Þrúður G. Haraldsdóttir (2024, 1. febrúar). Tölvupóstur; Helgi Þorgils Friðjónsson (2025, 10. september). Munnleg heimild.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 27. september, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 27. september, 2025