Kirkjuvegur 47, Keflavík, Reykjanesbæ
Stafnes / Hvalsnes, Miðneshreppi, nú Suðurnesjabæ
Saga:
Árið 1949 leigði eigandi landareignarinnar Keflavík Sveinrúnu Bjarnadóttur (1913-1972) lóð undir íbúðarhús, „… sem flutt verður frá Stafnesi í Miðneshreppi á lóðina Kirkjuveg , Keflavík …“ Númerið á lóðinni kemur ekki fram í samningnum, en samningurinn er varðveittur með gögnum um húsið númer 47 við Kirkjuveg í skjalasafni Reykjanesbæjar. Í samningnum er húsið sagt vera 56 fermetrar að grunnfleti með skúr sem var við það og er það væntanlega inngönguskúr í húsið.1Gögn í skjalasafn byggingafulltrúa Reykjanesbæjar.
Sveinrún var rúmlega tvítug þegar hún giftist Vilhjálmi Torfasyni (1906-1942) sjómanni, en hann fórst með togaranum Jóni Ólafssyni árið 1942, þar sem hann var háseti. Sveinrún stóð þá ein með 4 börn, það elsta 7 ára. Þá var fjölskyldan til heimilis í Höfðaborginni í Reykjavík. Síðar átti Sveinrún eftir að eignast 3 börn til viðbótar.2Togarinn „Jón Ólafsson“ týnist með allri áhöfn (1942, 1. nóvember). Ægir, 35. árg., 11.-12. tbl., bls. 268-270; Sveinrún Bjarnadóttir – Minning (1972, 8. nóvember). Morgunblaðið, 255. tbl., bls. 23.Það hefur því verið mikið þrekvirki fyrir einstæða fjögurra barna ekkju að ráðast í húsakaup og húsaflutning.
Ein dætra Sveinrúnar minnist þess að þegar móðir hennar keypti húsið hafi verið kalt í því og þar var ekki rafmagn, heldur lýst upp með olíulömpum.3Kristjana Auður Combs (Vilhjálmsdóttir) (2012, 19. febrúar). Keflavík og Keflvíkingar. Sótt 13. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo?fbid=3200948379931&set=gm.10150545387842213.

Nafnið „Moshúsin“ er skrifað innan á panel í Kirkjuvegi 47 í Keflavík. Ljósm.: Styrmir Geir Jónsson. Sótt 4. maí 2026 af https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10241712523647171&set=p.10241712523647171&type=3.
Höfundi hefur ekki tekist að finna upplýsingar um húsið á Stafnesi, en Styrmir Geir Jónsson segir að það hafi verið byggt árið 1928 á Hvalsnesi og verið annað af tveimur húsum sem kallaðist Moshúsin því þegar verið var að skipta um einangrun í húsinu um 2005 hafi nafnið Moshúsin verið skrifað á innanverðan panelinn.4Styrmir Geir Jónsson (2012, 19. febrúar). Keflavík og Keflvíkingar. Sótt 16. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=3200948379931&set=gm.10150545387842213; Styrmir Geir Jónsson (2026, 2. maí). Sótt 4. maí 2026 af https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10241712523647171&set=p.10241712523647171&type=3.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. maí, 2026
Heimildaskrá
- 1Gögn í skjalasafn byggingafulltrúa Reykjanesbæjar. ↩︎
- 2Togarinn „Jón Ólafsson“ týnist með allri áhöfn (1942, 1. nóvember). Ægir, 35. árg., 11.-12. tbl., bls. 268-270; Sveinrún Bjarnadóttir – Minning (1972, 8. nóvember). Morgunblaðið, 255. tbl., bls. 23. ↩︎
- 3Kristjana Auður Combs (Vilhjálmsdóttir) (2012, 19. febrúar). Keflavík og Keflvíkingar. Sótt 13. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo?fbid=3200948379931&set=gm.10150545387842213. ↩︎
- 4Styrmir Geir Jónsson (2012, 19. febrúar). Keflavík og Keflvíkingar. Sótt 16. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=3200948379931&set=gm.10150545387842213; Styrmir Geir Jónsson (2026, 2. maí). Sótt 4. maí 2026 af https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10241712523647171&set=p.10241712523647171&type=3. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 4. maí, 2026