Kirkjuvegur 46, Keflavík, Reykjanesbæ
Kirkjuvegur 46, Keflavík, líklega um 2011. Ljósm.: Sigurbjörn Arnar Jónsson. Sótt 19. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo?fbid=10150253434824840&set=gm.10150522641907213.
Kirkjuvegur 46, Keflavík. Ljósm. í eigu Helga Biering. Birt með leyfi eiganda.
Saga:
Í júní 1930 var gert fasteignamat á hús í eigu Sigurðar Erlendssonar (1879-1945) sem stóð við Suðurgötu 17 í Keflavík og byggt tveimur árum áður.
Eftirfarandi upplýsingar koma fram í húsakönnun sem Helgi Biering þjóðfræðingur gerði um húsið árið 2019:
Samkvæmt fasteignamati árið 1930 var húsið upphaflega reist úr trégrind sem var klædd timbri, pappa og bárujárni. Húsið var skráð ein hæð og með ris. Hæð hússins var skráð 6,9 m löng, 6,3 m breið og hæð 3,6 m. Risið var skráð 2,5 m hátt. Inngönguskúrinn var sagður 2,9 m langur, 1,8 m breiður og 2,5 m hár. Húsið sagt hlýtt og þurrt. Það var skráð ein íbúð með fjögur herbergi.
Engin baðtæki, vatnssalerni né vatnslögn var í húsinu.
Upphitun var ofn og eldavél. Og lýsing var rafmagn.
Kjallari var undir húsinu og var hann mældur tveggja metra hár og var nýttur sem geymsla, um tíma einnig til að hýsa geitur. Kjallarinn sagður þurr og engin íbúð í honum.
Eignin var brunavirt í nóvember 1928 upp á 12.000 krónur.
Í fasteignamatsblaði frá 1930 kemur fram að húsið hafi verið í sjálfseign og aldrei verið selt.
Húsið stóð á 975 fermetra lóð sem var nýtt til ræktunar. Á henni var 200 fermetra matjurtagarður og lóðin afgirt með „Vírnet á tréstólpum.“1Helgi Biering (2019). Húsakönnun. Kirkjuvegur 46 í Reykjanesbæ, bls. 2. Útg.: Höfundur.
Eiginkona Sigurðar var Ágústa Guðjónsdóttir (1883-1959). Þau eignuðust 9 börn og hefur því oft verið þétt setinn bekkurinn í húsinu, sem þau bjuggu í til æviloka. Sigurður var framan af ævi fengsæll formaður, en síðan gerðist hann fiskimatsmaður.2Valtýr Guðmundsson (1959, 23. maí). Ágústa Guðjónsdóttir, Keflavík – Minning. Morgunblaðið, 46. árg., 112. tbl., bls. 15; Dánarfregn (1945, 1. janúar). Faxi, 5. árg., 1. tbl., bls. 7.
Árið 1981 þurfti húsið að víkja af Suðurgötunni því rýma þurfti fyrir byggingu dvalarheimilis aldraðra á Suðurnesjum, Hvammi. Húsið var þá flutt á lóð númer 46 við Kirkjuveg. „Þar er það sett á mun lægri sökkul svo að aðeins er um 80 sentimetra skriðkjallari undir húsinu í stað þess tveggja metra háa sem áður var. 1994 er svo fengið leyfi fyrir stækkun og verulegri breytingu á ytra útliti hússins en þá er byggt við húsið tvö svefnherbergi og stofa.“3Helgi Biering (2019), bls. 4.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025
Heimildaskrá
- 1Helgi Biering (2019). Húsakönnun. Kirkjuvegur 46 í Reykjanesbæ, bls. 2. Útg.: Höfundur.
- 2Valtýr Guðmundsson (1959, 23. maí). Ágústa Guðjónsdóttir, Keflavík – Minning. Morgunblaðið, 46. árg., 112. tbl., bls. 15; Dánarfregn (1945, 1. janúar). Faxi, 5. árg., 1. tbl., bls. 7.
- 3Helgi Biering (2019), bls. 4.
Deila færslu
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025


