Miðbær, við Aðalgötu 10, Ólafsfirði, vesturhlið.  Heimild: Friðrik G. Olgeirsson (1984). Hundrað ár í Horninu. Saga Ólafsfjarðar 1883-1944, bls. 110. Útg.: Ólafsfjarðarkaupstaður.
Miðbær, við Aðalgötu 10, Ólafsfirði, vesturhlið. Heimild: Friðrik G. Olgeirsson (1984). Hundrað ár í Horninu. Saga Ólafsfjarðar 1883-1944, bls. 110. Útg.: Ólafsfjarðarkaupstaður.

Kirkjuvegur 4, Ólafsfirði

Heiti: Miðbær
Byggingarár: 1928
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Stefán Hafliði Steingrímsson og Jónína Kristín Gísladóttir
Aðrir eigendur:
1973: Snjólaug Jónmundsdóttir
1976: Ómar Aðalbjörnsson og Vala Gunnarsdóttir
1978: Sparisjóður Ólafsfjarðar
1983: Lilja Kristinsdóttir og Hrafn Ragnarsson
2015: Kristinn E. Hrafnsson
Upphafleg staðsetning:

Aðalgata 10, Ólafsfirði

Hvernig flutt: Í heilu lagi
b6a2e067-355d-476d-8a0a-fa8221edec11

Fannfergi á Ólafsfirði um 1970. Miðbær á sínum upprunalega stað er lengst til vinstri á myndinni. Ljósmynd af vef Minjasafnsins á Akureyri.

73370552_1347678282062926_1855362710082945024_n-Small-1

Miðbær fluttur að Kirkjuvegi árið 2019. Ljósm.: Jón Valgeir Baldursson. Heimild: Heilt hús flutt um miðbæ Ólafsfjarðar – Héðinsfjörður – Fréttavefur í Fjallabyggð

IMG_8234

Miðbær settur á nýjan steinsteyptan grunn við Kirkjuveg. Ljósm. í eigu Kristins E. Hrafnssonar.

Screenshot 2026-02-19 112555

Kirkjuvegur 4, Ólafsfirði, í júlí 2023. Ljósm.: Ja.is

Saga:

Um 1920 keyptu hjónin Stefán Hafliði Steingrímsson (1892-1972) verkamaður og Jónína Kristín Gísladóttir (1895-1979) lítinn torfbæ á Ólafsfirði sem nefndur var Miðbær. Árið 1928 byggðu þau timburhús á sama stað, sem einnig var nefnt Miðbær. Húsið stóð við Aðalgötu 10 á Ólafsfirði. Það var portbyggt bárujárnsklætt timburhús, sem stóð á steyptum hálf-niðurgröfnum kjallara, rétt manngengum. Inngangur var um steyptar tröppur á jarðhæð hússins. Í Miðbæ bjuggu þau Stefán og Jónína allan sinn búskap, en þau eignuðust tíu börn. Og enn er húsið í eigu afkomanda þeirra, svokallaðrar Miðbæjarættar eins og afkomendurnir kalla sig, þó það hafi um stund verið í eigu annarra (1976-1983).

Oftast bjuggu einnig leigjendur í húsinu þannig að oft hefur verið þröng á þingi í þessu litla húsi.

Árið 1983 stóð til að reisa stórhýsi fyrir Sparisjóð Ólafsfjarðar á horni Aðalgötu og Kirkjuvegs og þurfti þá litla húsið að víkja. Þegar til stóð að rífa það eignaðist Lilja Kristinsdóttir (1941-2015) sonardóttir þeirra hjóna húsið og lét flytja það suður að Reykjum, sem er innst í Ólafsfirði undir Lágheiði. Þar nýtti hún og fjölskylda hennar húsið sem sumarbústað.

Útlitsteikning Studio Granda, dags. 10. júní 2018. Sótt 19. febrúar 2026 af https://teikningar.fjallabyggd.is/Kirkjuvegur/fb-008612.pdf.

Þar stóð Miðbær til ársins 2019 þegar núverandi eigandi hans flutti hann aftur inn í bæinn, á lóð númer 4 við Kirkjuveg, þar sem áður stóð steinsteypt hús. Nú stendur húsið því örskammt frá sínum upphaflega stað á Ólafsfirði og liggja lóðirnar tvær saman. Unnið er að því að gera húsið upp og stækka lítillega á vandaðan hátt í samræmi við gerð þess og upprunalegt útlit samkvæmt teikningum frá arkitektum Studio Granda.1Kristinn E. Hrafnsson (2026, 16. febrúar). Munnleg heimild og tölvupóstur; Fjallabyggð. Kortasjá. Teikningar. Kirkjuvegur 4, Ólafsfirði. Afstöðumynd, dags. 10. júní 2018; Friðrik G. Olgeirsson (1984). Hundrað ár í Horninu. Saga Ólafsfjarðar 1883-1944, bls. 106. Útg.: Ólafsfjarðarkaupstaður.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 20. febrúar, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 20. febrúar, 2026