Kirkjuvegur 36 í Keflavík, daginn sem húsið var flutt árið 1982.  Ljósm.: Árni Árnason. Sótt 11. mars 2025 af https://www.facebook.com/groups/keflavik/permalink/10150542257712213/.
Kirkjuvegur 36 í Keflavík, daginn sem húsið var flutt árið 1982. Ljósm.: Árni Árnason. Sótt 11. mars 2025 af https://www.facebook.com/groups/keflavik/permalink/10150542257712213/.

Kirkjuvegur 38, Keflavík, Reykjanesbæ

Byggingarár: 1928 ?
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: ?
Aðrir eigendur:
1982: Keflavíkurbær
Upphafleg staðsetning: Kirkjuvegur 36, Keflavík, Reykjanesbæ
Flutt: 1982 að Kirkjuvegi 38, Keflavík, Reykjanesbæ
Hvernig flutt: Í heilu lagi
Kirkjuvegur 38 1

Kirkjuvegur 38 í Keflavík árið 2011. Ljósm.: Sigurbjörn Arnar Jónsson. Sótt 11. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10150253438254840&set=gm.10150522641907213.

20250813_131222

Kirkjuvegur 38 í Keflavík í ágúst 2025. Ljósm.: Höfundur.

Saga:

Í febrúar 1982 kemur fram í Víkurfréttum að til standi að auglýsa húsið við Kirkjuveg 36 í Keflavík í Reykjanesbæ til niðurrifs eða brottflutnings, en húsið var þá í eigu Keflavíkurbæjar. Í mars sama ár óskar bæjarstjórinn í Keflavík síðan eftir tilboðum í að fjarlægja húsið af kjallara sínum. Niðurstaðan varð sú að húsið var ekki rifið heldur flutt á næstu lóð, þ.e. lóð númer 38 við Kirkjuveg, árið 1982.

Erfitt hefur reynst að afla upplýsinga um sögu hússins, en svo virðist sem Páll Pálsson sjómaður í Keflavík hafi keypt lóðina númer 36 í september árið 1927 af Elinmundi Ólafssyni eiganda Keflavíkurjarðarinnar. Væntanlega hefur hús verið reist á lóðinni stuttu síðar.

Fram kemur í ýmsum heimildum að Einar Sveinsson (1893-1987) hafi átt eða búið í húsinu númer 36 við Kirkjuveg með fjölskyldu sinni um nokkurt skeið.1Tvö hús fjarlægð í Keflavík (1982, 4. febrúar). Víkurfréttir, 3. árg., 3. tbl., bls. 8; Bæjarsjóður Keflavíkur (1982, 13. mars). Morgunblaðið, 69. árg., 56. tbl., bls. 28; Gögn í skjalasafni Reykjanesbæjar; Minninar: Kristín Rósa Einarsdóttir (2019, 17. júlí). Morgunblaðið, 107. árg., 166. tbl., bls. 17.

Rétt er að taka fram að lóðin númer 36 við Kirkjuveg er nú skráð Vesturgata 14 og húsið sem þar stendur var byggt árið 1984.2Gögn í skjalasafni Reykjanesbæjar

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025