Kirkjuvegur 32, Keflavík
Kirkjuvegur 32, gömul mynd. Kanon arkitektar ehf. (2012, febrúar). Reykjanesbær. Byggða- og húsakönnun – áfangaskýrsla – febrúar 2012, bls. 42.
Saga:
Aldamótaárið 1900 var hafin bygging þessa húss ofan við Fischershús, sem stendur við Hafnargötu 2 í Keflavík. Það voru ekkjan Sigríður Helgadóttir, fósturdóttir og maður hennar, Einar Árnason, sem hófu bygginguna, því þau höfðu búið í gömlu húsi á sömu lóð. Nýja húsið erfði nafn eldra hússins, sem kallað var Jónshús eftir Jóni Jónssyni, eiginmanni Sigríðar. Húsbyggingin var ekki vel séð af Ágústi Olavsen, sem hugðist gera blómagarð við hús sitt, Fischershús, sem á þessum tíma þótti eitt fallegasta hús á Suðurlandi. Því lét Duusverslun flytja húsið á eigin kostnað að Kirkjuvegi 32 í Keflavík áður en það var fullbyggt, þar sem það stendur enn.1Kanon arkitektar ehf. (2012, febrúar). Reykjanesbær. Byggða- og húsakönnun – áfangaskýrsla – febrúar 2012, bls. 42; Fischershús, Hafnargata 2, Reykjanesbæ (Keflavík), verknr. 1712 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Var húsið svo flutt í heilu lagi, áður en það var fullsmíðað. Var því rennt á stórum og sterkum trjám, sem smurð voru með grænsápu. Sverum köðlum var vafið um húsið, en kaðlarnir runnu í blokkum, og var svo dregið af handafli af fjölda manns. Það fóru tveir dagar í það, að koma húsinu upp á nýju lóðina, …2Marta Valgerður Jónsdóttir (1989). Keflavík í byrjun aldar. Minningar frá Keflavík, bls. 525. Þrjú bindi. Niðjatöl tóku saman Guðleifur Sigurjónsson og Þorsteinn Jónsson, sem einnig ritstýrði. Reykjavík: Líf og saga í samvinnu við Sögunefnd Keflavíkur.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025
Heimildaskrá
- 1Kanon arkitektar ehf. (2012, febrúar). Reykjanesbær. Byggða- og húsakönnun – áfangaskýrsla – febrúar 2012, bls. 42; Fischershús, Hafnargata 2, Reykjanesbæ (Keflavík), verknr. 1712 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
- 2Marta Valgerður Jónsdóttir (1989). Keflavík í byrjun aldar. Minningar frá Keflavík, bls. 525. Þrjú bindi. Niðjatöl tóku saman Guðleifur Sigurjónsson og Þorsteinn Jónsson, sem einnig ritstýrði. Reykjavík: Líf og saga í samvinnu við Sögunefnd Keflavíkur.
Deila færslu
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025
