Bjarnastaðir, Kirkjubraut 52, Akranesi á árunum 2012 til 2014. Ljósm.: Vitinn (Félag áhugaljósmyndara á Akranesi). Ljósmyndasafn Akraness, mynd nr. 46813.
Bjarnastaðir, Kirkjubraut 52, Akranesi á árunum 2012 til 2014. Ljósm.: Vitinn (Félag áhugaljósmyndara á Akranesi). Ljósmyndasafn Akraness, mynd nr. 46813.

Kirkjubraut 52, Akranesi

Heiti: Zephyr – Seffír - Bjarnastaðir - Steinabær
Byggingarár: 1891
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Guðmundur Höskuldsson og Guðrún Einarsdóttir
Aðrir eigendur:
1913 ?: Bjarni Vigfússon
Upphafleg staðsetning: Bakarísstígur, Eyrarbakka
Flutt: 1929 að Kirkjubraut 52, Akranesi
Hvernig flutt: Tekið niður

Saga:

Sumarið 1891 byggðu hjónin Guðmundur Höskuldsson (1862-1949), bókbindari og sjómaður, og Guðrún Einarsdóttir (1860-1939) hús í Skúmsstaðalandi á Eyrarbakka, þar sem nú (2025) er ræktuð lóð sunnan við húsið nr. 6 við Bakarísstíg (Sæból). Þau höfðu flust til Eyrarbakka úr Rangárvallasýslu.1Margrét Hrönn Hallmundsdóttir, Guðlaug Vilbogadóttir og Edda Linn Rise (2022, nóvember). Fornleifaskráning Eyrarbakka – Verndarsvæði í byggð, bls. 272. Náttúrustofa Vestfjarða, skýrsla nr. 14-21; Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025). Eyrarbakki. Byggð í mótun. Horfin hús 1878-1960, bls. 262. Eyrarbakki: Laugabúð.

Húsinu, sem þau nefndu Zephyr, var lýst svo í virðingargjörð þegar húsið var nýbyggt:

Íbúðarhús Guðmundar Höskuldssonar, er stendur á Skúmsstaðalóð á Eyrarbakka. Hús þetta er á lengd 8 álnir, á breidd 6 álnir, byggt af timbri með járnþaki að öllu leyti, innréttað undir lofti, en uppi á loftinu er óinnréttað.

Húsheitið Zephyr merkir hægur vindur eða eitthvað fíngert eins og garn eða efni. Eitt af dönsku kaupskipunum sem sigldu til Eyrarbakka bar þetta nafn.2Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025), bls. 262.

Í daglegu tali og framburði varð nafnið Seffír.

Þegar þau Guðmundur og Guðrún fluttu til Reykjavíkur árið 1913 eignaðist Bjarni Vigfússon (1858-1936) smiður húsið. Hann kenndi húsið við sjálfan sig og nefndi Bjarnastaði.3Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025), bls. 262.

Þegar húsið var virt árið 1916 var það sagt vera timburhús með járnklæddu þaki, byggt á lágum kjallara, 5 x 3,7 m að flatarmáli, vegghæðin 2,6 m og risið 2 m hátt. Á neðri hæðinni var 1 herbergi og eldhús og var þar einn ofn auk elda­vélar. Meðfram allri austurhlið hússins var lægri skúrbygging, 2 m breið og þar var vegghæðin 2 m. Skúr þessi var þiljaður að innan með veggfóðri. Við vesturgaflinn var lítill, járnklæddur geymsluskúr, 2 x 1,6 m að stærð.4Eiríkur Gíslason (1916-1928). Húsvirðingabók, nr. 33. Óútgefið handrit í eigu Sjóminjasafns Eyrarbakka.

Eftir að Bjarni og seinni kona hans, Sigríður Höskuldsdóttir (1875-1933) fluttu úr húsinu árið 1927 bjó systir Sigríðar, Ragnhildur, þar í um það bil tvö ár. Húsið var tekið niður árið 1929 og flutt upp á Akranes. Þangað höfðu Bjarni og Sigríður flutt árið 1927. Á Akranesi var húsið endurbyggt og hélt sínu fyrra nafni, Bjarnastaðir, og stendur það enn við Kirkjubraut 52.5Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025), bls. 262; Guðmundur L. Hafsteinsson (2008, 28. júní). Tölvupóstur.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. júlí, 2025

Heimildaskrá

  • 1
    Margrét Hrönn Hallmundsdóttir, Guðlaug Vilbogadóttir og Edda Linn Rise (2022, nóvember). Fornleifaskráning Eyrarbakka – Verndarsvæði í byggð, bls. 272. Náttúrustofa Vestfjarða, skýrsla nr. 14-21; Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025). Eyrarbakki. Byggð í mótun. Horfin hús 1878-1960, bls. 262. Eyrarbakki: Laugabúð.
  • 2
    Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025), bls. 262.
  • 3
    Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025), bls. 262.
  • 4
    Eiríkur Gíslason (1916-1928). Húsvirðingabók, nr. 33. Óútgefið handrit í eigu Sjóminjasafns Eyrarbakka.
  • 5
    Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025), bls. 262; Guðmundur L. Hafsteinsson (2008, 28. júní). Tölvupóstur.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. júlí, 2025