Kirkjubraut 32, Akranesi
Kirkjubraut 32 á Akranesi 2012 til 2014. Ljósm.: Vitinn (Félag áhugaljósmyndara á Akranesi). Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 46802.
Kirkjubraut 32, Akranesi, í ágúst 2024. Ljósm.: https://www.google.com/map.
Saga:
Í bæja- og húsakönnun á Skipaskaga segir um húsið sem nú er skráð númer 32 við Kirkjubraut á Akranesi:
Örfáum árum eftir að fúnksjónalisminn eða notagildisstefnan barst hingað til Íslands voru byggð hús á Akranesi sem tóku mið af hinum nýju hugmyndum. Flest þessara húsa voru byggð úr steinsteypu en einnig úr timbri og klædd bárujárni. Eitt þeirra var byggt árið 1934 við Kirkjubraut 32. Það skiptist í háan steinsteyptan kjallara og hæð úr timbri og á húsinu er skúrþak. Hæð og þak eru klædd bárujárni.1Guðmundur L. Hafsteinsson (2009). Perla Faxaflóa. Bæja- og húsakönnun á Skipaskaga, bls. 25. Akranesi: Akraneskaupstaður.
En húsið hefur ekki alltaf staðið á kjallara. Í minningabrotum Páls Bjarnasonar (f. 1939) um bernskudaga sína á Skaga segir um þetta hús, sem hann flutti í með foreldrum sínum, Þuríði Guðnadóttur (1904-1987) og Bjarna Th. Guðmundssyni (1903-1992), í september 1945:

Teikning Jóhanns B. Guðnasonar þáverandi byggingarfulltrúi af Kirkjubraut 32 og afstöðu þess. Heimild: Akranesbær. Kortasjá. Kirkjubraut 32. Teikn. dags. 29. mars 1949.
Nýja heimilið var í húsi nr. 32 við Óðinsgötu eða öllu heldur á henni því að það skagaði út í miðja götu. Þakið á því var flatt, með smáhalla, kallað skúrþak því að aðallegar voru skúrar með slíku þaki. … Í skúrþakshúsinu var stofa, eitt svefnherbergi, eldhús, geymslukompa, þvottahús og örlítið klósett. Enginn kjallari. Árið 1947 var skipt um nöfn á flestum götum í bænum og Óðinsgata varð þá að Kirkjubraut. Húsið okkar stóð á horni Skagabrautar og Kirkjubrautar. Skipulag gerði ráð fyrir að þar kæmi tog og í framtíðinni kirkja sem stæði fyrir enda götunnar. Húsið okkar þurfti því að víkja og 1947-48 var það fært innar í lóðina, í beina línu við Kirkjubraut 30. Þetta kom sér vel því að steyptur var kjallari undir húsið svo að fermetrafjöldi hússins tvöfaldaðist. Í kjallaranum var þvottahús, geymslur og baðherbergi en uppi kom í staðinn herbergi sem ég fékk til afnota. Nafn Kirkjubrautar er til merkis um áform sem horfið var frá og timburkirkjan við Skólabraut frá 1901 gegnir enn hlutverki sínu með sóma.2Páll Bjarnason (2025). Bernskudagar á Skaga. Minningabrot, bls. 13. Reykjavík: Páll Bjarnason.
Þegar Jóhann B. Guðnason þáverandi byggingarfulltrúi gerði uppdrátt af húsinu og afstöðu þess í mars 1949 var eigandi þess sagður vera Ólafur Þorsteinsson.3Akranesbær. Kortasjá. Kirkjubraut 32. Teikn. dags. 29. mars 1949.
Húsið stendur enn við Kirkjubraut 32 og þó það sé mikið breytt má enn sjá sterkan svip frá upprunalega funkishúsinu.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 15. mars, 2025
Heimildaskrá
- 1Guðmundur L. Hafsteinsson (2009). Perla Faxaflóa. Bæja- og húsakönnun á Skipaskaga, bls. 25. Akranesi: Akraneskaupstaður.
- 2Páll Bjarnason (2025). Bernskudagar á Skaga. Minningabrot, bls. 13. Reykjavík: Páll Bjarnason.
- 3
Deila færslu
Síðast uppfært 15. mars, 2025

