Karlsstaðir, Vöðlavík, Fjarðabyggð
Saga:
Á Hrúteyri á suðurströnd Reyðarfjarðar, í landi Sléttu, myndaðist vísir að þéttbýli eftir að eyrin var gerð að löggildri verslunarhöfn árið 1883. Helsti framkvæmdamaðurinn þar var Peter N. Randulff, sem
… fékk borgarabréf sem kaupmaður á Hrúteyri árið 1887 og þar byggði hann íbúðarhús 1890 og stækkaði það 1895. Á því ári byggði hann þarna einnig nýtt síldarhús. Randulff hafði mikið umleikis um skeið því að auk verslunarinnar stundaði hann síldveiðar, oft í félagi við Klausen á Eskifirði, og hafði skip sem hét Hrúteyri í förum milli Noregs og Íslands. Í tíð Randulffs á Hrúteyri byggðist þar upp vísir að þorpi og í manntali frá 1901 er getið um að þar hafi verið fjögur íbúðarhús.1Hreinn Ragnarsson og Steinar J. Lúðvíksson (ritstjórar) (2007). Síldarstaðir á 19. öld. Í Silfur hafsins. Gull Íslands. Síldarsaga Íslendinga. 1. bindi, bls. 153. Reykjavík: Nesútgáfan.
„Á eyrinni bjuggu milli 40-50 manns þegar flest var. Þessari útgerð var lokið snemma í byrjun 20. aldar, húsin tekin niður og flutt.“2Guðný Zoëga o.fl. (2004). Fornleifaskráning vegna aðal- og deiliskipulags í Fjarðabyggð, bls. 99. Rannsóknaskýrslur 2004/27. Byggðasafn Skagfirðinga. Búseta mun hafa verið á eyrinni fram um 1930.3Ármann Halldórsson, Sigmar Magnússon og Þorsteinn Bergsson (1974). Sveitir og jarðir í Múlaþingi, III. bindi, bls. 170. Búnaðarsamband Austurlands.
Eitt þeirra húsa sem stóð á Hrúteyri, líklega eitt íbúðarhúsanna, var flutt að Karlsstöðum í Vöðlavík árið 1933. Þá bjó þar Guðmundur Guðnason (1883-1971) ásamt seinni konu sinni Guðnýju Þórunni Jónsdóttur (1893-1956). Þegar hún lést árið 1956 flutti Guðmundur til sonar síns í Hafnarfirði.

Steyptur húsgrunnur síðasta íbúðarhússins á Karlsstöðum árið 2020. Ljósm.: Guðný Zoëga. Heimild: Guðný Zoëga (2021). Vöðlar, Ímastaðir og Karlstaðir í Vöðlavík – fornleifaskráning, bls. 51. Rannsóknaskýrslur Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum 5/2021.
Húsið var járnklætt, ein hæð og loft með súð, 3 herbergi og eldhús niðri, en 2 herbergi uppi.4Ármann Halldórsson, Sigmar Magnússon og Þorsteinn Bergsson (1974), bls. 88; Minning. Vilhjálmur Jónsson. Ímastöðum (1968, 25. október). Íslendingaþættir Tímans, 1. árg., 10. tbl., bls. 11.
Þegar fornleifar voru skráðar í Vöðlavík sumarið 2020 mátti sjá steinsteyptan grunn hússins, 6 x 7 m að grunnfleti.5Guðný Zoëga (2021). Vöðlar, Ímastaðir og Karlstaðir í Vöðlavík – fornleifaskráning, bls. 52. Rannsóknaskýrslur Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum 5/2021.
Þess má geta á Karlsstöðum hefur Ferðafélag Fjarðamanna reist skála.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. október, 2024
Heimildaskrá
- 1Hreinn Ragnarsson og Steinar J. Lúðvíksson (ritstjórar) (2007). Síldarstaðir á 19. öld. Í Silfur hafsins. Gull Íslands. Síldarsaga Íslendinga. 1. bindi, bls. 153. Reykjavík: Nesútgáfan.
- 2
- 3Ármann Halldórsson, Sigmar Magnússon og Þorsteinn Bergsson (1974). Sveitir og jarðir í Múlaþingi, III. bindi, bls. 170. Búnaðarsamband Austurlands.
- 4Ármann Halldórsson, Sigmar Magnússon og Þorsteinn Bergsson (1974), bls. 88; Minning. Vilhjálmur Jónsson. Ímastöðum (1968, 25. október). Íslendingaþættir Tímans, 1. árg., 10. tbl., bls. 11.
- 5
Deila færslu
Síðast uppfært 1. október, 2024