Þórður Ólafsson og Guðbjörg Guðmundsdóttir og húsið sem þau byggðu 1902. Heimild: Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður, bls. 48. Önnur útgáfa. [Hafnarfjörður:] Höfundur.
Þórður Ólafsson og Guðbjörg Guðmundsdóttir og húsið sem þau byggðu 1902. Heimild: Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður, bls. 48. Önnur útgáfa. [Hafnarfjörður:] Höfundur.

Kaplakriki, Hafnarfirði

Heiti: Á Balanum – Á Hólnum - Grund
Byggingarár: 1902
Brann: 1970-1972
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Þórður Ólafsson og Guðbjörg Guðmundsdóttir
Aðrir eigendur:
1960 ?: Jón Konráðsson og Dýrfinna Ó. Högnadóttir
Upphafleg staðsetning: Austurgata 46, Hafnarfirði
Flutt: 1958 í Kaplakrika Hafnarfirði, þar sem nú er Lyngberg 15

Saga:

„Hús nokkurt sem byggt var 1902 og síðar talið Austurgata 46, var tekið, sumarið 1958 og flutt upp að Kaplakrika. Hjónin sem komu sér upp þessu húsi voru Þórður Ólafsson [1857-1906] og Guðbjörg Guðmundsdóttir [1859-1941].“1Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður, bls. 48. Önnur útgáfa. [Hafnarfjörður:] Höfundur. Þau gengu í hjónaband árið 1887 og eignuðust 3 börn. Ekki bjuggu þau lengi í húsinu, því fjölskyldan flutti til Reykjavíkur árið 1904. „Nafngiftin á þessu húsi var á reiki; ýmist nefnt á Balanum, Hólnum eða Grund.“2Magnús Jónsson (1970), bls. 48.

Austurgata 46 í forgrunni á ljósmynd sem tekin var um 1926. Myndin er í fórum Byggðasafns Hafnarfjarðar og hefur verið klippt til. Heimild: Atli Rúnarsson (2021). Fornleifaskrá Hafnarfjarðar II. Miðbær og Hraun, bls. 10. Hafnarfirði: Byggðasafn Hafnarfjarðar.

Húsið stóð þar sem nú (2024) stendur listaverk við Hamarskotslæk, eftir Hallstein Sigurðsson sem reist var vegna 100 ára afmælis rafmagns í Hafnarfirði.3Atli Rúnarsson (2021). Fornleifaskrá Hafnarfjarðar II. Miðbær og Hraun, bls. 10. Hafnarfirði: Byggðasafn Hafnarfjarðar. Í brunabótavirðingu frá 1917 var húsinu lýst svona:

„a) íbúðarhús, húsið er einlyft með risi 0.80m. því er skipt í 3 herbergi og eldhús, herbergin fóðruð, annars klætt panel og málað, eingöngu notað til íbúðar. b) Við austurhlið hússins er skúr, notaður til inngöngu í húsið og til geymslu.“ Húsið var úr timbri og klætt að hluta með járni en annars með pappa og þakið úr járnvörðu timbri.4Atli Rúnarsson (2021), bls. 10-11.

Tvær kenningar hafa komið fram um það hvar í Kaplakrika húsið hafi staðið.

Önnur er sú að húsið hafi verið nálægt þeim stað sem nú er raðhús við Lyngberg 15, 15a og a15 (grænn hringur á loftmyndinni hér að neðan), en þar stóð áður kúlúhús sem byggt var um 1980 og Einar Þorsteinn Ásgeirsson teiknaði. Það hús var rifið 2015.  Þeirri sögu fylgir að húsið hafi brunnið á 8. áratug síðustu aldar. Þá áttu hjónin Jón Konráðsson (1923-2001) og Dýrfinna Ó. Högnadóttir húsið. Þau bjuggu í húsinu í nokkur ár um 10 árum fyrr, en leigjendur bjuggu í húsinu þegar það brann.5Jóhanna Bára Jónsdóttir (2024, 18. júní). Tölvupóstur; Hús án veggja (1989, 15. júní). Þjóðviljinn – Húsnæði, 54. árg., bls. 10; Málfríður Kristjánsdóttir (2022). Setberg Hafnarfirði. 1. hluti. Húsakönnun.

Hin kenningin er sú að húsið hafi staðið rétt sunnan við stúkuna sem var sunnan megin við fyrsta knattspyrnuvöllinn sem FH-ingar gerðu í Kaplakrika og hafi verið notað sem félagsheimili FH-inga (rauður hringur á loftmyndinni hér að neðan). Síðar var íþróttahúsið reist þar sem húsið stóð, sunnan við stúkuna.6Björn Pétursson, bæjarminjavörður Hafnarfjarðarbæjar (2024, 24. júní). Tölvupóstur.

Loftmynd frá árinu 1982 af athafnasvæði FH-inga við Kaplakrika í Hafnarfirði. Ljósm. í eigu Byggðasafns Hafnarfjarðar.

Loftmynd af Kaplakrika og nyrsta hluta Setbergshverfisins árið 2023. Heimild: https://www.map.is/hafnarfjordur/@356771,400109,z9,0

Leitarorð: Hafnarfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. júlí, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. júlí, 2024